Fréttablaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 88
32 6. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is HM-LEIKURINN Taktu þátt í Stóra-HM leiknum á www.icelandair.is og þú gætir komist á leik á HM.ÞÝSKALAND 14 SINNUM Í VIKU Í SUMAR ÍS LE N S K A A U G LÝ S IN G A S TO FA N /S IA .IS I C E 3 2 9 2 8 0 5 /2 0 0 6 Ekki ber saman sögunum sem dagblöð á Spáni og Englandi prenta þessa dagana. El Mundo Deportivo, blað sem gefið er út í Barcelona, fullyrti í gær að Spánar- og Evrópumeist- ararnir hefðu þegar boðið Eiði Smára Guðjohnsen samning sem hljóðar upp á 3,2 milljónir evra á ári. Eiður Smári er reyndar staddur á Spáni þessa dagana en hann dvelst þar í sumarfríi og er ekki nálægt Katalóníuhéraði og er því ekki í neinum viðræðum við nein lið um þessar mundir. Einnig hefur heyrst af áhuga Real Madrid á landsliðsfyrirliðanum, hugsanlega í skiptum fyrir Roberto Carlos, en nánast engar líkur eru taldar á því að úr því verði. The Daily Mail fullyrðir aftur á móti að Sir Alex Ferguson sé staðráðinn í því að klófesta Eið, sem talinn er hafa meiri áhuga á því að vera áfram í ensku úrvals- deildinni en að flytja búferlum til Spánar. Blaðamaður The Daily Mail sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að hann hefði mjög áreiðanlegar heimildir fyrir þessu. Breska blaðið segir að kaupverðið sé um átta milljónir punda og að Ferguson sjái Eið fyrir sér sem framliggjandi miðjumann. Hann myndi passa vel í stöðu Paul Scholes, sem á við erfiðan augnsjúk- dóm að stríða. Eiður Smári mun væntanlega sætta sig við að yfirgefa herbúðir Englandsmeistaranna eftir farsælan feril hjá félaginu. Eggert Skúlason, upplýsingafulltrúi Eiðs Smára, tjáði Fréttablaðinu það í gær að Eiður vonaðist til þess að málin myndu skýrast í þessari viku, en engar formlegar viðræður hefðu átt sér stað á milli neinna liða og Chelsea. Þrátt fyrir ítrekað- ar tilraunir náðist ekki í Arnór Guðjohnsen, föður og umboðsmann Eiðs Smára, í gær . EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN: STANSLAUSIR ORÐRÓMAR UM FRAMTÍÐ KAPPANS HALDA ÁFRAM Í fríi á Spáni í sögunni endalausu > Guðmundur varði titilinn Guðmundur Stephensen varði um helg- ina titil sinn í einliðaleik karla á Norður- Evrópumótinu í borðtennis. Guðmundur bar sigurorð af Lukas Ryden frá Svíþjóð 4-1 í úrslitaleik sem fram fór í TBR-hús- inu. Í undanúrslitum sigraði Guðmundur hinn danska Christoffer Petersen örugg- lega. Guðmundur og Ryden voru hins vegar samherjar í tvíliðaleiknum en duttu út í undanúrslitum. Í einliðaleik kvenna var það Lina Misikonyte frá Litháen sem vann gullið. Stelpurnar úr leik Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði um helgina fyrir Makedóníu 27- 24 í seinni leik liðanna í undankeppni fyrir EM. Leikið var ytra en Makedónía vann einnig leikinn hér á landi og sam- tals átta marka sigur í einvíginu. Íslensku stelpurnar komast því ekki á EM. FÓTBOLTI Ásthildur Helgadóttir skorað annað mark sænska liðsins Malmö FF sem vann Bälinge 2-0 á útivelli á sunnudaginn. Nú er sjö umferðum lokið í deildinni og er Malmö í fjórða sætinu með ellefu stig en Umeå trjónir á toppi deild- arinnar með nítján stig. Dóra Stefánsdóttir leikur einnig með Malmö. Erla Steina Arnardóttir og lið hennar Mall- backen tapaði fyrir Gautaborg og er í tíunda sæti deildarinnar með sex stig. - egm Sænski kvennaboltinn: Eitt mark hjá Ásthildi SKORAÐI Ásthildur Helgadóttir skoraði síðara mark Malmö. FÓTBOLTI Leikur Grindavíkur og ÍBV er ekki á leiðinni í sögubæk- urnar fyrir skemmtanagildi en baráttan var í hávegum höfð á Grindavíkurvelli í gær. Jóhann Þórhallsson fékk bestu færi fyrri hálfleiks þegar hann slapp einn í gegn en Hrafn Davíðsson sá við honum, auk þess sem Jóhann átti svo skot í stöngina. Leikurinn var í leiðinlegri kantinum og baráttan einkenndi leikmenn sem gerðu sitt besta í að skemmta áhorfendum, en fórst verkefnið illa úr hendi. Grindvík- ingar voru meira með boltann en gekk illa að finna sér almennileg færi þar sem varnarmúr ÍBV var þéttur fyrir. Hjá Eyjamönnum var það einna helst nýjasti liðsmaðurinn, danski framherjinn Ulrik Drost, sem sýndi góða takta en hann var mjög sprækur í framlínunni og ollu usla í Grindavíkurvörninni. Þrátt fyrir að vera kvótabær mikill var sóknarleikur Vest- mannaeyinga alls ekki upp á marga fiska. Síðari hálfleikur var svipaður og sá fyrri, einkenndist af bar- áttu og leiðinlegri knattspyrnu. Bæði