Fréttablaðið - 10.06.2006, Page 78

Fréttablaðið - 10.06.2006, Page 78
 10. júní 2006 LAUGARDAGUR54 menning@frettabladid.is Kl. 22 Argentínskt milonga tangóball verður haldið í Leikhúskjallaran- um við Hverfisgötu. Kvöldið hefst með diskóteki kl. 22. > Ekki missa af... maraþon kvikmyndahátíð frá kl. 11-18 í Gamla bókasafn- inu í Hafnarfirði. Kvikmyndir og fræðsluþættir frá ýmsum löndum sem fjalla um fótbolta á einn eða annan hátt. sjómannadeginum á sunnu- daginn. Allir þeir sem vettlingi geta valdið og ekki þekkja mun- inn á þorski og ýsu eru hvattir til þess að fagna með hetjum hafsins og kynna sér aðalat- vinnuveg þjóðarinnar. Sumardjass á Jómfrúnni. Andrés Þór Gunnlaugsson og tríó kynna nýjan geisladisk, Nýjan dag, á notalegum síðdeg- istónleikum í smurbrauðsparadís Jómfrúarinnar við Lækjargötu. ! Einleikur Benedikts Erlingsson- ar, Mr. Skallagrímsson, hefur hlotið frábærar viðtökur og verður sýningum haldið áfram á verkinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Benedikt byggir leikrit sitt á sögunni af Agli Skalla-Grímssyni – eða eins og hann segir sjálfur, rekur Egilssögu á 120 mínútum. Og sögusviðið er allt um kring og það nýtir Benedikt sér til fullnustu. Hann færir atburði sem gerðust fyrir meira en þúsund árum til samtímans á snilldarlegan hátt svo úr verður ógleymanleg upplífun. Verkið verður sýnt á Sögu- loftinu í gamla Pakkhúsinu í Landnámssetrinu allar helgar í júní og júlí. Í tilefni af Borgfirðingahátíð um helgina býður Landnáms- setur einnig til sögustunda bæði fyrir börn og fullorðna. Þar gengur Þorgerður Brák, fóstra Egils aftur og segir börnunum sögur. Í dag kl. 17 mun Hjörleifur Stefáns- son, þekktur sagnamaður úr héraðinu, segja sögur af álfum, tröllum og skrítnu fólki. Hjörleifur hefur þjálfað sig í sagnamennsku með grönnum okkar á Hjaltlandseyjum þar sem sagnahefðin hefur lengi verið í heiðrum höfð. Upplýsingar um sagnastund- irnar og Mr. Skallagrímsson má finna á www.landnam.is. Áfram Mr. Skallagrímsson Tónlistarhópurinn Camerarctica leikur á vegum 15:15 tónleika- raðarinnar í Norræna húsínu í dag og flytur efnisskrá litaða af þýskri léttklassík og frönskum sjarma. Tónleikasyrpan hóf göngu sína árið 2002 að tilstilli Caput-hópsins og hefur vakið verðskuldaða athygli sem vettvangur nýsköpun- ar í fjölbreyttu tónleikahaldi á Íslandi. Ármann Helgason klarinettu- leikari segir að hópurinn hafi vilj- að binda lokahnútinn á tónleikaröð vetrarins með léttu úrvali af sum- arlegri músík. „Við byrjum á að leika Stef og tilbrigði fyrir klarin- ettu og strengi eftir Jozef Kuffner og svo kemur Serenaða fyrir flautu, fiðlu og víólu eftir Ludwig van Beethoven. Það er ekta skemmtitónlist, samin í lok 18. aldar - maður getur vel ímyndað sér að hún hafi verið leikin í garð- partíum síns tíma.“ Eftir hlé leik- ur hópurinn síðan Kvintett fyrir klarinettu og strengi eftir Jean Francaix. „Hann er þekktur fyrir að skrifa létta en krefjandi músík, mjög skemmtilega áheyrnar. Það er mikill húmor í þessu verki en það er ljóðrænt og mjög fallegir hægir kaflar. Verkin hans minna stundum á götumyndir í París eða franskar bíómyndir.