Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.06.2006, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 27.06.2006, Qupperneq 6
6 27. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR www.lyfja.is - Lifið heil VIRKAR Á ÖLLUM STIGUM FRUNSUNNAR - ALDREI OF SEINT! Vectavir FÆST ÁN LYFSEÐILS Vectavir krem er áhrifaríkt lyf til meðferðar á frunsum af völdum Herpes Simplex. Vectavir virkar á öllum stigum frunsunnar frá sting eða æðasláttar til blöðru. Í Vectavir er virka efnið penciklóvír sem stöðvar framgang veirunnar. Vectavir er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Berið Vectavir á frunsusvæðið á 2 klst. fresti í 4 daga. Berið á rétt fyrir svefn og um leið og vaknað er. Dæmigert er að frunsa komi fram við ofreynslu, kvef eða inflúensu eða í mikilli sól (t.d. á skíðum). Ekki á að nota lyfið ef að áður hefur komið fram ofnæmi fyrir penciklóvír, famciklóvír eða öðrum innihaldsefnum. Með Vectavir grær frunsan hraðar, verkir minnka og smittími styttist. Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. ÍS LE N SK A AU G L† SI N G AS TO FA N /S IA .I S L YF 3 32 04 06 /2 00 6 Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd Selfossi - Laugarási Ármúla 11 - sími 568-1500 Lónsbakka - sími 461-1070 Garðsláttuvélar Þýskar gæðasláttuvélar fyrir þá sem gera kröfur um gæði LÍKAMSÁRÁS Sex ungmenni, þar af ein kona, af asískum uppruna voru ákærð fyrir stórfellda lík- amsárás í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær. Þeim er gefið að sök að hafa, í aprílmánuði árið 2004, ráðist í sameiningu á mann fyrir utan skemmtistaðinn Nelly’s í Þing- holtsstræti að næturlagi. Auk þess að láta högg og spörk dynja á fórnarlambinu, slógu tvö þeirra, þar á meðal konan, mann- inn með glerflösku í höfuðið. Maðurinn, sem er um þrítugt, hlaut ýmsa áverka, þar á meðal nefbrot og nokkra skurði í andlit og á höfuð. Hann leitaði sér aðhlynningar á slysadeild eftir árásina. Ákæruvaldið krafðist refsing- ar og fórnarlambið fór fram á skaðabætur. Einn hinna ákærðu kvaðst fyrir dómi, lýsa furðu sinni á hversu mikla áverka fórnar- lambið hafi hlotið, því slagsmál- in hafi ekki verið það alvarleg. Hann sagði líka að hópur Íslend- inga hefði tekið þátt í slagsmál- unum og að margir þeirra hefðu látið högg dynja á sér. Einn sakborninganna lýsti yfir sakleysi sínu en konan og tveir mannanna játuðu að hluta til ákærunni. Tveir hinna ákærðu voru fjarverandi. Réttarhöld í málinu fara fram fyrir Héraðs- dómi í haust. - æþe Sex ungmenni ákærð fyrir að láta högg og spörk dynja á ungum manni: Ákærð fyrir stórfellda árás SAKBORNINGAR YFIRGEFA HÉRAÐSDÓM Sex ungmenni eru ákærð fyrir stórfellda líkamsárás, á myndina vantar tvo sakborn- inga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI KJARAMÁL Ósamið er við ríkis- starfsmenn eftir að samkomulag náðist á hinum almenna vinnu- markaði um að framlengja kjara- samninga. Starfsmannafélag rík- isstarfsmanna hefur óskað eftir launaviðræðum við fjármálaráðu- neytið. Önnur aðildarfélög munu að líkindum gera það sama. Opinberir starfsmenn gerðu ekki ráð fyrir neinum viðræðum við hið opinbera fyrr en seint í haust en vilja nú fá þeim flýtt þar sem ASÍ hefur náð samkomulagi um að framlengja kjarasamninga. Vilja flýta viðræðum: Ósamið við rík- isstarfsmenn ALÞJÓÐASAMSTARF Ráðherrafundur EFTA-ríkjanna lauk á Höfn í Hornarfirði í gær. Á fundinum var fríverslunarsamningur EFTA við Tollabandalag Suður-Afríkuríkja undirritaður en þetta er fyrsti fríverslunarsamningurinn sem EFTA-ríkin gera við Afríkuríki sunnan Sahara. Ísland fer nú með formennsku í EFTA og stýrði Valgerður Sverris- dóttir utanríkisráðherra fundinum á Höfn. „Þetta er sextándi fríverslunarsamningurinn sem EFTA gerir og allir þessir samn- ingar ganga út á það að gera við- skipti auðveldari á milli þjóða og það er okkur Íslendingum mjög mikilvægt að svo sé, þar sem við byggjum svo mjög á innflutningi og útflutningi. Þess vegna er þetta eitt jákvætt skref sem þarna er tekið, og á eftir að koma í ljós hversu miklu máli það skiptir okkur Íslendinga,“ segir Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra. Íslendingar flytja aðallega út lyf og iðnaðarvörur til Suður- Afríku en síðastliðin þrjú ár höfum við flutt út lyfjavörur fyrir um hundrað milljónir á ári. Frá Suður- Afríku er mest flutt inn af ávöxtum og grænmeti en einnig nokkuð af drykkjarvörum og tóbaki en það er undir innflytjendum hér á landi komið hvað verður flutt inn. Löndin sem tilheyra tollabandalaginu eru Suður-Afríka, Botsvana, Lesótó, Namibía og Svasíland. EFTA-ríkin eiga einnig í fríverslunarviðræðum við meðal annars Egypta og Taílendinga og er áhersla lögð á að tengslin við Asíu. „Það er mikil áhersla lögð á Asíu, það eru mjög spennandi hlut- ir að gerast þar og reiknað með miklum framgangi þar á næstu árum og áratugum, þannig að það skiptir okkur máli að gera frí- verslunarsamning við ríki í Asíu,“ segir Valgerður. Valgerður sat einnig fund með sendinefnd frá samtökum atvinnu- rekenda í Japan ásamt Odd Eriksen, viðskipta- og iðnaðarráðherra Nor- egs, og William Rossier, fram- kvæmdastjóra EFTA. Enginn frí- verslunarsamningur er á milli EFTA-ríkjanna og Japans en á fund- inum var rætt um leiðir til þess að efla samskipti ríkjanna tveggja. „Það er komið af stað og sérstaklega er það gagnvart Sviss eins og málið stendur í dag, sem sagt tvíhliða á milli Sviss og Japans, en hins vegar gerum við okkur vonir um að þau mál muni þróast þannig að það verði gagnvart EFTA-þjóðunum einnig,“ segir Valgerður. Aðspurð um áhuga Færeyinga á að hljóta aðild að EFTA segir Val- gerður að það mál hafi verið rætt á fundinum. „Það er ekki alveg ein- falt mál, en eitthvað sem við mun- um skoða áfram.“ gudrun@frettabladid.is Flytjum helst út lyf til Suður-Afríku Fríverslunarsamningur við Tollabandalag Suður-Afríkuríkja var undirritaður í gær. Valgerður Sverrisdóttir segir samninginn mikilvægan fyrir Íslendinga. AÐ LOKINNI UNDIRRITUN Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra, William Rossier framkvæmdastjóri EFTA og Joseph Deiss, efnahagsráðherra Sviss, voru kát eftir undirritun fríverslunarsamningsins. SVÍÞJÓÐ, AP Jan Eliasson, utan- ríkisráðherra Svíþjóðar, hvet- ur stjórnvöld í Sómalíu til að rannsaka með hraði morðið á sænska mynda- tökumanninum Martin Adler. Utanríkisráðherr- ann fordæmdi morðið og sagði að erlent fjölmiðlafólk væri „augu alþjóðasamfélagsins“ í landinu. Abdullahi Yusuf, forseti bráða- birgðarstjórnar Sómalíu, hringdi í utanríkisráðherrann eftir morðið í síðustu viku og vottaði honum samúð sína. Hann hét því þá að finna sökudólginn. Adler var skotinn í bakið á fjöldafundi til stuðnings íslamist- um, en þeir fara með raunveruleg völd í landinu. Þeir segja „erlenda friðarspilla“ ábyrga fyrir morð- inu; að það hafi átt að varpa skugga á hið góða verk sem þeir hafi unnið. - kóþ Utanríkisráðherra Svíþjóðar: Krefst rann- sóknar á morði LÖGREGLUMÁL Mikið var um að vera hjá lögreglunni í Árnessýslu um helgina, en þó engin stóráföll. Af 64 ökumönnum sem kærðir voru fyrir hraðakstur í vikunni var einn sviptur ökuleyfi til bráða- birgða, en hann ók á 166 kílómetra hraða á Hellisheiði aðfaranótt sunnudags. Meðal annarra tíðinda voru fáein slys á fólki og væg líkams- árás á skemmtistaðnum Pakkhús- inu. - sgj Erilsamt á Selfossi: Ók á 166 kíló- metra hraða Gripnir glóðvolgir Tveir menn voru gripnir við innbrot í verslunina Samkaup Strax á Akranesi. Þegar lögregla kom voru mennirnir komnir út með þýfið. Reyndi þá annar þjófanna að forðast réttvísina á hlaupum en var gripinn. LÖGREGLUFRÉTTIR MENNING Í síðustu viku var stödd hér á landi fimmtán manna menn- ingarmálanefnd á vegum danska þingsins en hópurinn var að kynna sér stöðu menningarmála á Íslandi. Á miðvikudagsmorgun var hald- inn fundur þar sem danska og íslenska menningarmálanefndin ræddu saman. Sigurður Kári Kristj- ánsson alþingismaður sem er for- maður íslensku menningarmála- nefndarinnar segir nefndirnar hafa skipst á skoðunum um hvað væri að gerast í menningarmálum beggja landa. Sigurður Kári sagði það hafa vakið athygli dönsku menningar- málanefndarinnar að hérlendis væri foreldrum ungmenna greitt vegna tónlistar- og íþróttaiðkunar. Þá þakkaði Sigurður aukna þekk- ingu og hæfni íslenskra kvikmynda- gerðarmanna því að íslensk kvik- myndagerð dafnar sem aldrei fyrr. „Okkur lék hins vegar hugur á að vita af hverju Danir væru svo framarlega í gerð sjónvarpsþátta og raun ber vitni en þeir leggja mikið í menntun á þessu sviði auk þess sem styrkir frá opinberum aðilum og einkaaðilum hafa aukist til þessara mála.“ Einn úr dönsku menningarmála- nefndinni sagði áhugavert að kynna sér menningarmál á Íslandi, ekki síst í ljósi þess að héðan koma heimsfrægir listamenn. Nefndin hafði hitt íslenska listamenn og séð þá að verki og var ánægð með stöðu menningarmála hérlendis. Menningarmálanefnd danska þingsins kynnir sér menningarmál á Íslandi: Ánægð með stöðu mála DANSKA MENNINGARMÁLANEFNDIN Var ánægð með stöðu menningarmála á Íslandi. DÓMSMÁL Manni á fertugsaldri var birt ákæra í níu liðum, fyrir ýmis lögbrot, í Héraðsdómi Reykjavík- ur í gær. Maðurinn, sem er fangi á Litla- Hrauni, framdi síðasta brotið í febrúar á þessu ári þegar hann var staðinn að innbroti. Það var degi áður en hann átti að mæta í dómsuppkvaðningu vegna brots- ins sem hann afplánar nú dóm fyrir. Játning liggur fyrir í öllum málunum, en maðurinn sagði fyrir dómi að hann ætti við fíkniefna- vanda að etja. Ákæruvaldið krafðist frekari refsingar og dómsuppkvaðningar er að vænta í næsta mánuði. - æþe Síbrotamaður á Litla-Hrauni: Braust inn degi fyrir dóm JAN ELIASSON KJÖRKASSINN Hefur þú hugsað þér að skipta um raforkusala? Já 33% Nei 67% SPURNING DAGSINS Í DAG Ætlar þú að fara á listasýningu í sumar? Segðu þína skoðun á Vísi.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.