Fréttablaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 74
10. júní 2006 LAUGARDAGUR50
Volver, nýjasta kvik-
mynd spænska leikstjór-
ans Pedro Almodóvar,
vakti verðskuldaða
athygli á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes á
dögunum og þykir með
hans bestu verkum.
Þórarinn Þórarinsson
hitti Almodóvar að
máli og ræddi við hann
um samkynhneigð,
tilfinningar og brjóstin
á Penélope Cruz.
Almodóvar er jafnan bestur þegar hann fjallar um konur og það má segja að með
Volver hverfi hann aftur til upp-
runans þar sem hann segir tilfinn-
ingaþrungna sögu tveggja systra,
dóttur annarrar þeirra og móður
þeirra. Karlmenn koma varla við
sögu en þegar þeir gera það eru
þeir bölvaðar skepnur. Penélope
Cruz leikur aðra systurina sem
þarf að takast á við ástvinamissi
og kynferðislega misnotkun og
losa sig við lík.
Sterkar konur, vondir menn
„Þegar ég byrjaði að skrifa hand-
rit myndarinnar ákvað ég að vinna
með þann kvennaheim sem ég ólst
upp í,“ segir Almodóvar. „Þá var
ég umkringdur konum þar sem
karlarnir unnu fjarri heimilinu.
Þessar konur voru mjög sterkar
og þurftu að berjast fyrir öllu
þannig að í mínum huga eru þær
tákngervingur lífsins sjálfs og
þær kvenpersónur sem ég hef
skrifað um síðar byggja á þeim.
Hvað sumt sem gerist í Volver
varðar þá bjó ég í litlu þorpi og því
miður gerast oft hræðilegir hlutir
í litlum samfélögum og kynferðis-
leg misnotkun er ekki óalgeng. Ég
vil samt ekki alhæfa í myndum
mínum og segja að allir karlmenn
séu ofbeldishneigðir eða nauðgar-
ar. Það er alls ekki málið. En ég
verð samt að halda því til haga að
þessir hræðilegu hlutir gerast í
þessum litlu þorpum. Þetta er
hluti af lífinu en ég er samt svolít-
ið ósanngjarn við karlana í Volver
vegna þess að ég vinn með bestu
minningar mínar um konurnar og
svo tvær verstu æskuminningar
mína um karla. Hluti sem ég
heyrði og eru sannir.“
Segir sögur með myndum
Almodovar segist hafa hlustað af
athygli á samræður móður sinnar
við hinar konurnar á heimilinu og
sögur þeirra hafi opnað sér leið
inn í skáldskapinn en það voru
aftur á móti bragðlaukarnir sem
drógu hann að kvikmyndinni sem
tjáningarformi tilfinninga sinna.
„Ég kynntist kvikmyndunum í
gegnum súkkulaði. Þegar ég var
krakki borðuðum við brauð með
súkkulaði. Þetta voru lítil súkku-
laðistykki og þeim fylgdu myndir
af Hollywood-stjörnum. Ég hafði
þá ekki séð eina einustu mynd með
þessu fólki en ljósmyndirnar
kveiktu hjá mér dagdrauma. Þetta
var eins og komast inn í annan
heim og ég gerði mér grein fyrir
því að mig langaði til þess að verða
hluti af þessum heimi. Það var svo
á unglingsárunum sem ég varð
staðráðinn í því að ég vildi gera
kvikmyndir. Þegar ég var um tví-
tugt hafði ég ráð á að kaupa mér
Super 8 kvikmyndatökuvél og
þegar ég horfði á það sem gerðist
fyrir framan augun á mér festast
á filmu með því einu að þrýsta á
hnapp fannst mér ég strax vera
orðinn leikstjóri þó ég hefði ekki
neitt vit á myndmáli þá. Hingað til
hafði ég litið á mig sem sögumann
og var byrjaður að skrifa smásög-
ur en þarna komst ég að því að ég
átti auðveldara með að segja sög-
urnar mínar með myndum en
texta. Það liggur betur fyrir mér
að segja sögur svona.“
Stjórnar Penélope á heimavelli
Almodóvar og Penélope Cruz unnu
síðast saman í myndinni Todo
sobre mi madre (Allt um móður
mína) árið 1999 en leikkonan hélt
fljótlega eftir að til Hollywwod
þar sem hún hefur leikið í nokkrum
stórmyndum með æði misjöfnum
árangri. Almodóvar fagnaði því
ákaflega að fá hana aftur og segir
allt annað að sjá til hennar í evr-
ópskum myndum en amerískum.