“ Camerarctica skipa að þessu sinni Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari, Ármann Helgason klarinettuleikari, Una Svein- bjarnardóttir og Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikarar, Jón- ína Auður Hilmarsdóttir víólu- leikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari. Tónleikarnir hefjast að vanda kl. 15.15. - khh Léttleikandi músík TÓNLISTARHÓPURINN CAMERARCTICA Garðveislutónlist Beethovens í bland við ljóðræna franska angurværð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Bræðurnir Kristján og Sigurður Guðmundssynir halda mikið upp á Seyðis- fjörð og opna sameiginlega myndlistasýningu í menn- ingarmiðstöðinni Skaftfelli í dag. „Seyðisfjörður og Ísafjörður eru uppáhaldsstaðir okkar bræðra hér á landi, svona menningarlega séð - nema kannski fyrir utan Reykja- vík. Við höfum umgengist fólkið hérna lengi og höfum alltaf verið í einhverjum tengslum við þennan stað,“ segir Sigurður Guðmunds- son myndlistarmaður. Skaftfell er miðstöð myndlistar á Austurlandi en í þessu fallega hús á Seyðisfirði er sýningarsalur og vinnustofa fyrir listamenn og þar hefur Diet- er Roth akademían einnig aðsetur. Myndlist þeirra bræðra hefur sterkar rætur í hugmynda- eða konseptlist sem mótaðist á 7. ára- tuginum er þeir hafa farið sínar eigin persónulegu leiðir og mynd- list þeirra sprettur af misjöfnu meiði. Kristján útskýrir að sín verk séu nýleg en hafi þó verið sýnd áður. „Ég er með gólfverk, skúlpt- úra úr áli og verk unnið með torf- hleðslu. Svo er ég líka með einn lampa og símaljóð - það er eins- konar úrdráttur úr verki sem ég gerði einu sinni. Þetta eru ekki gömul verk en svona blanda.“ Sigurður sýnir eldri verk sem eiga það sameiginlegt að vera öll af pólitískum toga. „Þetta eru teikningar, emaleruð skilti og kvikmynd. Þau eiga lítið sameig- inlegt myndrænt en pólitíkin teng- ir þau. Þau hafa verið sýnd áður en aldrei saman.“ Sigurður kveðst frekar pólitískur maður þó hann láti ekki mikið á því bera. „Ég hef alltaf fylgst með stjórnmálum, oftar þó utanríkispólitíkinni af því ég hef búið í svo mörgum löndum. Ég er með lögheimili í Kína og hef ekki kosningarétt þar en finnst það nú allt í lagi. Utanríkispólitík- in höfðar meira til mín því ég hef lítinn áhuga á íslenskri lókalpólitík - það er bara af þekkingarskorti. Þetta er eins og með fótboltann, maður verður að þekkja liðin til þess að hafa áhuga á leiknum, eiga sér uppáhaldslið til að halda með. Ef ég byggi hér þá væri þetta kannski annað mál,“ útskýrir Sig- urður. Kristján og Sigurður hafa aðeins einu sinni sýnt saman en þeir héldu eitt sinn litla sýningu á Næsta bar í Ingólfsstræti. „Við þekkjumst vel bræðurnir og þekkjum hvers annars list mjög vel enda höfum við lifað mjög svipuðu listalífi þó list okkar sé ólík á yfirborðinu. Við höfum allt- af verið andlegir sálufélagar í list- inni. Sýningin verður opnuð kl. 16 í dag og markar hún einnig upphaf að bæjarhátíðinni Á Seyði 2006 sem stendur fram til 26. ágúst. Í húsinu verður jafnframt sýningar- röðin „Vesturveggurinn“ þar sem ýmsir listamenn sýna í tvær til þrjár vikur fram í september. Sýn- ingar í Skaftfelli eru opnar daglega frá 14-21. kristrun@frettabladid.is Andlegir sálufélagar í listinni SIGURÐUR OG KRISTJÁN GUÐMUNDSSYNIR SÝNA Í SKAFTFELLI Á SEYÐISFIRÐI „Við þekkjum hvers annars list mjög vel enda höfum við lifað mjög svipuðu listalífi þó list okkar sé ólík á yfirborðinu.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.