lið fengu þó dauðafæri en varð ekki til happs að skora og steindautt jafntefli var niðurstað- an í Grindavík. Það bar helst á góma í daufum síðari hálfleik að Hrafn bjargaði Eyjamönnum vel í þrígang. „Það er oft sagt um makalausa leiki að þeir séu leiðinlegir en hérna var mikið undir og þá fara leikirnir oft á þennan veg. Við lögðum okkur virkilega fram og áttum klárlega skilið eitt stig út úr leiknum,“ sagði Guðlaugur Baldursson, þjálfari ÍBV, eftir leikinn. „Ég var ánægður með leik minna manna og vinnufram- lagið var til fyrirmyndar. Það er frábært að fá stig í Grindavík eftir þrjá tapleiki í röð og það sýnir að við erum hvergi nærri hættir. Við þurfum bara smá sjáfstraust og það er erfitt þegar maður lendir í taphrinu, en þá er bara að setja kassann út og berj- ast áfram fyrir stigunum,“ sagði Guðlaugur. - hþh Grindavík og íBV skildu jöfn í bragðdaufum leik suður með sjó: Steindautt og markalaust í Grindavík FÓTBOLTI Skagamenn eru enn án stiga í botnsæti Landsbankadeild- ar karla eftir 0-1 tap fyrir Fylki á heimavelli sínum á Akranesi í gær. Páll Einarsson skoraði eina mark leiksins með skalla eftir hornspyrnu á 20. mínútu leiksins. Fylkismenn höfðu öll tök á leikn- um í fyrri hálfleik og héldu síðan út gegn stórsókn Skagamanna í seinni hálfleik. „Það er lítið hægt að segja, það dettur bara ekkert með okkur,“ sagði svekktur Ólafur Þórðarson, þjálfari Skagamanna, eftir leik- inn. „Ef við ætlum ekki að falla þá verða hlutirnir að fara að detta. Fylkismennirnir skora upp úr því að við mætum ekki nægilega stemmdir til leiks. Við vinnum ágætlega inn í leikinn og mér fannst við eiga seinni hálfleikinn gjörsamlega. Sjálfstraustið er nánast horfið úr liðinu og það vita allir sem hafa upplifað að lenda í svona hrinu að þá verða allir hlut- ir erfiðir. Það þurfa allir að leggja allt í sölurnar. Það er eina leiðin að menn snúi bökum saman og reyni að vinna sig út úr þessu. Það þýðir ekkert að gefast upp því þá gætum við alveg klárað þessa deild strax og hætt,“ sagði Ólafur að lokum. Bjarki Gunnlaugsson spilaði sinn fyrsta leik með Skagamönn- um og var í byrjunarliðinu ásamt þeim Arnari bróður sínum og þeim Bjarna og Þórði Guðjónssonum. Það entist þó ekki lengi því eftir tuttugu mínútna leik var Þórður farinn út af meiddur. Það ætlar ekki að ganga vel hjá honum að snúa aftur í íslenska boltann. Enn á ný voru það meiðsli aftan í læri sem voru að hrjá hann. Fylkismenn voru greinilega mættir upp á Skaga til að sækja öll þrjú stigin í boði. Þeir mættu með sókndjarft lið og voru fljótir að taka völdin á miðjunni. Ólafur Stígsson var akkerið á miðjunni sem Skagamenn áttu ekki svar við. Fylkispressan jókst stöðugt og það fór síðan þannig að Páll Ein- arsson kom Fylki yfir með skalla eftir hornspyrnu Peter Gravesen. Skömmu áður hafði Christian Christiansen átti skot í slána. Skagamenn áttu góða spretti í seinni hálfleik en tókst ekki að skora. Leikur liðsins var þó allt annar og betri og munaði þar miklu að Bjarki Gunnlaugsson var kominn í gang og farinn að búa til góð færi fyrir bæði sig og aðra Skagamenn. Sókn Skagamanna var stöðug allan hálfleikinn, Fylkis- menn duttu aftur á völlinni og beittu skyndisóknum en gátu vissulega talist heppnir að Skaga- menn náðu ekki að jafna leikinn. Skyndisóknir Árbæinga gátu reyndar líka skilað mörkum en svo fór að mark Páls Einarssonar var það sem skildi á milli liðanna. „Þetta var sigur og það eru víst mörkin sem telja í þessu,“ sagði hetja Fylkismanna, Páll Einars- son. „Við mættum grimmir og pressuðum þá hátt á vellinum. Fyrri hálfleikur var mjög góður hjá okkur og við sköpuðum okkur mörg færi en þetta var síðan barn- ingur í seinni hálfleik þar sem þeir komu grimmir.“ Ólafur Stígsson lék sinn fyrsta heila leik á tímabilinu og var sátt- ur í leikslok. „Þetta var snilld enda ekki oft sem maður vinnur hérna uppi á Skaga. Ég er mjög þreyttur en þetta er bara það sem þarf, að komast í smá leikæfingu,“ sagði Ólafur. - óój Svart varð enn svartara hjá ÍA Skagamenn eru enn án stiga í Landsbankadeildinni eftir fimmta tapið í röð og nú á heimavelli gegn Fylki, 1-0. Það er ljóst að einhverra stórtækra aðgerða er þörf á Akranesi. ÞUNGT HUGSI Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA, hefur um nóg að hugsa þessa dagana enda ÍA tapað fimm leikjum í röð. Hann fór þó ekki að dæmi forsætisráðherra í gær og sagði af sér.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.