Fréttablaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 70
Jón Alfreðsson er fæddur og uppalinn í Kollafirði í Strandasýslu. Hann stundaði
nám við Samvinnuskólann á Bif-
röst en um sama leyti hófst ferill
hans hjá kaupfélaginu sem nú
spannar 45 ár. „Eina vinnan sem
ég hef sótt um á ævinni var þegar
ég sótti um vinnu á síldarplaninu á
Siglufirði árið 1960 þegar ég var í
sumarfríi frá skólaönnum,“ segir
Jón og lítur upp úr pappírum sem
þekja borð kaupfélagsstjórans.
„Það fór þó þannig að ég fékk
aldrei að sinna þessu starfi sem ég
sótti um því þegar ég kom með
rútunni tilbúinn í slorið þá tók
Björn Stefánsson, kaupfélagsstjóri
á Siglufirði, á móti mér og sagðist
vanta mann í snúninga við að
afgreiða báta og annað því um líkt.
Hann sagði að ég fengi minna
útborgað en á planinu ef mikið
væri af síld en ef síldin væri léleg
þá væri þetta engu verra. Sérstak-
lega í ljósi þess að mér væri hollt
að öðlast smá reynslu í verslunar-
rekstri þar sem ég væri í Sam-
vinnuskólanum. Ég samþykkti
þetta umsvifalaust. Eftir allt
saman reyndist það líka hyggilegt
þar sem síldin brást þessa vertíð.“
Skólaveturinn þar á eftir varð
svo Þorgeir Guðmundsson, kaup-
félagsstjóri á Hólmavík, fyrri til
að ráða Jón til sín. Eftir sjö ára
samvinnu lét Þorgeir svo af starfi
og Árni Jóhannsson tók við af
honum en einungis til eins árs en
þá var Jón ráðinn í hans stað.
Rækjan kom með nýjum kaupfé-
lagsstjóra
„Þetta var þó svolítið erfið ákvörð-
un; hvort ég ætti að láta slag standa
þegar eftir því var sóst að ég tæki
við þessu starfi,“ segir Jón meðan
hugurinn reikar til upphafsára
kaupfélagsstjórans. „Þetta voru
hafísár og mikil kreppa í landbún-
aði og töluvert um það að kaupfé-
lög hættu rekstri á þessum árum.
Einnig hafði þorskurinn nýlega
horfið úr Húnaflóa sem gerði
öllum erfitt fyrir, en fljótlega eftir
að ég tók við hófst rækjuveiði í
Húnaflóanum. Völd kaupfélags-
stjórans ná þó ekki svo langt að ég
geti þakkað mér það að flóinn fyllt-
ist af rækju,“ segir hann og hlær
við. „En ég hef aldrei nagað mig í
handarbökin þó oft hafi staðið styr
um mig eins og gengur og gerist
með menn í ábyrgðarstöðum.“
Er óhætt að bæta við barni?
„Það voru milli fimmtíu og sextíu
kaupfélög í landinu þegar ég byrj-
aði en þau eru innan við tíu núna
og í raun er ekki nema eitt eftir
sem virkar eftir gamla laginu og
það er Kaupfélag Skagfirðinga
sem er geysilega mikið veldi. En
Kaupfélagið hér var með verslun á
Hólmavík og Drangsnesi þegar ég
byrjaði og enn erum við með þær í
dag, auk þess sem við erum með
útibú á Norðurfirði. En þó er því
ekki að neita að við höfum dregið
nokkuð úr umsvifum okkar líkt og
önnur kaupfélög. Áður rákum við
sláturhús, frystihús á Hólmavík
og annað á Drangsnesi, vorum
umboðsaðilar fyrir Eimskip,
Skipaútgerð ríkisins og Samvinnu-
tryggingar sem þá voru og svo
sáum við eins og önnur kaupfélög
um allar rekstrarvörur í landbún-
aði og afurðasölu.“
Kaupfélagsstjórinn hafði því
marga þræði í hendi sér svo ábyrgð
hans var mikil í samfélaginu og
þótti mörgum sem örlög þeirra
væru undir þeim komin. „Saga af
Langanesinu hermir að bændur hafi
borið það undir kaupfélagsstjórann
hvort óhætt væri að bæta við barni
eins og staðan væri hjá þeim. Ég
held þó að sögur sem þessar séu
heldur ýktar að minnsta kosti var
svona lagað aldrei borið undir mig,“
segir hann og brosir við.
Erfiðasta ákvörðunin
En þegar illa árar er það ekki
tekið út með sældinni að vera
kaupfélagsstjóri og hafa þá marg-
ir sveitungarnir horn í síðu hans.
