Fréttablaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 8
8 10. júní 2006 LAUGARDAGUR SVEITARSTJÓRNARMÁL „Við lofuðum fólki því að hætt yrði við mið- svæðisskipulagið og efnt til arki- tektasamkeppni í staðinn og við munum standa við það,“ segir Sig- urður Magnússon, verðandi bæjarstjóri á Álftanesi. Í miðsvæðisskipulaginu er meðal annars gert ráð fyrir níutíu öryggisíbúðum fyrir aldraða, þjónustumiðstöð fyrir aldraða og heilsugæslu og hefur það þegar fengið löggildingu. Einnig hafði verið samið við hjúkrunarheimil- ið Eir vegna öryggisíbúðanna og við verktaka sem eiga einn þriðja hluta lóðarinnar. „Nú verður farið í það að ræða við alla hagsmunaaðila og þá með það fyrir augum að breyta dag- setningum og öðru svo breytingin megi eiga sér stað með sem minnstum tilkostnaði,“ segir Sig- urður. „Ég hef miklar áhyggjur af því að bæjarfélagið eigi eftir að lenda í margföldum skaðabóta- málum ef þessi nýi meirihluti efnir loforð sín við kjósendur,“ sagði Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri og efsti maður á lista sjálfstæðismanna, eftir að úrslit voru ljós á Álftanesi, en aðeins munaði þremur atkvæðum á list- unum. Ákveðið var á fundi Álftanes- listans í fyrrakvöld að Sigurður, sem er efsti maður á listanum, yrði næsti bæjarstjóri og tekur hann við embætti 13. júní. - jse SIGURÐUR MAGNÚSSON, VERÐANDI BÆJARSTJÓRI Oddviti Álftaneslistans var reifur á kosningavökunni en afar mjótt var á munum í Álftanesi. Hann tekur við sem bæjarstjóri 13. júní og verður þá nóg að gera vegna þeirra umfangsmiklu breytinga sem hann boðar. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Nýr bæjarstjóri á Álftanesi boðar strax breytingar: Miðsvæðisskipulag blásið af JAPAN, AP Ríkisstjórn Japans hvet- ur til aukinnar atvinnuþátttöku jap- anskra kvenna og telur að japanskt þjóðfélag eigi að aðstoða konur meira við atvinnuleit, stuðla að auk- inni starfsþjálfun þeirra og hjálpa þeim við að stofna lítil fyrirtæki. Þetta kemur fram í skýrslu um jafnrétti kynjanna sem stjórnarráð Japans hefur sent frá sér. Ríkisstjórnin vill auðvelda jap- önskum mæðrum að snúa aftur á vinnumarkaðinn þegar börnin eru farin í skóla og stuðla þannig að því að fleiri japanskar konur velji að eignast börn, en fólksfækkun er japönskum stjórnvöldum mikið áhyggjuefni. Heilbrigðisráðuneyti Japans tilkynnti á dögunum að nýtt met hefði verið slegið þegar fæðingar- tíðni mældist einungis 1,25 börn á hverja konu. Til að viðhalda fólks- fjölda samfélagsins þyrfti hver kona hins vegar að eignast 2,1 barn. Afar erfitt þykir fyrir útivinn- andi fólk að ala upp börn í Japan og er ábyrgðin að mestu leyti á herðum mæðranna. Dagvistunar- stofnanir eru fáar og kröfur fyrir- tækja um vinnuframlag svo mikl- ar að 61 prósent japanskra kvenna hættir að vinna fyrir fullt og allt þegar þær verða þungaðar af fyrsta barni. Þessu skal breytt með „samfélagi kynjajafnréttis“, segir í skýrslunni. - kóþ Japanar vilja ólmir fjölga sér: Aukið jafnrétti besta ráðið JAPANSKT STÚLKUBARN Ríkisstjórn Japans ætlar sér að gera framtíð þessarar stúlku barnvænni. NORDICPHOTOS/AFP NOREGUR, AP Norðmenn búa sig nú undir mögulega bankalokun á mánudaginn og hafa hraðbankar verið þurrausnir síðustu daga. Félag atvinnurekenda í fjárhags- geiranum hefur hótað að loka bönkum og læsa fimmtán þúsund bankastarfsmenn úti í kuldanum, ákveði um sex þúsund samstarfs- menn þeirra að setja meiri hörku í verkfall sem staðið hefur síðan fyrsta júní. Þetta hefði í för með sér að gjörvöll bankastarfsemi