Fréttablaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 89
LAUGARDAGUR 10. júní 2006
Þú missir aldrei
af HM marki
Fáðu frítt prufumark: Sendu HMPRUFA á 1900.
Skráðu þig: Sendu HM2006 á 1900.
Öll HM mörkin á 990 kr.
Smelltu þér á www.ogvodafone.is,
komdu í næstu verslun Og Vodafone eða hringdu í 1414 og fáðu nánari upplýsingar.
NBA Dallas Mavericks hefur tekið
forystu í einvíginu við Miami Heat
í úrslitakeppni NBA-körfuboltans
eftir að hafa unnið 90-80 sigur á
heimavelli sínum í fyrrinótt. Það
var hinn kynngimagnaði Jason
Terry sem sló öllum við og var
maðurinn á bak við góðan sigur
Dallas, en hann skoraði 32 stig og
hitti úr þrettán af átján skotum
sínum.
„Þetta var bara einn leikur og
engin sería vinnst á einum leik,“
sagði Terry brattur eftir leikinn
og Avery Johnson, þjálfari Dallas,
var sömuleiðis með báða fætur á
jörðinni. „Þetta var bara einn leik-
ur og þó við séum vissulega
ánægðir að klára hann vitum við
að bæði liðin eiga mikið inni. Það á
mikið eftir að gerast áður en þetta
einvígi klárast.“
Miami byrjaði mun betur í
leiknum og hafði yfir allt þar til á
síðustu sekúndu fyrri hálfleiksins
þegar Dirk Nowitzki kom Dallas
yfir með skoti um leið og flautan
gall. Nowitzki náði sér ekki á strik
í sóknarleiknum frekar en Josh
Howard, en þeir félagar hittu
aðeins úr 7 af 28 skotum sínum.
Dwyane Wade er enn ekki
búinn að ná sér af vírus sem hann
fékk á dögunum, en hann var engu
að síður stigahæstur í liði Miami
með 28 stig og tvö þeirra komu
eftir tilþrif leiksins þar sem hann
tróð boltanum með tilþrifum yfir
Erick Dampier. Shaquille O´Neal
skoraði 17 stig og hitti mjög vel
utan af velli - en var aftur skelfi-
legur á vítalínunni þar sem hann
hitti úr einu af níu skotum.
- hþh
Úrslitakeppnin í NBA-körfuboltanum er farin af stað:
Dallas tekur forystu
BARÁTTAN Í ALGLEYMINGI Gary Payton, leikmaður Miami, er hér í baráttu við Jason Terry í
fyrrinótt. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Það landslið á HM sem á
sér flesta fylgismenn hér á landi
er án nokkurs vafa England. Í dag
hefst keppni í B-riðli þar sem
Englendingar munu kljást við
Paragvæa og þurfa þeir að treysta
á aðra leikmenn en Wayne Rooney
en hann er ekki tilbúinn vegna
meiðsla. Þó er búist við að hann
geti komið eitthvað við sögu í
riðlakepninni. Í framlínunni í dag
mun því Michael Owen vera í
aðalhlutverki ásamt hinum sjóð-
heita Peter Crouch, sem vonast til
að fá tækifæri til að stíga hinn
magnaða vélmennadans.
Föst leikatriði verða hættulegt
vopn hjá enska liðinu en turnin-
um Crouch og varnarjaxlinum
John Terry ætti ekki að leiðast
að fá fyrirgjafir frá David Beck-
ham. Þá eru miðjumennirnir
Frank Lampard og Steven Gerr-
ard í heimsklassa en sá síðar-
nefndi mun spila í dag þrátt fyrir
að hafa verið nokkuð tæpur fyrir
leikinn. „Bakið á mér hefur verið
til vandræða en það er mikil til-
hlökkun í mér fyrir mótið og það
þarf eitthvað mikið til að ég verði
ekki með í fyrsta leiknum okkar á
mótinu,“ sagði Gerrard.
England og Paragvæ hafa tvisv-
ar sinnum áður mæst og í bæði
skiptin vann enska liðið öruggan
sigur. „Við höfum skoðað enska
liðið ítarlega enda erum við að
fara að mæta einu sigurstrangleg-
asta liði keppninnar. Ég vonast til
að mínir menn nái fram fullri ein-
beitingu og þá tel ég að við getum
komið Englendingum í opna
skjöldu,“ sagði Anibal Ruiz, þjálf-
ari Paragvæ. Helsta stjarna liðs-
ins er Roque Santa Cruz, sóknar-
maður hjá Bayern München.
Frændur okkar Svíar eru
einnig í B-riðli en þeir halda uppi
merki Norðurlandanna. Þeir
mæta í dag Trínidad og Tóbagó,
sem er að keppa í úrslitum í fyrsta
sinn. Sóknarlína Svíþjóðar er ein
sú skemmtilegasta á mótinu en
liðið skartar Zlatan Ibrahimovic,
leikmanni Juventus, og Henrik
Larsson, sem fór á kostum með
Barcelona í úrslitaleik Meistara-
deildarinnar fyrir skömmu.
Í kvöld hefst síðan keppni í C-
riðli þegar Argentína leikur gegn
Fílabeinsströndinni. Argentína
hefur valinn mann í hverri stöðu
og er þjóðinni spáð sigri í keppn-
inni af mörgum, þar á meðal Eiði
Smára Guðjohnsen, landsliðsfyr-
irliða Íslands. Fílabeinsströndin
er óskrifað blað en hefur þó Didi-
er Drogba í sínum röðum en hann
kann ýmislegt fyrir sér í íþrótt-
inni. - egm
Enska landsliðið á sinn fyrsta leik á HM í dag:
Stefnt á sigur án
Wayne Rooney
ÆFING Wayne Rooney hefur æft með Englandi en spilar þó ekki með í dag. Hér er hann
ásamt félaga sínum Gary Neville. NORDICPHOTOS/AFP