Fréttablaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 8
8 6. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Ég verð að
segja að mér hugnast ekki sú
aðferðafræði sem Hafró notast
við og er ánægður að kominn er
ráðherra sem ekki hleypur blint á
eftir tillögum þeirra í hvert sinn,“
segir Guðmundur Kristjánsson,
forstjóri útgerðarfyrirtækisins
Brims, vegna þeirrar tillögu Haf-
rannsóknastofnunarinnar að afla-
reglu þorsks verði breytt til að
stækka hrygningastofninn sem er
verulega undir meðallagi.
Einar K. Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra hefur alfarið
hafnað hugmyndunum, sem hann
segir rista of djúpt og munu hafa
slæm áhrif á þjóðarbúskapinn ef
af verði. Vill Einar meina að ekki
sé um beinar tillögur að ræða þó
það komi skýrt fram í gögnum
Hafró. Er þar lagt til að aflareglu
verði breytt úr 25 prósentum, eins
og núverandi veiðiregla gerir ráð
fyrir, niður í sextán prósent,
standi hugur til að stækka og efla
hrygningarstofn þorsks, sem er
verulega undir meðallagi.
Telur Einar slíka breytingu of
umfangsmikla og ekki verða
tekna í flýti. „Ekki er um nein
skammtímasjónarmið hjá mér að
ræða. Þvert á móti þurfum við að
hafa langtímahugsun í fiskveiði-
stjórnun okkar og þess vegna
væri það skammtímasjónarmið
hjá mér ef ég hrapaði að einhverri
niðurstöðu í svo stóru máli. Við
þurfum lengri tíma til að fara yfir
þessi mál. Annars er ekki um til-
lögur að ræða hjá Hafró og það er
stóri misskilningurinn í þessu
máli öllu. Ég útiloka þó ekkert að
breytingar hvað þorskkvótann
varði verði gerðar fyrir þarnæsta
fiskveiðiár.“
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafró, ítrekar að almennt ástand
fiskveiðistofna við landið sé í
meginatriðum nokkuð gott.
„Kjarni ráðgjafar okkar er að við
sjáum glögglega að meðalnýliðun
í þorski er töluvert fyrir neðan
langtímameðaltal. Það er ekki
hættuástand og fyrirsjáanlegt er
að aflinn verður svipaður næstu
árin og verið hefur ef ekkert er að
gert. En standi vilji til að auka
veiðar í framtíðinni er nauðsyn-
legt að styrkja hrygningarstofn-
inn. Við hvetjum til að stjórnvöld
og hagsmunaaðilar vinni að því.“
Guðmundur Kristjánsson, for-
stjóri Brims, er hissa á tillögum
Hafró enda hafi veiðar á þorski
verið afar góðar á undanförnum
misserum. „ Verði tillögunum
fylgt þá gerist ekkert annað hvað
okkur varðar en að við verðum að
fækka starfsfólki en ég skil alls
ekki forsendur Hafró. Það veiðist
mun meira af þorski nú en fyrir
tuttugu árum síðan þegar ég hóf
afskipti af sjávarútvegi.“
albert@frettabladid.is
����������������������������������������������������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������
����������� ��������������������� ���������������������������
����������������������������� ������������������
��������������������������������������������������������
� ����������� �������� ������ ������ �������� ��� ����� �������
� ��������������� ������������
����������������
����������������������
���������������������������
��������������� ������
Suðurlandsbraut 22
Glerárgötu 24-26
Sími 540 1500
Fax 540 1505
www.lysing.is
Lysing_Tommustokkur_3x150mm
Er húsnæði á
teikniborðinu?
Ert flú a› huglei›a kaup á
atvinnuhúsnæ›i?
"Me› sérsni›inni rá›gjöf í bland vi›
persónulega fljónustu, höfum vi› hjá
L‡singu hjálpa› fyrirtækjum af öllum
stær›um og ger›um a› koma flaki yfir
sína starfsemi."
Sigurbjörg Leifsdóttir
Rá›gjafi, fyrirtækjasvi›
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Aflareglu
ekki breytt
Útgerðarmenn eru ánægðir að sjávarútvegsráðherra
hunsi ráðgjöf Hafró hvað þorskveiðar varðar. Slíkt
er þó nauðsyn eigi stofninn að stækka.
NÓG AF ÞORSKI Þorskveiði hefur verið góð
undanfarið og útgerðarmenn skilja ekki af
hverju Hafró vill lækka aflamark þorskveiða
úr 25 prósentum af heildarstofninum niður
í 16 prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
HVAÐ ER AFLAREGLA?
■ Langtímanýtingarstefna
Aflaregla eða aflamark fyrir þorskveiðar er
langtímanýtingarstefna ríkisstjórnarinnar frá
árinu 1996. Hún var mótuð bæði af fiski-
fræðingum og vísindamönnum en einnig
hagfræðingum og hagsmunaaðilum.
Þannig reiknaðist mönnum til að með
veiðum á 25 prósent þorskstofnsins hafi
það verið farsælt í bæði líffræðilegu og
efnahagslegu tilliti. Síðan þetta var ákveðið
hefur Hafró ekki lagt til aflamark fyrir þorsk
þar sem nýtingarstefnan hefur verið í gildi.
Gallinn er hins vegar sá að veiðar hafa
reglulega verið meira en sem nemur 25 pró-
sentum og þess vegna telur Hafró nauðsyn
að lækka prósentuna niður í 16 prósent eins
og staðan er í dag.
BRETLAND, AP John Prescott, vara-
forsætisráðherra Bretlands, segir
að andstæðingar Tonys Blair séu
með árásum á sig að hengja bak-
ara fyrir smið. Gagnrýnendurnir
séu í raun og veru að reyna að
koma höggi á forsætisráðherrann
umdeilda og segir Prescott sig
hafa verið gerðan að blóraböggli í
því samhengi.
Prescott sætir miklu ámæli
þessa dagana eftir að upp komst
um framhjáhald hans með ritara
sínum, Tracey Temple, og vegna
afhroðs þess sem Verkamanna-
flokkurinn galt í nýafstöðnum
sveitarstjórnarkosningum í Eng-
landi. Hann heldur því fram að
markmið gagnrýnenda sé í raun að
knýja á að Tony Blair segi af sér.
Prescott á í vök að verjast því
einnig hefur birting ljósmyndar af
honum að leika krikket, meðan
hann átti að vera að leysa Blair af
og stjórna landinu, reynst honum
óþægur ljár í þúfu.
Varaforsætisráðherrann hefur
viðurkennt ástarsamband sitt við
ritarann og segist fullur eftirsjár.
Þetta sé búið og gert og muni ekki
endurtaka sig: „Ég er enginn engill
og ekki heldur fordæmdur syndg-
ari.“ Hann segist staðráðinn í að
endurheimta traust kjósenda og
samstarfsmanna sinna í Verka-
mannaflokknum. - kþ
Breski varaforsætisráðherrann í vandræðum:
Ófús blóraböggull
1986
1996
2006
Þorskur Ýsa Ufsi
30
0
ÞÚ
S.
T
O
N
N
18
6
15
0*
50 40 95 60 50 80
*m
.v
. a
ð
af
la
m
ar
k
ve
rð
i l
æ
kk
að
í
16
p
ró
se
nt
KVÓTAR
Tillögur Hafrannsóknastofnunar