Fréttablaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 43
[ ]
Króatía hefur upp á allt að
bjóða. Falleg náttúran, lifandi
menning og notalegt loftslag
eru meðal þess sem dregur ís-
lenska ferðamenn til landsins.
Króatía hefur verið vinsæll áfanga-
staður íslenskra ferðalanga undan-
farin ár. Flestir dvelja þeir í sumar-
dvalarbæjunum á Istríaskaganum
og þar er af nógu að taka fyrir
ferðamenn. Istríaskaginn er nyrsti
hluti Króatíu. Þar er fjöldinn allur
af fallegum litlum bæjum sem kúra
niður við ströndina eða tróna upp á
hæðum inn til landsins. Klettóttar
strendur, grónar vínekrur og blóm-
legar byggðir einkenna svæðið sem
á sér langa sögu. Víða má finna
minjar frá tímum Rómverjanna en
menning landsins er skemmtileg
blanda sem Grikkir, Rómverjar,
Slavar, Ítalir og Austurríkismenn
hafa sett mark sitt á. Strandbæirn-
ir Porec og Rovinj eru vinsælustu
sumardvalarstaðirnir meðal Íslend-
inga en báðir bæirnir eiga sér langa
sögu.
Það er auðvelt að ferðast um Króa-
tíu á eigin vegum. Bílaleigubílar
eru ódýr kostur og vegakerfið er til
fyrirmyndar. Fyrir þá sem dvelja í
Porec eða Rovinj er stutt að skreppa
yfir til Slóveníu og það tekur ein-
ungis um tvær og hálfa klukku-
stund að keyra til Zagreb, höfuð-
borgar Króatíu. Pula er stærsti
bærinn á Istríaskaganum og hann
ættu ferðamenn ekki að láta fram
hjá sér fara. Ágætar almennings-
samgöngur eru á svæðinu og auð-
velt er að taka rútu milli helstu
bæja. Þá er einnig gaman að ferð-
ast um svæðið á reiðhjóli.
Undan ströndum Króatíu eru
fjölmargar eyjar sem gaman er að
heimsækja. Ferðaskrifstofurnar
bjóða upp á skemmtilegar siglingar
og eins er hægt að leigja sér báta
fyrir styttri ferðir. Þeir sem vilja
sigla lengra geta skellt sér í dags-
ferð yfir Adríahafið til Feneyja
sem eru skammt undan.
Króatar dekra við bragðlaukana
þegar kemur að matargerð. Ítalskra
áhrifa gætir í matargerð á Istría-
skaganum og á hverju götuhorni
má rekast á veitingastaði sem bjóða
upp á pítsur og pasta. Hvers kyns
sjávarfang er einnig áberandi á
matseðlunum og fiskimenn leggja
að höfn í Porec og Rovinj með alls
konar góðgæti úr sæ. Svæðið er
einnig þekkt fyrir góð vín en á Istrí-
askaganum eru fjölmargir vín-
ræktendur. Verðið er hagstætt og
maturinn er undantekningalaust
góður.
Uppbyggingin í Króatíu undan-
farin ár er aðdáunarverð og ferða-
mönnum er vel tekið. Landið er í
senn framandi og nútímalegt og
margir eru sammála um að þar sé
að finna Evrópu eins og hún var.
thorgunnur@frettabladid.is
Evrópa eins og hún var
Í bænum Groznjan. Hlaðnar, þröngar götur
og vinaleg gömul hús einkenna bæina á
Istríaskaganum. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRGUNNUR
Pula er stærsta borgin á Istría skaganum og þar er að finna merkar minjar frá tímum Róm-
verja. Hringleikahúsið er eitt stærsta og best varðveitta hringleikahúsið í heiminum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRGUNNUR
Rovinj er einn fallegasti bærinn við strendur Adríahafsins. Þröngar götur hlykkjast milli gamalla húsa og höfnin iðar af lífi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Hægt er að leigja jeppa á Íslandi frá 8.000 kr á dag.
Fínir í fríið innanlands þegar fara á um fjöll og firnindi.
> Ekki missa af...
Gönguferð um gamla bæinn í Rovinj.
Eins og að rölta aftur í tímann.
Euphrasiusar-basilíkunni í Porec.
Hringleikahúsinu í Pula. Eitt stærsta
og best varðveitta hringleikahús í
heiminum.
Dagsferð til Dubrovnik. Langt að fara
en klárlega þess virði.
Groznjan. Skemmtilegur listamanna-
bær í dásamlegu umhverfi.
Tímarit
um útivist
og ferðalög
Nýtt tölublað
100 blaðsíður
HVERNIG
GRILLAR MAÐUR
NAUTAKJÖT?
–þú veist það ef þú lest
Fréttablaðið
– Vel lesið!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A