Fréttablaðið - 27.06.2006, Page 2
2 27. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR
����������������������������������������� ������������
�������������
������������
������ ���
�����������������������������������������������������������������
������
�������
����
����
������
�
������
�����
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����
VÍNARBORG, AP Evrópusambandið
hvatti í gær öll ríki til þess að
undirrita alþjóðasamning gegn
pyntingum. Í yfirlýsingu
Evrópusambandsins segir að
pyntingar séu ekki aðeins
„grimmilegar, ómannúðlegar og
niðurlægjandi“ fyrir hvern þann
sem fyrir þeim verður, heldur
einnig fyrir alla sem fremja slíkan
verknað og líka fyrir þau
samfélög sem „láta sér lynda
slíka óhæfu.“
Evrópusambandið fordæmir í
yfirlýsingunni allar tilraunir
ríkja eða embættismanna til þess
að lögleiða pyntingar eða láta
þær viðgangast undir hvaða
formerkjum sem er, jafnvel þótt
ráðamenn einhvers lands geri
það með tilvísun í öryggi eigin
þjóðar.
Í yfirlýsingunni er hvergi
minnst á meinta tilveru leyni-
legra fangelsa á vegum Banda-
rísku leyniþjónustunnar í ríkjum
Austur-Evrópu, þar sem margir
telja að pyntingar séu stundaðar.
„Evrópusambandið leggur
gríðarmikla áherslu á hlutverk
Sameinuðu þjóðanna í baráttu
gegn pyntingum og til stuðnings
fórnarlömbum,“ segir í yfirlýs-
ingunni.
Evrópusambandið sendi þessa
yfirlýsingu frá sér sama daginn
og Sameinuðu þjóðirnar héldu í
níunda sinn árlegan dag til stuðn-
ings fórnarlömbum pyntinga.
- gb
RÁÐAMENN Í AUSTURRÍKI Ursula Plassnik,
utanríkisráðherra Austurríkis, ásamt Wolf-
gang Schüssel kanslara og Hugerb Gorbach
aðstoðarkanslara, á blaðamannafundi
sem þau efndu til í gær í tilefni þess að
Austurríki lætur af formennsku Evrópusam-
bandsins um mánaðamótin. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Evrópusambandið fordæmir pyntingar á alþjóðadegi gegn pyntingum:
Pyntingar niðurlægja alla
sem láta þær viðgangast
SPURNING DAGSINS
Valgerður eru samningar í
höfn?
„Það eru alltaf einhverjir samningar í
höfn.“
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra sat
í gær ráðherrafund EFTA-ríkjanna á Höfn í
Hornafirði.
VINNUMARKAÐUR Starfsmenn IGS fá
allt að 22.300 króna launahækkun
þegar greitt verður samkvæmt
samkomulagi Alþýðusambands
Íslands og Samtaka atvinnulífsins
frá því í síðustu viku. Umsamdar
fimmtán þúsund krónur hafa þau
áhrif að taxtar hækka og álag og
yfirvinna gefa fleiri krónur.
„Allt þetta fólk fær útreikninga
á breyttum launatöflum. Í ljósi
þess að þetta fólk hefur ekki notið
neins launaskriðs þá munu þessar
breytingar skila sér að fullu til
þeirra. Við munum sjá launataxta
hækka hátt í 22 þúsund út af
áhrifum fimmtán þúsund krón-
anna,“ segir Kristján Gunnarsson,
formaður Starfsgreinasambands
Íslands.
Kristján segir að launahækkunin
svari þó ekki kröfum starfsmanna
IGS. „Þau telja hana engan veginn
nægjanlega. Það kemur sterkt
fram að þau hafa alltaf verið
niðurnjörvuð á taxta og ekkert
launaskrið fengið í ár og áraraðir,“
segir hann og telur að hluti af
vandamálinu sé sá að starfsmenn-
irnir séu orðnir langþreyttir á
samskiptum við yfirmenn í starfs-
mannahaldi.
„Það er eins og allt hafi snúist í
höndum yfirmannanna í samskiptum
við starfsmennina. Stjórnendurnir
eru með vindinn í fangið í öllum
sínum aðgerðum. Þeir voru til að
mynda að taka tímastjórnunar-
kerfið Time Care í notkun og það
mætir gríðarlegri andstöðu. Því er
samt rutt yfir starfsmennina án
þess að þeir fái rönd við reist,“
segir hann.
