Fréttablaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 10. júní 2006 13 Ert þú að tapa réttindum Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðfélögum yfirlit um iðgjaldagreiðslur á árinu 2005: en dregið hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóðum, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið allra fyrsta. Við vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta á að dýrmæt réttindi tapist. Þar á meðal má nefna: Ell i l ífeyri Makalífeyri Barnalífeyri Örorkulífeyri Fáir þú ekki yfirlit, Gættu réttar þíns Gildi - Lífeyrissjóður Lífeyrissjóður Austurlands Lífeyrissjóður Bolungarvíkur Lífeyrissjóður bænda Lífeyrissjóður Norðurlands Lífeyrissjóður Rangæinga Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga Lífeyrissjóður Suðurlands Lífeyrissjóðurinn Lífiðn Lífeyrissjóður verkfræðinga Lífeyrissjóður Vestfirðinga Lífeyrissjóður Vestmannaeyja Lífeyrissjóður Vesturlands Sameinaði lífeyrissjóðurinn Samvinnulífeyrissjóðurinn Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda Lífeyrir Til þess að iðgjöld launamanna njóti ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota, skulu launamenn, innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits og/eða birtingu auglýsingar, ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launamaður innan sömu tímamarka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launamanni er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna. MENNTAMÁL Í dag verða 340 kandídatar brautskráðir frá Háskólanum á Akureyri. Félags- vísinda- og lagadeild brautskráir í fyrsta skipti nemendur með BA- próf í fjölmiðlafræði, samfélags- og hagþróunarfræði, sálfræði og lögfræði. Hefur námsframboð í Háskólanum verið aukið. Fjölmiðlafræði, samfélags- og hagþróunarfræði hafa aldrei áður verið kennd sem sérstakar grein- ar til BA-prófs hérlendis. Alls útskrifast 59 nemendur úr heilbrigðisdeild, 45 úr félagsvís- inda- og lagadeild, 151 úr kennara- deild og 87 úr viðskipta- og raun- vísindadeild. - hs Háskólinn á Akureyri: Brautskráir 340 kandídata ÞJÓÐGARÐUR „Við erum þarna að bæta aðstöðu fyrir fatlaða veiði- menn í hjólastólum með tilheyr- andi pöllum og breiðum stígum og öll framkvæmdin er afturkræf með tilliti til náttúruverndar,“ segir Sigurður K. Oddsson, þjóð- garðsvörður á Þingvöllum. Athugasemdir hafa verið gerð- ar við framkvæmdirnar við norðurenda vatnsins, í landi Vatns- kots, en til stendur að opna aðstöð- una um miðjan þennan mánuð. Jónína Melsteð, sem á ættir sínar að rekja til Vatnskots, telur að verið sé að fremja náttúruspjöll á landinu. Hægt sé að útbúa aðstöðu fyrir fatlað fólk í hjólastólum án þess að ganga eins langt og verið hefur gert. „Þarna eru fornminjar sem virðist ekkert tillit tekið til auk þess sem svæðið er friðað. Þessi framkvæmd er vanhugsuð og lýti á umhverfinu öllu.“ Sigurður fullyrðir að fyllstu varúðar hafi verið gætt við fram- kvæmdina og neitar því að ógæti- lega hafi verið farið um. Hann bendir til að mynda á að engin steypa sé notuð, allir pallar hvíli á steinum og ekki sé hægt að tala um að rask hafi orðið á svæðinu né þeim fornminjum sem þar eru. Þingvellir voru samþykktir á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóð- anna 2. júlí 2004. - aöe Verið að setja upp aðstöðu fyrir fatlaða í hjólastólum við Þingvallavatn: Framkvæmdin gagnrýnd UMHVERFISRASK Jónína Melsteð gagnrýnir hversu umfangsmiklar framkvæmdirnir við lagningu stíga og bryggju fyrir fatlaða við Þingvallavatn hafi verið. MYND/SÍMON H. ÍVARSSON Akureyri Fimm gistu fangageymslur á Akureyri aðfaranótt fimmtudags eftir múgæsingu á Ráðhústorginu. Fólkið veittist að fjórum lögreglumönnum sem bar að garði en þeir eru að mestu ómeiddir. Lítilræði fannst af fíkniefnum en fólkið verður yfirheyrt í dag. Einn maður gisti fangageymslur eftir að hafa reynt að innheimta skuld. Hann verður einnig yfirheyrður í dag en málið tengist ekki fíkniefnum. LÖGREGLUFRÉTTIR DANMÖRK, AP Leiðtogi dönsku stjórnarandstöðunnar, Villy Søvndal, sendi George W. Bush Bandaríkjaforseta bréf á fimmtu- dag þar sem hann ásakar Bush harðlega fyrir stríðið í Írak, ásamt fleiru. Bréfið var sent daginn fyrir heimsókn Anders Fogh Rasmus- sen, forsætisráðherra Danmerkur, til Bandaríkjanna, þar sem danska blaðið Politiken segir leiðtogana tvo ætla sér að fara í hjólreiðatúr í fjöllunum við bústað Bush í Camp David og snæða svo hádegismat ásamt eiginkonum sínum. Um 530 danskir hermenn eru í Írak. - smk Danska stjórnarandstaðan: Gagnrýnir Bush harðlega ÍTALÍA, AP Landhelgisgæsla Ítalíu fiskaði upp þrjú lík úr hafinu aust- an við eyjuna Möltu í gærmorgun og bjargaði sextán Túnisbúum úr sjónum. Átta félaga þeirra er enn saknað. Ítalskir sjómenn fundu menn- ina og gerðu gæslunni viðvart. Mennirnir voru 27 talsins á lítilli kænu og hvolfdi henni undan þunga þeirra. Mildi var að sjórinn var lygn þennan morgun og þeir sem kom- ust lífs af voru flestir vel á sig komnir eftir volkið. - kóþ Báti flóttamanna hvolfdi: Sextán bjargað úr sjónum INNFLYTJENDAFLEY FRÁ AFRÍKU Afríkubúar taka mikla áhættu með því að sigla fátæk- legum kænum að ströndum Evrópu. NORDICPHOTOS/AP SJÓMANNADAGURINN Sjómanna- dagsblað Austurlands er komið út. Á meðal efnis er umfjöllun um átök Breta og Íslendinga í þriðja þorskastríðinu, sagt frá mann- skæðasta harm- leik siglingasög- unnar og viðtal við sjómanninn og Norðfirðing- inn Kristinn Pét- ursson. Már Karlsson segir frá sjávarháska sem áhöfnin á Sunnutindi SU lenti í og umfjöll- un er um ísbirni við Austfirði. Ritstjóri blaðs- ins er Kristján J. Kristjánsson. Hægt er að nálgast blaðið í versl- unum Pennans Eymundssonar á höfuðborgarsvæðinu og Akur- eyri. - kk Útgáfa á Austurlandi: Sjómannadags- blað komið út SJÓMANNADAGS- BLAÐ Sjómanna- dagsblað Austur- lands er komið út og eru efnistök fjölbreytt að venju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.