Fréttablaðið - 06.06.2006, Qupperneq 4
4 6. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
MARAÞON
REYKJAVÍKUR
GLITNIS
19. ÁGÚST
GOTT VEÐUR
TIL AÐ BYRJA
AÐ ÆFA!
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 31.5.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 72,1 72,44
Sterlingspund 134,38 135,04
Evra 91,99 92,51
Dönsk króna 12,335 12,407
Norsk króna 11,816 11,886
Sænsk króna 9,924 9,982
Japanskt jen 0,6375 0,6413
SDR 107,11 107,75
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
127,4115
ATVINNUMÁL „Staðan er sú að tæp-
lega fjögur hundruð starfsmenn
hafa ekki orðið sér úti um aðra
atvinnu þegar uppsagnarfresti
lýkur hjá Varnarliðinu,“ segir
Kristján Gunnarsson, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur.
Eins og kunnugt er var rúm-
lega sex hundruð íslenskum
starfsmönnum bandaríska Varn-
arliðsins sagt upp störfum þegar
ákveðið var að leggja starfsemi
hersins endanlega niður í lok sept-
ember. Tæplega tvö hundruð
þeirra munu áfram starfa á svæð-
inu í tilfallandi störfum fyrir
Flugmálastjórn. Sjötíu hafa orðið
sér úti um önnur störf en aðrir
eru enn óvissir um hvað tekur við
í lok uppsagnartímans.
Tiltölulega fáir hafa þó nýtt sér
sérstaka ráðgjafarþjónustu sem
sett var á laggirnar af hálfu verka-
lýðsfélagsins og Reykjanesbæjar
til aðstoðar þeim er misst hafa
vinnu sína á varnarsvæðinu. Að
sögn Helgu Jóhönnu Oddsdóttur,
starfsmannastjóra Reykjanes-
bæjar, sem sér um rekstur þjón-
ustunnar, hafa þrjú hundruð
manns farið þar í gegn og fengið
ýmiss konar aðstoð en stór hópur
hefur ekkert látið sjá sig og verið
er að leita leiða til að ná til þess
fólks. „Það er nóg að gera og
straumur fólks hefur verið þang-
að enda er margt í boði eins og
tölvunámskeið og sérfræðiráð-
gjöf ýmiss konar. Það hefur hing-
að til gengið alveg bærilega að
finna störf fyrir marga enn sem
komið er en talsverður fjöldi
hefur ekki látið sjá sig. Þar er
fyrst og fremst um iðnaðarmenn
að ræða sem eru rólegri en aðrir
og við erum að skipuleggja fundi
með þeim og öðrum á varnar-
svæðinu. Við færum þjónustuna
til þeirra og vonumst til að hitta
alla og enginn verði útundan enda
eru ýmsir möguleikar í stöðunni.
Það eru nokkur fyrirtæki að auka
við starfsemi sína hér í bænum og
það er ekkert svartnætti fram-
undan.“
Kristján Gunnarsson bætir við
að blikur séu á lofti í atvinnumál-
um þótt staðan sé ágæt eins og
sakir standa. „Umsvif öll eru að
minnka á svæðinu og er þar fyrst
og fremst um byggingageirann að
ræða. Svo gæti ég trúað að hluti
þessara einstaklinga eigi erfitt
með að sætta sig við að lækka í
launakjörum. Störf fyrir Varnar-
liðið hafa verið ágætlega borguð
miðað við það sem gerist annars
staðar og laun almennt í Keflavík
eru lægri en til að mynda í höfuð-
borginni. Það hefur áhrif.“
albert@frettabladid.is
400 starfsmenn hafa
ekki fengið atvinnu
Af sex hundruð íslenskum starfsmönnum Varnarliðsins sem sagt var upp eru
enn fjögur hundruð án atvinnu þegar starfseminni lýkur í september.
ÚR EINU MÖTUNEYTA VARNARLIÐSINS Iðnaðarmenn virðast lítið kæra sig um aðstoð við að finna nýtt starf þegar Varnarliðið hverfur
endanlega af landi brott í september. Alls þrjú hundruð aðrir hafa notfært sér ráðgjafarþjónustu þá sem bærinn og verkalýðsfélagið komu
á fót fyrr í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
TÉKKLAND, AP Mirek Topolanek, leið-
togi stjórnarandstöðunnar í Tékk-
landi, sagðist í gær myndu freista
þess að mynda þriggja flokka sam-
steypustjórn síns flokks með kristi-
legum demókrötum og græn-
ingjum.
Flokkur Topolaneks, íhaldsflokk-
urinn ODS, fékk lítið eitt meira
fylgi en Jafnaðarmannaflokkurinn,
sem farið hefur fyrir ríkisstjórn-
inni undanfarið kjörtímabil, í þing-
kosningunum um helgina.
Vaclav Klaus, forseti Tékklands
og flokksfélagi Topolaneks, hafði
fyrr í gær falið honum stjórnar-
myndunarumboðið. Myndun meiri-
hlutasamstarfs er talið verða erfitt.
ODS fékk 81 þingsæti í neðri deild
þjóðþingsins með 34,5 prósent
atkvæða en jafnaðarmenn komu
næstir með 74 þingsæti og 32,3 pró-
sent atkvæða. Jafnvel þótt Tololanek
takist að fá bæði kristilega demó-
krata og græningja til stjórnarsam-
starfs ráða þeir þrír flokkar aðeins
yfir 100 af þingsætunum 200.
Fimmti flokkurinn sem fékk menn
kjörna á þing var Kommúnista-
flokkurinn, sem treysti stöðu sína
frá því í síðustu kosningum og fékk
26 menn kjörna. - aa
Leiðtoga íhaldsflokks falin stjórnarmyndun eftir þingkosningar í Tékklandi:
Stjórnarmyndun verður erfið
MIREK TOPOLANEK Leiðtogi íhaldsflokksins
ODS vill mynda þriggja flokka stjórn þótt
slík stjórn hefði ekki hreinan þingmeiri-
hluta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Olíuverð hækkar Heimsmarkaðsverð
á olíu hækkaði um meira en tvo
Bandaríkjadali fatið á föstudag, fór í
72,70 dali á markaði í New York eftir
að fréttir bárust af því að erlendir
verkamenn á olíuborpalli undan
ströndum Nígeríu hefðu verið numdir á
brott. Það skapaði áhyggjur af truflun á
olíuútflutningi frá Nígeríu.
BANDARÍKIN
PALESTÍNA, AP Mahmoud Abbas,
forseti Palestínumanna, sagðist í
gær ekki myndu hvika frá ákvörð-
un sinni um að gefa
Hamas-forystunni,
sem fer fyrir palest-
ínsku heima-
stjórninni, frest sem
rann út í gærkvöld
til að styðja þjóðar-
atkvæðagreiðslu um
stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis
við hlið Ísraels. Hamas-liðar hafa
ekki viljað styðja þessa áætlun
Abbas þar sem í því fælist óbein
viðurkenning á Ísraelsríki.
Sáttafundi sem boðaður hafði
verið í gærkvöldi var aflýst. - aa
Frestur runninn út:
Hamas hunsar
boð Abbas
MAHMOUD
ABBAS
SÓMALÍA, AP Íslamskir bókstafstrú-
armenn tóku Mogadishu, höfuð-
borg Sómalíu, og sameinuðu með
því borgina undir einni stjórn í
fyrsta sinn í rúman áratug.
Bandalag stríðsherra, sem
ráðið hafa borginni síðan 1991,
hefur barist gegn íslömsku
hersveitunum undanfarna mánuði
og er talið að um 300 manns hafi
farist og 1.700 særst, margir
þeirra óbreyttir borgarar. Banda-
rísk stjórnvöld eru talin styðja við
bakið á stríðsherrunum til að ekki
takist að koma á íslamskri stjórn
að fyrirmynd talíbana. Sumir telja
valdatökuna skref til friðar en
aðrir óttast hið versta. - sgj
Íslamskar hersveitir í Sómalíu:
Náðu völdum í
höfuðborginni
VÍGAMENN Í MOGADISHU Íslamskir upp-
reisnarmenn í höfuðborg Sómalíu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hópslagsmál í Húsafelli Tveim-
ur hópum ungmenna lenti saman á
tjaldsvæðinu í Húsafelli um helgina
með þeim afleiðingum að úr urðu
hópslagsmál. Lögreglan í Borgarnesi
lagði leið sína í Húsafell til að skikka
leikinn en þegar hana bar að garði hafði
tekist að stilla til friðar milli hópanna. Að
sögn lögreglunnar höfðu ungmennin,
sem voru í kringum tvítugt, ekki komið
saman á tjaldsvæðið og voru ómeidd
eftir slagsmálin.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Bílvelta á Eyjafjarðarbraut Engin
alvarleg slys urðu þegar bíll valt á Eyja-
fjarðarbraut rétt eftir hádegi í gær. Tveir
farþegar ásamt ökumanni voru í bílnum
og voru þeir fluttir á slysadeild. Talið er
að ökumaður hafi misst stjórn á bílnum
með þeim afleiðingum að hann valt.
DANMÖRK Í kjölfar hryðju-
verkanna í Bandaríkjunum 11.
september 2001 hefur það færst í
vöxt að kristnir Danir snúist til
íslamstrúar.
Hafa 2.500 Danir sagt sig úr
kirkjunni og gerst múslimar sam-
kvæmt frétt Berlingske tidende,
en á sama tíma hafa 700 múslimar
gerst kristnir.
Aukin umfjöllun um íslam er
talin ástæðan fyrir því að fleiri
einstaklingar kynna sér trúar-
brögðin og gerast múslimar í
kjölfarið.
Áður fyrr voru það helst
kristnar konur sem giftust mús-
limum sem skiptu um trú. - ks
Íslam sækir á í Danmörku:
Fleiri gerast
múslimar
SLYS Loka þurfti Hvalfjarðargöng-
unum í um tvær og hálfa klukku-
stund á sunnudaginn vegna árekst-
urs. Fjórir bílar lentu saman og
þurfti að fjarlægja skemmdu bíl-
ana af vettvangi með krana. Göng-
unum var lokað um klukkan hálf
fimm um eftirmiðdaginn og beindi
lögreglan bílum um Hvalfjörð á
meðan lokað var. Opnað var á ný
fyrir umferð um göngin um klukk-
an sjö þegar búið var að fjarlægja
bílana og sópa glerbrotum og
öðrum aðskotahlutum í burtu.
Níu farþegar voru í bílunum og
slasaðist enginn alvarlega en fjórir
voru fluttir á slysadeild til aðhlynn-
ingar. - at
Árekstur í Hvalfjarðargöngum:
Lokað í tvo og
hálfan tíma