Gunnar Olsen, framkvæmda-
stjóri IGS, segir að verið sé að inn-
leiða tímastjórnunarkerfið og ekki
hafi verið litið svo á að það væri
óþægilegt fyrir starfsmenn heldur
frekar jákvætt því að þá gefist
þeim kostur á að velja sér vinnu-
tíma. Hann kveðst hafa heyrt af
andstöðu en reynt að kynna kerfið
til að fólk fengi jákvæðari sýn.
Kristján hefur heyrt af því að
erlendum starfsmönnum IGS hafi
verið hótað. Þetta telur Gunnar að
sé með ólíkindum að blaðamenn
hlusti á. Vandamálið sé þrískipt:
launamálin, órói sem fylgi miklu
álagi og aðstöðumál. „Við ætlum
að hitta fólkið okkar og reyna að
finna einhverjar leiðir til að lægja
öldurnar,“ segir hann.
Jón Karl Ólafsson, forstjóri FL
Group, sagði ákveðin vandamál á
borðinu sem verði leyst í samningum
við starfsmenn.
Búist er við öðru setuverkfalli
um næstu helgi verði málið ekki
leyst þá. ghs@frettabladid.is
Launin hækkuð um
22 þúsund krónur
Starfsmennirnir sem lögðu niður vinnu í Flugstöðinni á sunnudagsmorguninn
fá um 22 þúsund króna hækkun samkvæmt samkomulagi ASÍ og SA. Formaður
Starfsgreinasambandsins segir þá telja þessa hækkun ekki nægja.
MUN SKILA SÉR AÐ FULLU Starfsmenn IGS ættu að fá um 22 þúsund króna hækkun
þegar samkomulag ASÍ og SA frá því í síðustu viku kemur til framkvæmda í byrjun ágúst.
Samkomulagið ætti að skila sér að fullu þar sem fólkið hjá IGS hefur ekki fengið neitt
launaskrið síðasta árið.
„Þrátt fyrir að skýjað sé í kring,
skín sólin beint á keppnisvöllinn
eins og geislabaugur,“ sagði Hulda
Geirsdóttir þar sem hún sat í
áhorfendabrekkunni á Landsmóti
hestamanna á Vindheimamelum í
Skagafirði í gær. Þá voru þegar
mætt norður um þrjú þúsund
manns sem er nokkuð meira en
búist var við á fyrsta degi.
„Þetta hefur farið rosalega vel
af stað. Það er mikil ánægja með
mótssvæðið, keppendur láta vel af
keppnisvöllunum enda fallegir og
snyrtilegir,“ bætir Hulda við.
Búist er við að yfir tíu þúsund
gestir muni leggja leið sína í Skaga-
fjörðinn í þessari viku og um
helgina til að berja augum þá
þúsund hesta sem sýndir verða
bæði á keppnisvellinum og í
kynbótasýningum.
„Það er mjög gaman að segja frá
því að efsta hryssan í flokki hryssna
sjö vetra og eldri kemur úr Sauðár-
króksræktuninni. Það er Hvíta-
Sunna frá Sauðárkróki og skemmti-
legt fyrir heimamenn að byrja
mótið svona,“ segir Hulda glaðlega
og klappar duglega fyrir einum af
þeim fjölmörgu unglingum sem
ljúka keppni. „Keppnin í ungmenna-
flokki var feikigóð og Freyja Amble
er þar langefst á Krumma frá
Geldingalæk. Hún bætir þar upp
mistökin frá síðasta móti þegar þau
fengu ekki einkunn þar sem knapi
var með písk. En nú stefnir hún á
sigur,“ segir Hulda, full landsmóts-
gleði. - sgi
Yfir þrjú þúsund manns voru mætt á fyrsta degi Landsmóts hestamanna í gær:
Freyja Amble efst á Krumma
KEPPNISANDINN SVÍFUR YFIR VÖTNUM
Forkeppni í ungmennaflokki fór vel af stað
og fóru þar mörg glæsipör á vellinum. Rósa
Birna Þorvaldsdóttir og grái klárinn hennar
Bylur frá Kleifum FRÉTTABLAÐIÐ/EIÐFAXI
JERÚSALEM, AP
Ehud Olmert,
forsætisráðherra
Ísraels, útilokar
allar samninga-
viðræður við her-
skáa Palestínu-
menn sem hafa
ungan ísraelskan
hermann í haldi sínu.