„Það er eins og maður sé að
horfa á allt aðra manneskju. Það
var dásamlegt að fá hana aftur
vegna þess að ég elska hana skil-
yrðislaust. Við höfðum ekki unnið
saman í sjö ár en höfum haldið
nánu sambandi og ég vissi að hún
gæti skilað þessu hlutverki með
sóma. Penélope er mjög tilfinn-
ingarík leikkona og það þarf að
vinna mikið með henni. Hún þarf
miklar æfingar og ég held að
ameríska framleiðsluferlið henti
henni síður þar sem þar er leikur-
um ekki gefinn nægur tími. Við
æfðum hverja einustu línu dag-
lega í þrjá mánuði. Það voru uppi
efasemdir um að hún gæti leikið
fullorðna móður unglingsstúlku,
lífsreynda konu sem er í senn
bæði hugrökk og brotthætt.“
Hlutverkið vafðist þó ekki fyrir
Penélope, sem fékk leikkonuverð-
launin í Cannes ásamt stallsystr-
um sínum úr myndinni. „Frammi-
staða hennar hefur komið mörgum
á óvart en ég efaðist aldrei og það
hreyfði við mér að fylgjast með
henni vinna.“
Brjóstin eru ekta
Almodóvar játar það fúslega að
hann hafi haft unga Sophu Loren í
huga þegar hann sá persónu Cruz
fyrir sér. „Hún er tvímælalaust
fyrirmyndin og það sést á förðun-
inni, hárgreiðslunni og fötum
hennar.“ Brjóst leikkonunnar eru
svo gerð að umtalsefni í kostulegu
samtali móður og dóttur í mynd-
inni. Þar er persóna Penélope
spurð hvort hún hafi látið stækka
á sér brjóstin. Almodóvar vill ekki
viðurkenna að hann hafi skrifað
þessa línu inn gagngert til að
stríða leikkonunni. Spurningin
þjóni tilgangi í sögunni þó hún
snerti Penélope vissulega með
beinum hætti.
„Einhverjir blaðamenn hafa
haldið því fram að Penélope hafi
látið setja eitthvað í brjóstin á
sér. Þetta er af og frá. Þið sjáið
alveg að þau hreyfast mjög nátt-
úrulega. Þetta var svar til þess-
ara slúðurblaðamanna,“ segir
leikstjórinn og hlær. „Ég hef
gaman að því að fela hluti í text-
anum en þessi spurning er ekki
bara brandari. Móðirin er afskap-
lega stolt af fallegu dóttur sinni.
Hún sér að hún hefur blómstrað
en áttar sig ekki alveg á því að
hún hefur breyst úr stúlku í konu.
Þegar Penélope svarar og segist
alltaf hafa verið með þessi brjóst
hefur móðirinn óafvitandi gert
stúlkuna að kynferðislegu við-
fangi föðurins. Það er því vís-
bending um það sem koma skal í
þessu. Þetta var brandari en það
var samt eitthvað bitastætt á bak
við hann.“
Samkynhneigðin skiptir ekki máli
Almodovar náði fyrst vinsældum á
jaðrinum í samfélagi samkyn-
hneigðra en er orðinn hluti af megin-
straumnum, margverðlaunaður
leikstjóri sem allir þekkja. Hann
segist þó ekki sjá neitt athugavert
við þessa ævintýralegu þróun.
„Mér hefur fundist þetta vera
afskaplega eðlileg þróun þar sem
ég hef ekki þurft að gefa neitt upp
á bátinn eða gera neinar málamiðl-
anir. Ég hef ekkert breyst og hef
ekki þurft að svíkja sjálfan mig.
Ég er samt mjög heppinn vegna
þess að ég byrja á því að gera
neðanjarðarmyndir og hef unnið
Óskarsverðlaun. Það er langur
vegur þar á milli. Kannski er ég
undantekningin sem sannar regl-
una vegna þess að ég held að það
geti ekki margir samkynhneigðir
leikstjórar sprottið upp á jaðrinum
og náð miklum vinsæladum síðar.“
Almodóvar vill þó alls ekki
ganga svo langt að segjast vera
orðinn hluti af meginstraumnum.
