Tíminn - 27.10.1977, Side 17
Fimmtudagur 27. október 1977
17
i íþróttir |
Johan Cruyff og
félagar hans
til Argentínu!
— eftir að þeir lögðu Belga að velli (1:0) í
Amsterdam í gærkvöldi
JOHAN Cruyff og félagar
hans í hollenska landslið-
inu í knattspyrnu/ tryggðu
sér farseðilinn til Argen-
tínu 1978 i gærkvöldi í
Amsterdam, þar sem þeir
unnu sigur (1:0) yfir
Belgíumönnum að við-
stöddum 62 þús. áhorfend-
um á Olympiu-leikvellin-
um.
Hollendingar undir stjórn
Cruyff, sem lék frábærlega, byrj-
uðu leikinn strax á fullum krafti
og það var greinilegt að þeir ætl-
uðu ekkert annað en sigur. Þeir
yfirspiluðu Belgíumenn algjör-
lega og sóttu nær stanzlaust að
marki þeirra, en aðeins einu sinni
Spánskur
sigur...
Spánverjar unnu sigur (2:0)
yfir Rúmeniu i HM-keppninni i
knattspyrnu i gærkvöldi i Madrid.
40 þús. áhorfendur sáu þá Leal
(73. min) og Ruben Cano (81
min.) skora mörk Spánverja.
Staðan er nú þessi i 8-riðli HM-
keppninnar i Evrópu:
Spánn ....... 3 2 0 1 3:1 4
Rúmenia.......3 2 0 1 3:2 4
Júgóslavia... 2 0 0 2 0:3 0
Tveir leikir eru eftir i riðlinum:
Rúmenia-Júgóslavia og Júgó-
slavia-Spánn.
tókst þeim að koma knettinum
fram hjá Jean-Marie Pfaff,
markverði Belgiumanna, sem
varði hvað eftir annað stórkost-
lega og var greinilegt að hann var
maður leiksins — áhorfendur
klöppuðu honum hvað eftir annað
lof i lófa, eftir að hann var búinn
að bjarga — stundum ævintýr-
lega, á siðustu stundu, skotum frá
Hollendingum.
Pfaff réði þó ekki við gott skot
Rena van de Kerkhof á 41. min.
Þessi snjalli miðherji hjá PSV
Eindhoven skoraði með snöggu
skoti, eftir að miðvallarspilarinn
Johan Neeskens var búinn aö
leika laglega á nokkra Belgiu-
menn og hann sendi siðan góðan
krossbolta yfir til Kerkhof, sem
þakkaði fyrir sig, með þvi að
skora, við mikinn fögnuð áhoi'f-
enda.
Bezta dæmið um yfirburði Hol-
lendinga er, að markvörður
þeirra Jan Jongboel hafði litið
sem ekkert að gera i markinu —
átti mjög rólegan dag.
JOHAN CRUYFF
Pétur
og Arni
æfa hjá
Leicester
Skagamennirnir Pétur Pét-
ursson og Arni Sveinsson eru
nú í Englandi, þar sem þeir
æfa meö 1. deildarlifii Leicest-
er. Þeim Pétri og Arna var
boóið til Englands, þeim að
kostnaðarlausu, og borgar
Leicester allt uppihald þeirra
— og feröir fram rg til oak:i.
Þaö erekkiaö efa að þeir fé-
lagar koma meö mikla
reynslu til baka og aö þeir
munu læra mikið hjá Leicest-
er. SU reynsla, sem þeirfá hjá
félaginu á áreiðanlega eftir aö
koma þeim til góða. Pétur og
Arni eru tveir af efnilegustu
knattspyrnumönnum Islands
— Arni hefur leikið sl. tvö ár f
landsliðinu og Pétur mun ör-
ugglega klæðast landsliös-
peysunni næsta sumar.
Fairclough var
hetja Liverpool
— skoraði 2 mörk gegn Derby, eftir að hann kom inn á,
sem varamaður
ANDY GRAY.........skoraði mark
Aston Villa.
Rauðhærði strákurinn David
Fairclough „Super Sub” var
hetja Liverpool á Anfield Road i
gærkvöldi, þegar Liverpool-liðið
vann sigur (2:0) yfir Derby i
ensku deildarbikarkeppninni.
Fairclough, kom inn á sem
varamaöur, fyrir John Toshack,
þegar 20 min. voru til leiksloka
og staöan var þá 0:0.
Fairclough var þá ekki að tvi-
nóna við hlutina —■ hann var i
miklum vigamóð og var búinn
að senda knöttinn tvisvar sinn-
um i netið hjá Derby, þegar
hann var aðeins búinn að vera
inn á i 5 min. Fairclough var
borinn af leikvelli i gullstól eftir
leikinn.