Palestínumennirnir handtóku
ísraelska hermanninn á sunnudag,
þegar þeir gerðu árás á landamæra-
stöð við Gazasvæðið. Þeir kröfðust
þess að Ísraelar leysi úr haldi allar
palestínskar konur og ungmenni úr
ísraelskum fangelsum.
Í gær söfnuðust ísraelskir
hermenn saman við landamæri
Gazasvæðisins og bjuggu sig
undir viðamiklar aðgerðir gegn
herskáum Palestínumönnum á
Gazasvæðinu í beinu framhaldi af
atburðunum á sunnudag. - gb
Forsætisráðherra Ísraels:
Útilokar með
öllu að semja
BJÖRGUNARSVEITIR Þrír íslenskir
ferðamenn komu fram í gærkvöldi
eftir að björgunarsveitir voru
kallaðar út til leitar. Ekkert hafði
spurst til fólksins síðan í fyrra-
dag, en fólkið fannst í bíl sínum,
sem er breytt jeppabifreið, á
svokallaðri Heklubraut, rétt aust-
an við Heklu. Fólkið festi bílinn en
gat ekki látið vita af ferðum sínum.
Þegar fólkið fannst var það þreytt
en leið annars vel.
Björgunarsveitin Dagrenning á
Hvolsvelli og Flugbjörgunarsveitin
á Hellu leituðu fólksins á þremur
bílum og tóku sjö björgunarsveitar-
menn þátt í leitinni. - sgj
Björgunarsveitir á Suðurlandi:
Ferðafólk kom
í leitirnar í gær
LYFJAVERÐ Í nýlegri verðlagskönnun
verðlagseftirlits Alþýðusambands
Íslands kemur fram að verð á
lyfseðilsskyldum lyfjum hefur
hækkað um allt að tuttugu prósent
hjá markaðsráðandi lyfsölukeðjum
frá því í apríl í fyrra.
Þar að auki hafa lyfjabúðir
dregið úr afslætti sem þær veita
af hluta sjúklings í lyfjaverðinu
og þar með, samkvæmt heimasíðu
ASÍ, minnkað verulega ávinning
neytenda af því samkomulagi sem
gert var við lyfjasmásala í fyrra
um lækkun á lyfjaverði.
Ungir jafnaðarmenn líta á hátt
lyfjaverð sem alvarlega ógnun við
velferðina. - æþe
Ný lyfjaverðskönnun ASÍ:
Tuttugu pró-
senta hækkun
UMFERÐ Umferð á þjóðvegum jókst
um sex prósent milli áranna 2004 og
2005. Heildarakstur á þjóðvegum
árið 2005 var rúmlega tveir
milljarðar ekinna kílómetra.
„Þetta er mesta aukning frá
árinu 1999 en þá bættist akstur á
þjóðvegum í þéttbýli við töluna.
Áætlað er að akstur á þjóðvegum sé
um sjötíu prósent af heildarakstri á
landinu,“ segir Auður Þóra Árna-
dóttir, forstöðumaður umferðar-
deildar Vegagerðarinnar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Umferðarstofu urðu tuttugu bana-
slys í umferðinni árið 2004 en voru
sextán árið 2005. Hins vegar fjölg-
aði alvarlegum slysum í umferðinni
úr 97 árið 2004 í 107 árið 2005. - öhö
Umferð á þjóðvegum eykst:
Mesta aukning
frá árinu 1999
Á ÞJÓÐVEGINUM Áætlað er að um 70 pró-
sent umferðar á landinu sé á þjóðvegum.
STJÓRNMÁL George
H. W. Bush, fyrr-
verandi forseti
Bandaríkjanna og
faðir núverandi
forseta, hefur þegið
boð Ólafs Ragnars
Grímssonar, for-
seta Íslands um að
heimsækja landið
4.-7. júlí næstkomandi.
Bush kemur til landsins 4. júlí,
á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna,
og snæðir kvöldverð á Bessastöðum.
Með í för verður Sig Rogich sem
var sendiherra Bandaríkjanna á
Íslandi í forsetatíð hans.
Bush mun svo halda til laxveiða
í boði Orra Vigfússonar, formanns
Verndarsjóðs villtra laxastofna,
en þann málstað styður forsetinn
fyrrverandi eindregið. -sgj
Fyrrverandi Bandaríkjaforseti:
Bush eldri til
Íslands í júlí
GEORGE BUSH
ELDRI
GILAD SHALID