Fréttablaðið - 06.06.2006, Side 13
www.flugfelag.is | 4607080 • 8945390
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
32
98
8
06
/2
00
6
Þér er boðið á
Ísland - Danmörk í KA-heimilinu 6. júní
Flugfélag Íslands býður Akureyringum og nærsveitamönnum á handboltalandsleik
Íslendinga og Dana sem fram fer í KA-heimilinu á þriðjudagskvöld kl. 19.35.
Leikurinn er mikilvægur liður í lokaundirbúningi okkar manna fyrir átökin
gegn Svíum, þar sem barist verður um sæti á HM í Þýskalandi 2007.
Ókeypis aðgöngumiða má nálgast í Flugstöðinni á Akureyri.
Skemmtum okkur saman í KA-heimilinu
og styðjum strákana til sigurs.
landsleik
VARNARLIÐIÐ „Þótt umrædd gögn
lúti að íslenskum þegnum er ekki
endilega víst að þau falli undir
íslensk lög og ég satt best að segja
tel það ólíklegt,“ segir Sigrún
Jóhannesdóttir, forstjóri Persónu-
verndar.
Margir íslenskir starfsmenn
varnarliðsins hafa lýst yfir áhyggj-
um af því hvað gert verður við heil-
brigðisupplýsingar þær er varnar-
liðið hefur safnað saman um
starfsmenn sína um árabil en gögn-
in eru nafngreinanleg og stendur
til að taka þau með til Bandaríkj-
anna þegar starfsseminni lýkur í
september næstkomandi.
Friðþór Eydal, upplýsingafull-
trúi varnarliðsins, segir mjög
strangar reglur gilda um meðferð
slíkra upplýsinga og eru þær regl-
ur jafnvel harðari en gerist hér á
landi. „Öll gögnin fara beint í
skjalageymslu og er eytt sam-
kvæmt reglum að ákveðnum tíma
liðnum. Það gilda sömu reglur um
alla hermenn og borgaralega starfs-
menn hersins hvar sem er í heimin-
um og aðgengi að gögnunum er háð
afar ströngum skilyrðum. Þarna er
um ákveðið kerfi að ræða en allir
starfsmenn geta fengið afrit af
öllum gögnum sé þess óskað.“ - aöe
Heilsufarsupplýsingar íslenskra starfsmanna varnarliðsins til Bandaríkjanna:
Geymd um tíma og svo eytt
SÖMU REGLUR FYRIR ALLA Farið er með
allar heilsufarsupplýsingar á sama máta
hvort sem um er að ræða hermenn eða
borgaralega starfsmenn hersins.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
PALESTÍNA, AP. Undanfarna daga
hafa stórir hópar opinberra
starfsmanna palestínsku heima-
stjórnarinnar, þar á meðal vopn-
aðir lögreglumenn, farið í kröfu-
göngur til að knýja á um að þeir
fái greidd út laun. Um 100.000
manns, sem eru á launaskrá
heimastjórnarinnar, hafa ekki
fengið greidd laun í þrjá mánuði.
Hamas-stjórnin segist ekki
hafa bolmagn til að greiða öllum
starfsmönnum sínum laun vegna
þvingunaraðgerða alþjóðasamfé-
lagsins. Margir lögreglumann-
anna eru hliðhollir Fatah-hreyf-
ingunni og eykur þetta enn á
spennuna sem ríkir milli hennar
og stjórnarinnar. -kþ
Kreppa í Palestínu:
Launalausir í
þrjá mánuði
LANGÞREYTTIR PALESTÍNUMENN Lögreglu-
menn krefjast launa sinna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi mann til sex mánaða
fangelsis fyrir að hafa ráðist að
lögreglumanni og slegið hann
ítrekað með krepptum hnefa.
Málavextir eru þeir að lög-
reglumenn voru að aka manninum
á slysadeild eftir umferðarslys.
Vildi maðurinn fá sér að reykja og
brást við með barsmíðum þegar
honum var bent á að slíkt mætti
ekki í lögreglubílum. Taldi dómur-
inn að um sérlega ámælisverða
árás væri að ræða en þrír mánuðir
dómsins eru þó skilorðsbundnir.
- aöe
Mátti ekki fá sér að reykja:
Réðist á lög-
regluþjón
UMHVERFISMÁL, AP Umhverfissinn-
ar í London hengdu rúmlega 34
kílómetra af fötum á lengstu fata-
snúru heims á Trafalgar Square í
gær. Gjörningurinn var hluti af
alþjóðlegum aðgerðum á umhverf-
isdegi Sameinuðu þjóðanna, en
með honum var mótmælt hversu
háðir Bretar eru orkufrekum
þurrkurum. Samkvæmt Umhverf-
isstofnuninni myndu sparast um
12 milljarðar króna á ári ef hver
einasta breska fjölskylda hengdi
upp einn skammt af blautum
fötum á viku í stað þess að setja
þau í þurrkarann. Einnig myndi
losun koltvíoxíðs minnka um 500
þúsund tonn. -sgj
Umhverfisaðgerðir í London:
Heimsins
lengsta snúra
DÓMSTÓLAR Fyrrverandi ensku-
kennari við Menntaskólann á Ísa-
firði fær laun greidd frá 1. sept-
ember til 31. júlí. Héraðsdómur
Reykjavíkur dæmdi.
Kennaranum, sem er kona, hafði
verið sagt upp sem sviðsstjóra yfir
erlendum tungumálum. Hún höfð-
aði mál vegna ákvörðunar um brott-
vikninguna sem sögð var vegna
óvandvirkni í starfi og vanrækslu
við prófayfirferð í enskuáfanga og
þar með vanrækslu á starfsskyld-
um. Hún var einnig ekki heldur
talin hafa haft næga menntun.
Dómurinn sagði að skólastjóra
Menntaskólans hefði átt að vera
ljóst að enskukennarinn hefði ekki
næga menntun. Hún hefði átt að fá
að andmæla ákvörðun um áminn-
ingu. - gag
Menntaskólinn á Ísafirði:
Enskukennara
dæmt í vil
BRETLAND, AP Lögreglan í
Lundúnum skaut mann og handtók
annan í áhlaupi fyrir helgi. Atvikið
átti sér stað í austurhluta
borgarinnar þegar lögreglan
réðist inn í hús vegna ábendinga
um meinta hryðjuverkastarfsemi.
Maðurinn sem lögreglan skaut
særðist lítillega og var fluttur á
sjúkrahús, en hann er ekki talinn í
lífshættu. Hinn maðurinn, 23 ára
gamall, var handtekinn í aðgerð-
inni. Áhlaupið var gert í kjölfar
viðræðna öryggislögreglunnar og
lífefnafræðinga frá heilbrigðiseft-
irlitinu og var byggt á vísbending-
um sem lögreglan fékk um meint-
an undirbúning fyrir hryðjuverk.
-sgj
Lögregluaðgerð í London:
Skotinn við
handtöku