Fréttablaðið - 06.06.2006, Page 22

Fréttablaðið - 06.06.2006, Page 22
[ ] Ritstjóri Auður I. Ottesen 2 VIÐ RÆKTUM Lauftré á Íslandi Handhægur leiðarvís ir fyrir ræktendur 2 V IÐ R Æ K TU M Lauftré á Ísland i Sum arhúsið o g g arð urinn ehf Hún er komin! Önnur bókin í bókaflokknum „Við ræktum“ er komin út. Tryggðu þér eintak í næstu bókabúð eða í áskrift í síma 586 8005 Sumarhúsið og garðurinn ehf, Síðumúla 15, 108 Reykjavík, www.rit.is ��������������� �������������������� ��������������������������� ��������������������� ������������� ����������� ������ ������ � � � �� �� �� ��� � ����������������������������������� ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir Stór og mikil tré geta hindrað sjónvarpsbylgjur. Ef skilyrðin versna skyndilega þegar sumarið kemur má athuga hvort trén í kringum húsið séu orðin of mikil um sig. Það er til lítils að eiga besta flatskjáinn fyrir HM ef allir leikirnir fara fram í snjókomu. Jón Bergsson ehf. hefur nýlega hafið sölu á garðhýsum sem hægt er að opna upp á gátt á góðum sumardögum. Einnig má þar finna svokallaðar garð- kúlur yfir heita pottinn. „Við erum mjög stoltir af þessari vöru því þetta er jú alveg sérstak- lega gott fyrir okkar veðurfar,“ segir Jón Arnarsson hjá Jóni Bergs- syni ehf. en hann er barnabarn hins upphaflega eiganda sem stofnaði fyrirtækið á þriðja áratug síðustu aldar. Fyrirtækið hefur nýlega hafið sölu á skemmtilegum garðskálum úr plexígleri. „Skálinn sem slíkur er búinn til í tveimur til fjórum einingum sem renna hver undir aðra eins og harmónikka. Þá getur þú dregið frá þegar gott er veður og dregið fyrir þegar rignir,“ lýsir Jón og bætir við að húsin sé hægt að fá í mismunandi stærðum allt eftir víðáttu garðsins. „Við erum að tala um 4 til 8,5 metra á lengd og fjarlægðin frá húsvegg fram á verönd er 3 til 4,5 metrar en hæðin 2 til 2,5 metrar.“ Jón bætir við að hægt sé að fá gafla með hús- unum eða nota húsvegg sem gafl allt eftir þörfum. Þó skálarnir henti einstaklega vel til að hýsa heitan pott þarf hann þó ekki að vera til staðar. Húsið er hinn prýðilegasti garðskáli til að sitja við borð eða geyma í plöntur. Jón segir áhugann á skálunum mik- inn og viðbrögðin hafi ekki staðið á sér. Skálarnir kosta frá um 800 þús- und krónum en meira eftir því sem þeir eru stærri. Jón Bergsson ehf. býður einnig upp á svokallaðar garðkúlur sem eru frístandandi og geta verið hvar sem er í garðinum. Þær eru sérstak- lega hugsaðar yfir heita potta þó nota megi hana í hvað sem er. Mögu- leiki er að snúa kúlunni og beina opinu í þá átt sem sólin skín en mest er hægt að opna kúluna í 130 gráður en einnig er hægt að loka henni alveg. Jón segir þetta mjög góðan val- kost fyrir fólk, því þó það sé yndislegt að vera liggja í nuddpott í heitu vatni á heiðskíru vetrarkvöldi þá sé gott að hafa þann kost að verja sig fyrir veðri og vindum þegar svo ber undir. solveig@frettabladid.is Í góðu skjóli Garðkúlan svokallaða hentar vel yfir heita potta. Jón Arnarsson í einu af garðhýsunum sem hann er með til sölu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.