lamaðist í landinu og hafa Norðmenn verið iðnir við að tryggja sér reiðufé. Atvinnumálaráðherra Noregs, Bjarni Hákon Hansen, á kost á því að setja lög á verkfallið, en óvíst er hvort hann nýti sér þá lagaheim- ild. Þó má telja það líklegt því lokun bankanna hefði lamandi áhrif á allt þjóðlíf í Noregi. Áhrifin hafa þó verið örvandi enn sem komið er, því í vikunni einkenndi mikill taugatirtringur almenning í Noregi og margir hraðbankar voru við það að tæmast í gær. - kóþ Norðmenn óttast auraskort: Tæma alla hraðbanka HRAÐBANKI Öll bankastarfsemi í Noregi gæti lamast eftir helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SLYS Maður fannst meðvitundar- laus á sundlaugarbotni í Reykja- nesi við Ísafjarðardjúp aðfaranótt föstudags. Félagar mannsins komu að honum og komu honum til bjargar. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði andaði maðurinn en sýndi engin viðbrögð við áreiti. Sjúkrabílar frá Hólmavík og Ísafirði fóru á staðinn ásamt lög- reglunni frá Ísafirði klukkan þrjú um nóttina. Maðurinn var síðan fluttur með þyrlu á Landspítalann í Fossvogi, sem lenti þar korter yfir sex. Að sögn læknis á gjörgæslu- deild Landspítalans í Fossvogi er maðurinn í öndunarvél. - gþg Slys í Reykjanesi: Liggur enn í öndunarvél VEISTU SVARIÐ 1 Hvaða hryðjuverkamaður lét lífið í loftárásum í vikunni? 2 Hver er opnunarleikur heimsmeist-arkeppninnar í knattspyrnu? 3 Hvaða nýja tímarit hóf göngu sína í vikunni? SVÖR Á BLS. 70 STÓRIÐJA Rússneska álframleiðslu- fyrirtækið RusAl, sem er þriðji stærsti álframleiðandi í heimin- um, hefur átt í viðræðum við íslensk yfirvöldum um uppsetn- ingu álvers á Íslandi. Þetta stað- festi Vera Kurochkina, upplýs- ingafulltrúi RusAl í Moskvu, í samtali við Fréttablaðið í gær. Á vefsíðu fréttastofunnar Moscow Times var greint frá því í gær að viðræður milli RusAl og íslenskra stjórnvalda um uppsetn- ingu álbræðslu væru á upphafs- stigi. Haft er eftir Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra að eins og viðræður standi beri á milli íslenskra stjórnvalda og RusAl, en ef til vill verði samvinn- an þróuð áfram. Árið 2004 höfðu forsvarsmenn RusAl samband við Fjárfestinga- stofu, sem starfar á grundvelli samkomulags viðskiptaráðuneytis og útflutningsráðs, og lýstu þeir yfir áhuga sínum á samstarfi við íslensk stjórnvöld með uppsetn- ingu álvers í huga. Í kjölfarið hóf- ust samskipti íslenskra yfirvalda og RusAl sem hafa verið í gangi síðan. Kurochkina segir RusAl von- ast eftir jákvæð- um niðurstöðum úr viðræðum við íslensk stjórn- völd, sem leiði til þess að markmið fyrirtækisins náist. „RusAl hefur átt í við- ræðum við íslensk stjórnvöld síð- ustu tvö ár um möguleikann á upp- setningu álvers og vatnsorkuvers, sem sæi álverinu fyrir orku,“ segir Kurochkina og segir viðræð- um ekki lokið. „Við vonumst eftir því að niðurstaðan úr þessum við- ræðum verði jákvæð fyrir RusAl, eftir því sem þeim verður áfram- haldið.“ Páll Magnússon, aðstoðarmað- ur Valgerðar Sverrisdóttur, iðnað- ar- og viðskiptaráðherra, segir engu hafa verið hafnað ennþá en einungis bréfleg samskipti hafi átt sér stað við RusAl. „Það barst ósk frá RusAl um samstarf, í gegn- um Fjárfestingastofu. Afstaða Fjárfestingastofu var sú að ekki væri rétt að fara í formlegar við- ræður við félagið vegna verkefna sem til skoðunar væru á næstu misserum.