Fréttablaðið - 06.06.2006, Qupperneq 76
6. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR56
• ál / tré gluggar
• lágmarks viðhald
• falleg og nútímaleg hönnun
• aukin vörn gegn innbrotum
• 15 ára reynsla á Íslandi
• 10 ára ábyrgð á glugga / gleri
Gluggar - fjárfesting til framtíðar
Harpa Arnardóttir er mikill umhverfissinni og draumahús
hennar er ekki fyrir hana eina heldur öll börn jarðar. „Drauma-
húsnæðið er náttúrlega hús fyrir alla þar sem allir hefðu nóg að
bíta og brenna,“ segir Harpa. „Það væri fullt hús matar þar sem
allir fengju að sofa, borða og njóta virðingar. Það væri fallegt
heimili.“
Það ku vera búið að reisa þetta hús og öll búum við víst í
því. Við erum hins vegar langt frá þeim markmiðum að sitja öll
við sama borð. „Það á að vera hægt að koma því við á jörðinni
svo ætli jörðin sjálf sé ekki mitt draumahús,“ segir Harpa.
Harpa er á því að við eigum því miður langt í land með að
læra að elska og virða náttúruna. Hún er til að mynda ekki par
sátt við framgöngu íslenskra stjórnvalda og segir að í uppsigl-
ingu séu alvarlegustu mistök Íslandssögunnar. „Það má segja
það að þeir séu að vaða á skítugum skónum inn á heimili okkar
og það hefur aldrei þótt góður siður,“ segir Harpa að lokum.
DRAUMAHÚSIÐ MITT: HARPA ARNARDÓTTIR LEIKKONA
Móðir jörð er draumahúsið mitt
Harpa er ekki ánægð með framgöngu stjórnvalda innan veggja
draumahúss síns. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Hlíðaborg er leikskóli í Eskihlíð. Hann var byggður árið 1954 og voru
húsameistarar Þór Sandholt og Ágúst Pálsson. Upphaflega var byggingunni
ætlað að þjóna hverfinu sem grunnskóli, en það breyttist árið 1960 þegar
Hlíðaborg tók til starfa. Leikskólinn var stækkaður árið 1990 samkvæmt
teikningum Jóns Björnssonar.
Í Hlíðaborg er mikið lagt upp úr skapandi starfi og að hluta er unnið eftir
hugmyndafræði Reggio Emilia. Áhersla er lögð á markvissa málörvun,
ritmál, samskipti, sjálfstæði og sjálfsábyrgð barna. Einnig er unnið með
hreyfingu, hljóð, hlustun, einbeitingu og ryþma. Skólastýra er Heiða Björg
Scheving og í skólanum er 51 barn.
HLÍÐABORG
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN HJÖRTUR
Hinn 19. maí síðastliðinn var tekin
í notkun glæsileg ný útisundlaug á
Eskifirði. Íslenskir aðalverktakar
sáu um bygginguna og fram-
kvæmdir hófust síðastliðið sumar.
Um er að ræða 25 metra útisund-
laug, tvo heita potta, vaðlaug og
rennibraut. Öll aðstaða er til fyrir-
myndar, í aðalbyggingunni er bún-
ingsaðstaða, tveir líkamsræktar-
salir, aðstaða fyrir starfsfólk og
afgreiðsla ásamt búningsaðstöðu
fyrir fótboltavöll sem er við sund-
laugina.
Ný sundlaug
Eskfirðingar tóku í notkun nýja
sundlaug á dögunum.
Eskfirðingar verða án efa duglegir við
sundiðkun í sumar.
Fréttablaðs-
mótið verður
haldið í 10.
skipti á
Garðavelli á
Akranesi
föstudaginn
9. júní næstkomandi. Golfmótið er
ætlað starfsfólki fasteignasala og er
skipulagt af starfsmönnum með
brennandi áhuga á golfi. Metþátt-
taka er í mótinu og ekki verður tekið
við fleiri skráningum, en mótið telst
til stærstu viðburða starfsmanna
fasteignasala á ári hverju.
Mótið er þekkt fyrir vegleg verð-
laun en allir sem taka þátt í mótinu
fá vinning. Þá er öll umgjörð móts-
ins einnig til fyrirmyndar en fjöl-
margir styrktaraðilar leggja hönd á
plóg svo hægt sé að hafa mótið sem
veglegast.
Miðnæturgolf
fasteignasala
Hið árlega Fréttablaðsmót
verður haldið 9. júní.
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
14/4-
20/4
93
21/4-
27/4
169
28/4-
4/5
157
5/5-
11/5
186
12/5-
18/5
171
19/5-
25/5
147