Úrslit i ensku deildarbikar-
keppninni i gærkvöldi urðu
þessi:
Liverpool - Derby..........2:0
Aston Villa - Q.P.R........1:0
Wrexham - BristolC.........1:0
Leeds - Colchester.........4:0
Tottenham -Coventry......2:3
3. deildarliðið Wrexham sem
sló bæði Leicester og Tottenham
út úr keppninni sl. ár, sló Bristol
City út i gærkvöldi — Bobby
Shinton skoraði sigurmark
Wrexham.
Andy Gray skoraði sigurmark
Aston Villa úr vitaspyrnu. Ray
Graydon skoraöi sigurmark
Coventry gegn Tottenham eftir
að hann hafði skotið i stöng af
tveggja metra færi.
Norðurlandamótið í handknattleik
Islendingar mæta
N orðmönnum...
ARNI INDRIÐASON... leikur sinn 25. landsleik gegn Norö-
monnura.
Norðurlandamótið í hand-
knattleik hefst í Laugar-
dalshöllinni í kvöld, en þá
leika Islendingar gegn
Norðmönnum, og má búast
við f jörugum leik. Þetta er
i annað skiptið semNorður-
landamót karla hefur verið
haldið. — Það var fyrst
haldið í Kaupmannahöfn
1975 og þá tryggðu Svíar
sér Norðurlandameistara-
titilinn.
Svlar koma einnig nú til að
berjast um meistaratitilinn —
væntanlega við Dani, sem eru
með mjögsterktog samæftliðum
þessar mundir. Danir sigruðu ný-
lega Júgóslava 29:27 og Tékka
27:22, en töpuðú 17:21 fyri
V-Þjóðverjum. á þessu sést að
sóknarleikur Dana er sterkur —
þeir skora nær 30 mörk gegn
Júgóslövum og Tékkum.
Noröurlandamótið hefst meö
leik Finna og Færeyinga f kvöld i
Laugardalshöllinni kl. 8, en strax
á eftir leika Islendingar og Norö-
menn, og verða íslendingar að
bera sigur út býtum, ef þeir ætla
sér að komast í úrslit. ísland
— í Laugardals
höllinni í kvöld og
Finnar og
Færeyingar keppa
þar einnig
mætir Danmörku siðan á laugar-
daginn.
Islenzka landsliðið, sem leikur i
keppninni, er skipað þessum leik-
mönnum:
Markverðir:
ÓlafurBenediktss.Olympia ...72
Gunnar Einarsson Haukum .... 37
Kristján Sigmundss. Vikingi... 6
Aðrir leikmenn:
Ólafur Einarsson, Vikingi...45
Jón Pétur Jónsson, Val...... 2
Árni Indriðason, Víkingi....24
Þorbjörn Jensson, Val....... 1
Þorbergur Aöalsteinss. Vfkingi 9
ÞórarinnRagnarsson.FH......24
Jón H. KarlssonVal..........52
Geir Hallsteinss. FH.......105
ViggóSigurðsson.VIk........27
Þorbjörn Guömundss. Val....21
Birgir J <5 hanness. Fram....o
Þeir Þórarinn Ragnarsson og
Arni Indriðason leika sinn 25.
landsleik f kvöld.
Það má ekki búast við neinum
stórræðum hjá islenzka landslið-
inu á NM-mótinu, þar sem það
hefur litið sem ekkert æft saman
fyrir mótið.
Nógað
gera...
—fyrir landsliðs-
menn okkar
Landsliðsmenn okkar i hand-
knattlcik fá nóg að gera á næst-
unni— þeir verða I sviðsljósinu á
NM-mótinu um helgina, en siðan
halda þeir i keppnisferðalag til V-
Þýzkalands, Póilands og Sviþjóð-
ar i næstu viku — fimmtudaginn
3. nóvember.
Tveir landsleikir verða leiknir
við V-Þjóöverja — i Ludwikhafen
4. nóv. og Elsenfeld þann 5. Siöan
verður liðið i æfingabúðum f Gd-
ansk i Póllandi, þar sem liðið
leikur tvo landsleiki gegn Pól-
verjum — 13. og 14. nóv. Þá verða
leiknir tveir leikir gegn Svium i
Gautaborg á heimleiðinni, en
heim verður komið 18. nóvember.
United
í Íran
Manchester United brá sér til
lran á sunnudaginn og á mánu-
dagskvöldið lék liðið vináttuleik
gegn landsliði trans, sem er
stjórnað af Frank O’Farrel,
fyrrum fra mkvæmdastjóra
United. Manchester-liðið vann
sigur (2:0) yfir trönum — mörk
liðsins skoruðu þeir Steve Coppell
og Chris McGrath.