“ Kurochkina staðfesti við Fréttablaðið í gær að RusAl liti svo á að viðræður milli fyrirtæk- isins og íslenskra stjórnvalda væru enn í gangi jafnvel þó að svar Fjárfestingastofu hefði verið á þá leið að ekki væri tímabært að fara út í framkvæmdir á þessu stigi. magnush@frettabladid.is RusAl vill setja upp álver hér á landi Rússneska álframleiðslufyrirtækið RusAl hefur átt í viðræðum við íslensk stjórnvöld um uppsetningu álvers. Upplýsingafulltrúi RusAl, Vera Kurochkina, staðfesti þetta í gær. Við vonumst eftir jákvæðri niðurstöðu, segir Kurochkina. VINNSLA Í ÁLVERINU VIÐ GRUNDARTANGA Nú er í athugun að reisa álver á Bakka við Húsa- vík og í Helguvík. RusAl hefur mikinn áhuga á því að reisa hér álver og nýta íslenska orku fyrir starfsemina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI PÁLL MAGNÚSSON LÖGREGLA Lögreglan í Keflavík fann nýjan pallbíl falinn í bílskúr við fíkniefnaleit í Garði aðfara- nótt föstudags. Bílnum hafði verið stolið fyrir utan bílaumboð í fyrra- haust og var enn óskráður á íslensk númer. Lögreglumenn gerðu húsleit í heimahúsi vegna gruns um fíkni- efnamisferli. Þeir fundu kannabis á ýmsum vinnslustigum og ákváðu að því loknu að líta rétt sem snöggvast inn í bílskúr hússins þar sem þeir fundu bílinn. Lögreglan í Keflavík rannsakar nú málið. - sh Lögreglan í Keflavík: Leitaði að dópi og fann pallbíl DÓMSMÁL Dyravörður á skemmti- staðnum HM-Pub á Selfossi hefur verið dæmdur til að sitja mánuð í fangelsi brjóti hann skilorð næstu tvö árin. Hann kjálkabraut mann fyrir utan skemmtistaðinn eftir að hafa hent honum út. Sá sem fyrir högginu varð segir að hann hafi barið í útidyrahurð- ina eftir brottvísunina. Dyravörð- urinn hafi þá opnað dyrnar, gengið rakleitt að honum og kýlt hann í kjálkann. Hann hafi fallið við höggið og fundið að kjálkinn hefði brotnað því bitið passaði ekki saman. Dyravörðurinn gekkst ekki við brotinu en var dæmdur vegna fjölda vitna að atburðinum. - gag Kýldi og kjálkabraut: Dyravörður réðst á gest FRÁ SELFOSSI Dyravörður á HM-Pub greiðir allan sakarkostnað, um 150 þúsund krón- ur, og fer í mánaðarfangelsi brjóti hann skilorð næstu tvö árin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BANDARÍKIN, AP Talsmenn Banda- ríkjahers segja upplýsingar sem fengust eftir loftársina á Írak aðfaranótt fimmtudags, sem al- Kaída foringinn Abu Musab al- Zarqawi fórst í, hafa leitt til fjölda nýrra vísbendinga og handtöku minnst tólf manns. Jafnframt voru vopn gerð upptæk. Al-Jazeera sjónvarpsstöðin sýndi í gær myndband þar sem næstæðsti maður al-Kaída, Ayman al-Zawahri, lofar al-Zarqawi, en þar sem hann nefndi ekki árásina telja fréttaskýrendur myndbandið vera minnst nokkurra daga gam- alt. Bílaumferð hefur verið bönnuð í Bagdad yfir helgina, til að koma í veg fyrir uppþot. - smk Eftirmálar loftárásar: Tólf handteknir og byssur teknar FRIÐUR OG RÓ Öll bílaumferð hefur verið bönnuð í Bagdad í þrjá daga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BORGARMÁL Ekki er nauðsynlegt að gera breytingar á samþykktum eða lögum Reykjavíkurborgar er viðkoma skipan í ráð og nefndir, þó að Framsóknarflokkurinn eigi aðeins einn fulltrúa í borgar- stjórn. Ólafur Hjörleifsson, lögfræð- ingur hjá Reykjavíkurborg, segir almennt aðeins nauðsynlegt að fulltrúar séu kjörgengir. „Formað- ur nefnda og ráða þarf að vera borgarfulltrúi eða varaborgarfull- trúi. Almennt eru ekki skilyrði fyrir því að fulltrúar í ráðum og nefndum séu borgarfulltrúar eða varaborgarfulltrúar, til þess að sitja í ráðum og nefndum. Eina skilyrðið er að þeir séu kjörgeng- ir.“ - mh Meirihlutasamstarf: Einn borgar- fulltrúi er nóg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.