Fréttablaðið - 06.06.2006, Síða 87
ÞÚ ÞARFT EKKI
AÐ VERA STÓR
TIL AÐ BJARGA
HEIMINUM!
SMS
LEIKU
R
Vi
nn
in
ga
r
ve
rð
a
af
he
nd
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
. Þ
ú
fæ
r
5.
m
ín
ti
l a
ð
sv
ar
a
sp
ur
ni
ng
u.9.
hver
vinnur!
Sendu SMS skeytið BTC LKF á 1900.
Þú gætir unnið!
Aðalvinningur er
DVD spilari og litli kjúllinn á DVD
Aukavinningar eru: Litli Kjúllinn á DVD • Pepsi kippur
Fullt af öðrum DVD myndum og margt fleira
�������
����������������
�����������������������������
�� ���������������������������
������ ���������
KVIKMYNDIR
[UMFJÖLLUN]
Ljúft líf farþeganna um borð í hinu
glæsilega og risavaxna skemmti-
ferðaskipi Poseidon breytist í mar-
tröð á fyrstu mínútum nýs árs þegar
kynngimögnuð flóðbylgja hvolfir
skipinu með þeim afleiðingum að
meirihluti prúðbúinna gesta ára-
mótafagnaðar um borð ferst á skelfi-
legan hátt. Þær örfáu og mjög svo
ólíku manneskjur sem halda lífi og
limum í veltingnum þurfa að snúa
bökum saman og rekja sig í gegnum
skipið sem breyst hefur í flókið
völundarhús á hvolfi. Tíminn er
naumur þar sem skipið fyllist af
vatni þar sem það marar á miðju Atl-
antshafi með skrokkinn upp í loftið
og mun óhjákvæmilega hverfa í hyl-
dýpið með manni og mús.
Hinn mjög svo mistæki leikstjóri
Wolfgang Petersen skilar hér góðu
dagsverki og Poseidon er hörkufín
stórslysamynd sem stendur undir
öllum væntingum sem hægt er að
gera til mynda af þessu tagi. Magn-
aðar tæknibrellur gera skipsskað-
ann mjög tilkomumikinn og eins
stórslysamyndalögmálið gerir ráð
fyrir fáum við að horfa á nokkur
hundruð saklausar hræður farast á
skelfilegan hátt, drukkna, kremjast
undir braki sem er á fleygiferð,
brenna og stikna þegar eldur brýst
út og rafmagnskaplar dingla yfir
brimsöltu og blóðlituðu vatninu. Þeir
sem lifa djöfulganginn hafa síðan
ekkert ráðrúm til þess að gráta
Björn bónda og alla hina. Líf þeirra
hangir enn á bláþræði og samkvæmt
áðurnefndu lögmáli munu einhver
þeirra geispa golunni áður en yfir
líkur.
Petersen tekst að halda spenn-
unni gangandi alveg frá því skipinu
hvolfir og keyrslan er slík að áhorf-
endum gefst varla tækifæri til þess
að draga andann eða hugsa um annað
en lífsbaráttu aðalpersónanna. Pos-
eidon er orðin ein allsherjar dauða-
gildra og hvert áfallið dynur á eftir-
lifendunum með svo reglulegu
millibili að það er ekki annað hægt
en að gleyma sér algerlega og verða
meðvirkur blessuðu fólkinu sem
virðist sér enga björg geta veitt. Það
er sérstaklega vel til fundið hjá Pet-
ersen að eyða ekki of miklum tíma í
að kynna lykilpersónurnar til leiks
áður en ósköpin dynja yfir. Sá hvim-
leiði vani gerir það oftar en ekki að
verkum að myndir í ætt við þessa
verða full langar og ekki síður lang-
dregnar. Petersen lætur ósköpin
dynja yfir við fyrsta tækifæri og
tekst því að skila af sér hörkuspenn-
andi og fullnægjandi 99 mínútna
hasarpakka. Þrátt fyrir hraðsuðuna
tekst honum samt að byggja upp
samúð með persónunum og það er
ekki langt liðið á myndinna þegar
manni fer að þykja vænt um blessað
fólkið og gera sér vonir að sem flest-
ir muni aftur líta dagsins ljós.
Gamla kempan Kurt Russell leið-
ir hópinn og skilar sínu vel að vanda
enda traustur og reyndur hasar-
myndajaxl með mannlega taug.
Heiðursmaðurinn og eðalleikarinn
Richard Dreyfuss ber hins vegar af
öllum öðrum og lyftir leikhópnum á
æðra plan í hlutverki samkynhneigðs
og auðugs arkitekts sem er í sjálfs-
morðshugleiðingum þar til hann
horfist í augu við dauðann í flóð-
bylgjunni og gerir í framhaldinu allt
til að bjarga sjálfum sér og öðrum.
Poseidon er ánægjuleg tilbreyt-
ing frá risastórum ofurhetjumynd-
um, seigdrepandi Da Vinci skrímsl-
inu og framhaldsmyndum sem munu
drottna yfir bíósumrinu árið 2006.
Allir í bátana og ekki missa af Pos-
eidon! Þórarinn Þórarinsson
Pottþéttur hasarpakki
POSEIDON
LEIKSTJÓRI: WOLFGANG PETERSEN
Aðalhlutverk: Kurt Russell, Josh Lucas og
Richard Dreyfuss
Niðurstaða: Poseidon er ferskur andblær fyrir
þá sem sofnuðu yfiir The Da Vinci Code og eru
orðnir leiðir á ofurhetjumyndunum sem munu
drottna yfir bíósumrinu.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JÚNÍ
3 4 5 6 7 8 9
Þriðjudagur
■ ■ LEIKLIST
14.00 Sýning Brúðubílsins á brúðu-
leikritinu Duddurnar hans Lilla í
Árbæjarsafni.
20.00 Unglingadeild Leikfélags
Kópavogs sýnir leikritið Dans eftir
Hrund Ólafsdóttur sem jafnframt leik-
stýrir verkinu. Aðstoðarleikstjóri er Arnar
Ingvarsson.
20.00 Leikkonan Edda Björgvins-
dóttir sýnir harmskoplega einleikinn
Alveg brilljant skilnað á Vopnafirði.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.00 Bandaríski sálgreinirinn Dr.
Alan Roland fjallar um sálgreiningu
í ólíkum menningarheimum í Odda,
stofu 101.
■ ■ DANSLIST
20.00 Tangókvöld í Iðnó.
Leiðbeinendur á staðnum og
Tangósveit lýðveldisins stígur á svið
kl. 21.