„Í það minnsta ekki í amerískum
skilningi þess orðs. Þar á þetta við
myndir eins og Mission Impossible
III sem er frumsýnd á 4.000 bíó-
tjöldum í einu. Mínar myndir opna
í mesta lagi í 200 til 300 kvikmynda-
húsum í einu. Þetta eru samt meiri
vinsældir en mig hefði nokkurn
tíma órað fyrir. Ekki einu sinni í
mínum villtustu draumum.“
Almodóvar segir að þrátt fyrir
uppruna sinn í kvikmyndum hafi
kynhneigð hans ekkert með vin-
sældirnar að gera. „Vinsældirnar
ráðast af myndunum sem maður
gerir. Ég hef gert mjög persónu-
legar og sjálfstæðar myndir um
klikkað fólk, klæðskiptinga og fólk
sem lifir á jaðri samfélagsins og
það er óvenjulegt að ná vinsældum
með slíkum myndum. Það er til
fjölmargir samkynhneigðir leik-
stjórar sem gera hefðbundnar og
vinsælar myndir. Það er ekkert
vandamál að vera samkynhneigður
leikstjóri. Það er hins vegar miklu
erfiðara að vera samkynhneigður
leikari eða leikkona. Þá er hætt við
að fólk sé dregið í ákveðna dilka og
hlutverkaval þess þrengist vegna
þess að einhverjir halda að það geti
ekki leikið persónu með aðra kyn-
hneigð en leikarinn sjálfur. For-
dómarnir eru því miklu meiri gagn-
vart leikurum og leikkonum. Ég
átti samt aldrei von á að Akademí-
an myndi verðlauna mig með Ósk-
ari en það hafði ekkert að gera með
það að ég væri hommi heldur ein-
faldlega vegna þess að myndirnar
mínar eru mjög oft til þess fallnar
að ganga fram af Bandaríkjamönn-
um.“
Tekur áhættu með hverri mynd
Almodóvar segist alltaf vera að
skrifa og hann hefur ekki fyrr
lokið einni mynd en hann er farinn
að huga að þeirri næstu. „Ég er
alltaf með nokkrar sögur í gangi
og þær eru þá mislangt á veg
komnar. Nú er ég með þrjár í
vinnslu og tvær eru nánast tilbún-
ar en ég veit ekki enn hvor þeirra
verður næsta mynd. Því er yfir-
leitt þannig farið að það er alltaf
ein af þessum sögum sem mér
finnst mjög áríðandi að gera. Þetta
ræðst meira af eðlisávísun en vali
og það er þá eins og sagan velji
mig en ekki öfugt. Það er ekkert
vitrænt við þetta val og ég veit
ekkert hvernig á því stendur. Þetta
er mér ráðgáta en sumar sögur
finnst mér ég bara verða að
segja.“
Almodóvar segist vera ákaf-
lega tilfinningaríkur maður og til-
finningarnar beri hann stundum
ofurliði þegar hann skrifar. „Ég er
bara svona en ég reyni að hafa
stjórn á mér. Þegar ég skrifa verð
ég stundum djúpt snortinn af því
sem ég skrifa. Ég man alltaf eftir
atriði í Romancing the Stone þar
sem Kathleen Turner er að skrifa
ástarsögu og fer að hágráta. Mér
líður oft svona en stundum upplifi
ég sterkar tilfinningar og það er
gott. Það segir mér einfaldega að
ég sé á réttri leið,“ segir leikstjór-
inn og einlægnin skín úr augun-
um.
„Ég hef alltaf áhyggjur af því
að mér muni ekki takast að gera
handritið að almennilegri bíó-
mynd þannig að gerð hverrar ein-
ustu myndar er ævintýri. Ef ég
væri að gera hasarmyndir eða
ævintýramyndir væri ég miklu
öruggari með mig en þar sem
myndinar mínar byggja á tilfinn-
ingum er get ég aldrei verið viss
um hvernig fólk muni taka þeim,
hvort áhorfandinn muni upplifa
sömu tifinningar og ég. Mér finnst
það vera kraftaverk í hvert skipti
sem það gerist og ég legg mig
allan fram við að koma þessum til-
finningum til skila. Ég vil að þær
seu einlægar og raunverulegar.
Þannig skrifa ég þær í handritið
og veit að leikararnir gera allt sem
þeir geta til að koma þessu til
skila.
Hvað sjálfan mig varðar er ég
tilbúinn til þess að drepa mig á
tökustað ef það verður til þess að
mér takist að koma skilaboðum
mínum til almennings. Maður
getur samt aldrei verið viss um að
fólkið í salnum muni gráta eða
finna aðrar tilfinningar sem þú
vilt vekja hjá þeim og þess vegna
finnst mér starf mitt vera mjög
áhættusamt.“
Súkkulaði og kvikmyndir
KVENNALJÓMI Pedro Almodóvar ásamt aðalleikonunum sínum Penélope Cruz og Carmen Maura úr nýjustu mynd hans Volver. NORDICPHOTOS/AFP
„Hvað sjálfan mig varð-
ar er ég tilbúinn til þess
að drepa mig á tökustað
ef það verður til þess
að mér takist að koma
skilaboðum mínum til
almennings.“
„Einhverjir blaðamenn hafa haldið því fram að
Penélope hafi látið setja eitthvað í brjóstin á sér. Þetta
er af og frá. Þið sjáið alveg að þau hreyfast mjög
náttúrulega.“