Eins segir Jón að oft vilji menn
eiga við hann erindi þegar hann
lætur sjá sig á mannamótum.
„Reyndar er kona mín, Svanhild-
ur Vilhjálmsdóttir nokkuð iðin
við það að benda mönnum kurt-
eislega á að skrifstofan sé opin
frá átta til fjögur“ segir Jón kank-
vís. Eins stendur kaupfélags-
stjórinn oft frammi fyrir erfið-
um ákvörðunum en Jón er
handviss um að hann hafi staðist
prófið þegar hans beið erfiðasta
ákvörðun ferilsins.
„Árið 2000 var Hólmadrangur í
meirihluta eign kaupfélagsins en
hann var með rækjuverksmiðju á
Hólmavík og Drangsnesi og ég
stóð þá frammi fyrir þeirri ákvörð-
un hvort við ættum að sameinast
Útgerðarfélagi Akureyrar eða
ekki. Ég ákvað að við skyldum
sameinast og þegar ég horfi til
baka sé ég að þessi erfiðasta
ákvörðun sem ég hef þurft að taka
var jafnframt sú besta sem ég hef
tekið. Í dag er Hólmadrangur í
eigu okkar og Fisk Seafood sem
síðan er að mestu í eigu Kaupfé-
lags Skagfirðinga. Verksmiðjan
sem er með þeim bestu á landinu
er hér á Hólmavík og blússandi
gangur á henni og engan bilbug á
okkur að finna enda hefur sam-
starfið við Fisk Seafood gengið
afar vel.“
Afgreiðir brennivín yfir borðið
Bæði hefur kaupfélögum og rækju-
verksmiðjum fækkað ört undan-
farin ár og áratugi en þetta eru þau
egg sem Jón hefur í körfunni. Til að
koma við kaunin á kaupfélagsstjór-
anum var hann spurður hvort
honum þætti sem örlögin hafi vegið
að honum með þessari þróun eða
hann veðjað á rangan hest? „Nei,
því þó ég sé í raun íhaldssamur
maður þá er ég einnig þeim hæfi-
leikum gæddur að geta tekið erfið-
ar ákvarðanir og tekist á við breyt-
ingar. Ég lít aðeins þannig á að
þetta sé sú þróun sem ég verð að
takast á við. Og ég veit það að kaup-
félögin verða eflaust aldrei það
sem þau voru en þó bærist sá
draumur innra með mér að ein-
hvern tímann muni lýðurinn rísa
upp og fjármagnið muni ekki vera
jafn allsráðandi í öllum atvinnu-
rekstri eins og nú er. Margir hafa
sagt að enginn viti hver eigi kaup-
félögin en í mínum huga er það
alveg skýrt að þau eru í eigu íbú-
anna á þeim stað þar sem þau eru
og hafa skyldur gagnvart þeim en
ekki aðeins gagnvart kröfunni um
skýlausan hagnað.“
Eflaust er kaupfélagsstjóri
aldrei annað en kaupfélagsstjóri í
augum samborgara sinna í litlu
samfélagi enda fylgir sá titill
jafnan nafni Jóns þegar á hann er
minnst í daglegu tali. En þó er svo
komið að sveitungar þurfa að
venjast honum í öðrum hlutverk-
um því hann er farinn að afgreiða
í ríkinu á Hólmavík sem þó er
aðeins opið klukkustund á dag.
Blaðamaður verður því að sleppa
hendinni af kaupfélagsstjóranum
sem þarf að fara að afgreiða í rík-
inu.
Þar er afgreitt yfir borðið eins
og áður tíðkaðist og fer það þess-
um íhaldssama Strandamanni að
vonum vel. ■
10. júní 2006 LAUGARDAGUR46
Komið við kaunin á
kaupfélagsstjóranum
Kaupfélögum og þar
með kaupfélagsstjórum
hefur farið hraðfækk-
andi undanfarin ár.
Jón Alfreðsson situr
hins vegar sem fastast
líkt og hann hefur
gert í tæp fjörutíu ár.
Jón Sigurður Eyjólfs-
son ræddi við hann og
komst að því að kaup-
félagsstjórar hafa verið
miklir örlagavaldar í
lífi Strandamannsins,
sem sótti um á síldar-
planinu á Siglufirði
en endaði sem kaupfé-
lagsstjóri Kaupfélags
Steingrímsfjarðar í
Hólmavík.
JÓN ALFREÐSSON KAUPFÉLAGSSTJÓRI
Það eru ekki margir kaupfélagsstjórar
eftir á landinu og enginn þeirra hefur
verið jafn lengi í brúnni og Jón Alfreðs-
son í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar.
Hann lætur engan bilbug á sér finna
þótt flokkurinn sé þunnskipaðri.
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR