Fréttablaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 40
10. júní 2006 LAUGARDAGUR4
Reynsluakstur 550 hestafla
Ford GT ofursportbílsins.
Það er varla að ég þori að viður-
kenna það en ég fékk gæsahúð
þegar hulunni var svipt af Ford
GT ofursportbíl Brimborgar í
flugskýli Arngríms Jóhannssonar
á Akureyrarflugvelli síðastliðinn
fimmtudag.
Ford GT er eins og funheitur
nostalgíudraumur. Enda sækir
hann nánast alla hönnun sína í
GT40, bílinn sem stoppaði sex ára
sigurgöngu Ferrari í Le Mans
kappakstrinum 1966. Þá voru
GT40 bílar í fyrstu þremur sætun-
um og forskot þeirra var slíkt að
þeir höfðu tíma til að þétta hópinn
og stilla sér upp fyrir myndatöku
áður en þeir rúlluðu yfir marklín-
una í einum hnapp. Það var fyrsti
ameríski sigurinn í Le Mans. Eftir
að hafa sigrað keppnina næstu
þrjú ár líka varð bíllinn að eins-
konar goðsögn. Goðsögn sem
hefur nú öðlast nýtt líf.
Það eitt að horfa á þetta þrjátíu
milljón króna tæki með eigin
augum hefði dugað mér út vikuna.
Að fá tækifæri til að hleypa honum
á skeið á flugbrautinni á Akureyri
var heldur ekkert voðalega slæmt.
Sú lífsreynsla byrjar strax á hurð-
unum. Þær ná nánast inn á mitt
þak en opnast þó með hefðbundn-
um hætti. Þegar inn er komið líður
manni eins og blómi í eggi, bíllinn
er bókstaflega sniðinn utan um
ökumanninn og þeir verða nánast
eitt.
5,4 lítra V-8 mótorinn í Ford GT
er handsmíðaður úr áli og skilar
opinberlega 550 hestöflum. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
er það mjög varlega skömmtuð
tala. Hvað sem því líður urrar
hann vel bakvið ökumann og far-
þega og togar enn betur.
Gírkassinn er sex gíra og furðu-
lega lipur, sérstaklega ef tekið er
tillit til þess að hann er aftast í
bílnum en gírstöngin er mjög stutt
og leikur vel í lófa ökumanns í
afslappaðri stellingu. Bíllinn er
hátt gíraður, kemst í 100 km hraða
í fyrsta gír, og því þarf smá gætni
við að taka af stað án þess að drepa
á honum. Þegar af stað er komið
bíður ekkert nema frelsi og meira
frelsi.
Það fylgir því mikil ábyrgð að
sitja undir stýri á bíl sem er 3,6
sekúndur í hundrað og á þá fimm
gíra eftir. Við kynninguna á bíln-
um sagði Egill Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Brimborgar, að það
væri notandinn sem réði því hvort
tæki og tól væru hættuleg. Því
væri stefnan að nota Ford GT bíl-
inn sem tákn um hvernig eigi að
beisla kraft með ábyrgð.
Eitt af því sem oft er nefnt í
umræðunni gegn hraðakstri á
vegum og götum eru afmörkuð
æfingasvæði þar sem hægt væri
að keyra hraðar en almennar
hraðatakmarkanir leyfa. Af sömu
ástæðum var bíllinn kynntur á
flugbraut en ekki á Hellisheiði.
Ég hafði í laumi gert mér vonir
um að setja bílinn í 200 km hraða á
brautinni og varð því hálfvonsvik-
inn þegar ég varð að hægja á mér
í fjórða gír eftir hálfa braut og
hraðamælirinn sýndi tæplega
160.
Aksturinn var þó mjög ánægju-
legur. Mér fannst mér bíllinn varla
hreyfast, hann var svo stöðugur á
brautinni og lét betur að stjórn en
flestir aðrir bílar sem ég hef ekið,
algjörlega áreynslulaust. En það
er einmitt eitt sérkenni bílsins, að
vera búinn afli og búnaði sem
hæfir helmingi dýrari bíl, en vera
mikið auðveldari í meðhöndlun en
flestir aðrir ofurbílar. Ég fylltist
svo enn meiri virðingu fyrir bíln-
um þegar það rann upp fyrir mér
að hraðamælirinn sem hafði vald-
ið mér vonbrigðum telur víst
mílur en ekki kílómetra.
Eftir örstutt kynni er þrennt
sem stendur upp úr þegar Ford
GT er annars vegar. Í fyrsta lagi
er það útlitið sem er mjög nútíma-
legt þó það beri sterkan svip sjö-
unda áratugarins. Í öðru lagi er
það mótorinn sem urrar svo
skemmtilega og skilar gríðarlegu
aflinu beint út í afturhjólin og í
þriðja lagi eru það frábærir akst-
urseiginleikar. Bíll sem haggast
varla og er eins og hugur manns á
250 km hraða á svo sannarlega
skilið forskeytið „ofur“.
einareli@frettabladid.is
Upp í hundrað í fyrsta gír
Tveir öflugir frá Ford, GT bíllinn og Focus,
rallýbíll Jóns Bjarna Hrólfssonar og Borgars
Ólafssonar. Þeir kappar hafa gert það gott
í rallinu í ár og voru mættir til leiks á Akur-
eyri til að keppa á GT bílnum við flugvél
Arngríms Jóhannssonar. Við það tækifæri
komu þeir bílnum á 300 km hraða.
Christian von Koenigsegg gaf bílnum góða
dóma eftir fyrstu kynni. Hér skoðar hann
mótorinn ásamt Agli Jóhannssyni, fram-
kvæmdastjóra Brimborgar.
Eldrauður, vígalegur, liggur vel og hefur
feykinóg afl. Með öðrum orðum: Sportbíll.
Mælaborðið er frekar einfalt en vel hannað.
Fyrir ofan stýrið er stór snúningshraðamælir
en lengst til hægri er hraðamælir í sömu
stærð. Rauði hnappurinn fyrir miðri mynd
er ræsihnappur mótorsins.
Hesthúsið er fyrir aftan húsið og hýsir 550 uppgefna hesta. Stífurnar sem tengjast aftur-
fjöðruninni eru áberandi.
Vígalegar línur sem sameina það besta úr sportbílaheiminum í dag og 40 ára goðsögnina GT40. Afturdekkin eru á 19 tommu felgum en
framdekkin á 18 tommum. LJÓSMYNDIR/HEIÐA.IS
Smurþjónusta
fyrir allar gerðir bíla
Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla
Komdu með bílinn til okkar!
Frábær verð og góð þjónusta!
Alltaf heitt á könnunni!
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI