Tíminn - 27.10.1977, Qupperneq 20
18-300
Auglýsingadeild
Tímans.
f 'ásÉMf >
Marks og Spencer
HEIMSÞEKKT GÆÐAMERKI
YTRIFATNAÐUR
TRÉSMIDJAN MEIDUR
SÍÐUMÚLA 30 ■ SÍMI: 86822
' i
Sýrö eik
er sígild
eign
HUi
35% opinberra
starfsmanna
eru æviráðnir
áþ-Rvik. Um þaft bil 2970 starfs-
menn hins opinbera eru skipaöir,
en 1270 eru ráðnir án uppsagnar-
frests. Samtals eru opinberir
starfsmenn rúmlega 12 þúsund.
Starfsmenn með æviráðningu eru
þvi 4.240 eða um 35% af heildar-
starfsmannafjöldanum. t heild
hefur opinberum starfsmönnum
fjölgað á árinu 1976 um 90 en þar
af eru um 60 vegna nýrra stofn-
ana, sem eru öskjuhliðarskóli,
Graskögglaverksmiðja i Flatey
Fjölbrautarskóli Suðurnesja og
Matvælarannsóknir rikisins.
þannig að nettóaukningin hjá
öðrum stofnunum en þessum fjór-
um er um 30 stöður.
— Flestir þeirra sem eru ævi-
ráðnir eru nokkuð gamlir i starfi,
sagði Sigurður Haraldsson hjá
Fjárlaga- og hagsýslustofnun
rikisins. — Upp á siðkastið hefur
tiðkazt að ráða menn með ein-
hvers konar uppsagnarfresti. Það
má þvi búast við að þetta hlutfall
hafi lækkað og muni fara minnk-
andi a næstu árum. Æviráðningin
er arfur frá eldri timum, en hins-
vegar tiðkast ennþá að skipa i
ákveðin embætti. 1 þvi sambandi
mætti nefna forstöðumenn stofn-
ana.
Nýtt leiðakerfi í
Hafnarfirði tekur
gildi á laugardag
GV-Reykjavik — Landleiðir h.f.
boðuðu til blaöamannafundar I
gær vegna þeirra breytinga, sem
verða á ferðum vagna Landleiða
um Hafnarfjörð næstkomandi
laugardag.
Nýja kerfið er i höfuðatriðum i
þvl fdlgið að frá um kl. 13.00
mánudaga til og með laugardaga
ogallan daginná sunnudögum og
hátiðisdögum munu tveir vagnar
á klukkustund aka hvor á móti
öðrum eftirtaldar götur: Reykja-
vikurveg, Fjaröargötu, Strand-
götu, Suöurgötu um Hvaleyrar-
holt, Hringbraut, Alfaskeið og
Flatahraun. Leið vagnanna leng-
ist um einn kflómetra við þessa
breytingu og bætast þrir nýir við-
komustaðir við og ferðum fjölgar
um aðra fjóra, að sögn AgUsts
Hafberg framkvæmdastjóra
Landleiða h.f.
Höfuökostir þessa nýja kerfis
eru þeir, að samhliða þviað byggt
er upp heildar-strætisvagnakerfi
innanbæjar i Hafnarfirði batnar
mjög þjónusta fyrir þá sem nota
vagnana til að feröast milli Hafn-
Framhald á bls. 19.
áþ-Rvík. Starfsmenn hjá póstinum
hafa ekki átt sjö dagana sæla síðan
verkfallinu lauk. Gífurlega mikið
megn-af pósti hefur safnazt fyrir hjá
stotnunum og almenningi, auk þess
sem fékkst ekki í land úr farskipunum
fyrr en nú.
Póstpokarnir á annarri myndinni
innihalda póst frá Búnaðarfélagi Is-
lands og gefa góða hugmynd um
hversu mikið ein stofnun þarf að reiða
sig á þjónustu póstsins. Á hinni mynd-
inni má sjá hluta póstpokanna, sem
komu með farskipunum. Tímamynd-
ir: Róbert.
Þjóðhagsstofnun:
Skýrsla um stöðu fisk-
iðnaðarins væntanleg
innan nokkurra daga
GV-Reykjavik. Þessa
dagana er verið að
ganga frá skýrslu Þjóð-
hagsstofnunar um stöðu
fiskiðnaðarins og frysti-
húsanna, og að sögn
Gamaliels Sveinssonar,
verður hún tilbúin næstu
daga og verður þá af-
hent rikisstjórninni.
I skýrslunni er sýnt hvernig af-
koma frystihúsanna hefur þróazt
á árinu og hvaða áhrif kostnaðar-
breytingar á árinu hafi haft á af-
komuna.
— Þetta byggjum við á rekstr-
arreikningnum fyrirtækjanna og
framreiknum við þessa rekstrar-
reikninga með tilliti til breytinga
á tekjum og verðlagi, sagði
Gamaliel. Þannig getum við áætl-
að afkomuna á hverjum tima og
áætlað hver fjárhæðin er á einu
ári miðað við verðlagið i dag.
Aætlanir sem þessar gerum við
oft á ári, og þá fyrst og fremst i
tengslum við fiskverðshækkanir.
Með þeim erum við ekki að spá
um afkomuna, heldur segjum við
tilum hvernig hún myndi vera, ef
markaðsverðlag og allur kostn-
aður helzt við það sama i eitt ár.
Reikninga fyrirtækjanna at-
hugum við árlega, og nú erum við
að ljúka úrvinnslu rekstrarreikn-
inga á árinu 1976.
Timann vantar fólk til
blaðburðar i eftirtalir.
hverfi:
Ægisíða
Oddagata
Aragata
Bólstaðarhlíð
Kársnesbraut
Kópavogi
SÍAAI 86-300
Viðræður um sérkjara-
samninga að hefjast
áþ-Rvik. A næstu 45 dögum
munu 18 rikisstarfsmannafélög
hefja viöræöur viö rikisvaldið
um sérkjarasamninga sina.
Stærsta félagið i þeim hópi er
Starfsmannafélag Rikisstofn-
ana. Ef niöurstaöa fæst ekki úr
þeim umræðum gengur málið
beint til kjaranefndar, og hefur
hún 45 daga til umráða til að
kveða upp úrskurð sinn. Sá úr-
skuröur er bindandi.
— Þessar viöræður verða
ekki tiltakanlega viðamiklar,
sagði Haraldur Steinþórsson,
framkvæmdastjóri Bandalags
starfsmanna rikis og bæja.
Þarna er fyrst-ög fremst um að
ræöa'niðurröðun starfshópa og
einstaklinga i launaflokka. Það
er mikið af þessum atriðum
komið i aðalkjarasamninginn,
sem áður var i sérkjarasamn-
ingum. Það er lika ástæðan
fyrir þvi hve aðalkjarasamn-
ingurinn er umfangsmikill.