Fréttablaðið - 27.06.2006, Side 10

Fréttablaðið - 27.06.2006, Side 10
10 27. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L YF 3 32 64 06 /2 00 6 www.lyfja.is „Ég geri meira fyrir mig og mína á sumrin“ TREK hráfæðis próteinbar Náttúruleg orka, tilvalið í nestispokann, engin aukaefni og enginn viðbættur sykur. Acidophilus Mjólkursýrugerlar fyrir börn og fullorðna. Fyrir heilbrigða meltingu, ekki síst á ferðalögum erlendis. PGX - Drykkjarblanda Bylting í þyngdarstjórnun. Misstu fituna - ekki vöðvamassa eða vökva. Þú bókar ferðina þína á netinu eða í síma 585 4000 www.urvalutsyn.is Salan er hafin 25% þrátt fyri r lækkun krónunna r! Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn. Verð m.v. að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis bætist við 2.000 kr. bókunar- og þjónustugjald á mann. Barbacan Sol 2. jan. í viku – með því allra besta 72.280 kr. á mann m.v. 2 í íbúð m/1 svefnherb. Morgunverður innifalinn. Las Camelias 2. jan. í viku – vinsælasta gistingin 48.155kr. á mann m.v. 2 í íbúð m/1 svefnherb. Við höldum gæðunum frá því í fyrra en lækkum verðið! Kynntu þér tilboðin okkar og frábæra gistimöguleika. Bahia Meloneras smáhýsi 2. jan. í viku – tilvalið fyrir fjölskyldur 62.169 kr. á mann m.v. 2 í smáhýsi. Jól á Bahia Meloneras 20. des. í 9 nætur – bestu jólin! 79.450 kr. á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í smáhýsi. Verðlæk kun allt a ð ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 3 32 26 06 /2 00 6 Gististaðir Úrvals-Útsýnar á Kanaríeyjum Parque Tropical Riu Don Miguel Barbacan Sol Las Camelias Las Margaritas Vista Flor smáhýsi Cay Beach Princess smáhýsi Bahia Meloneras smáhýsi Gran Villa Del Conde Beach Club Marina Suites Gloria Palace Tabaiba Princess Costa Meloneras HEILBRIGÐISMÁL Nýr samstarfs- samningur Barna- og unglinga- geðdeildar Landspítala-háskóla- sjúkrahúss og Miðstöð heilsuverndar barna mun stytta biðtíma margra barna eftir þjón- ustu á BUGL. Markmið samningsins er að stuðla að bættri þjónustu við börn með hegðunar- eða geðvanda og fjölskyldur þeirra með því að auka aðgengi að sérhæfðri greiningu, meðferð og eftirfylgd innan heilsugæslunnar. Þetta dregur úr álagi á þá þjónustu sem veitt er frá BUGL. Undanfarin ár hefur Þroska- og hegðunarsvið Miðstöðvar heilsu- verndar barna sinnt greiningu vegna gruns um frávik í þroska eða hegðun barna á aldrinum 0-6 ára. Með þessum nýja samningi við BUGL verður þjónustan aukin vegna barna með vanda- mál svo sem ofvirkni, athyglis- brest og aðrar hegðunar- eða lyndistruflanir, sérstaklega hvað varðar ráðgjöf og eftirfylgd auk greiningar. Þessi aukna þjónusta mun einnig standa til boða fyrir börn í fyrsta bekk grunnskóla og stefnt er að því að efla hana og auka eftir því sem fjárveitingar frá ráðuneyti heilbrigðismála leyfir, að því er fram kemur hjá Gyðu Haraldsdóttur, sálfræðingi og sviðsstjóra Þroska- og hegð- unarsviðs Miðstöðvarinnar. - jss BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILD Nýr sam- starfssamningur við Miðstöð heilsuverndar barna hefur verið undirritaður. Samstarfssamningur BUGL og Miðstöðvar heilsuverndar barna: Bið margra barna styttist ORKUVERÐ Stjórn Landsvirkjunar felldi tillögu Helga Hjörvar og Álf- heiðar Ingadóttur í gær um að fara þess á leit við Alcoa Fjarðaál að aflétta trúnaði varðandi verð í orkusölu- samningi fyrirtækj- anna vegna Kára- hnjúkavirkjunar. Í greinargerð segir að það hafi verið umdeilt að upplýsa ekki um raforkuverð. Færa megi sterk rök fyrir því að almenningur eigi rétt á þessum upplýsingum. Forstjóri Alcoa hafi hins vegar aflétt trúnaði nýlega. Óhjákvæmilegt sé annað en að Landsvirkjun óski þess að leynd verði létt svo að „leiðrétta“ megi umræðuna. „Eftir þetta verður ekki viðun- andi að það séu misvísandi upplýs- ingar um verð. Alcoa hefur komið Landsvirkjun í mjög slæma stöðu. Það er ekki hægt að skilja yfirlýs- ingu hans öðruvísi en að Lands- virkjun semji um helmingi lægra orkuverð en í Suður-Ameríku. Það væri ekki gott ef satt væri. Því væri langeðlilegast að verðið væri birt til að menn geti sannreynt hvort orkuverðið er gott eða vont,“ segir Helgi. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, formaður Landsvirkjunar, segir að „algjöra stefnubreytingu“ þurfi til að aflétta trúnaði varðandi orku- verð. Það sé sín persónulega skoð- un að halda eigi verðinu leyndu eins og almennt gerist í viðskipt- um. - ghs Tillaga um að uppljóstra orkuverði felld í Landsvirkjun: Væri stefnubreyting HELGI HJÖRVAR KÖNNUN „Í sjálfu sér koma niður- stöðurnar mér ekki á óvart. Það er ljóst að fjölskylduábyrgðin er ennþá að mestu á herðum kvenna,“ sagði Fanný Gunn- arsdóttir, formaður Jafnréttisráðs, í samtali við Frétta- blaðið, um nýja könnun Gallup á tíðni og ástæðum vinnuskipta karla og kvenna. Í könnuninni, sem gerð var fyrir Jafnréttisráð, kemur meðal annars fram að heldur fleiri karlar en konur voru að leita sér að starfi eða um 12 prósent karla á móti 8 prósentum kvenna. Hins vegar var ekki marktæk- ur munur á kynjunum þegar spurt var hvort þátttakendur könnunar- innar hefðu skipt um vinnuveit- anda á síðustu tveimur árum. Þá kemur fram í könnuninni að rétt tæplega tvöfalt fleiri karlar hafa misst fyrri vinnu og um tvö- falt fleiri karlar en konur setja til- breytingu sem ástæðu vinnu- skipta. Ríflegar þrisvar sinnum fleiri konur en karlar nefna fjöl- skylduábyrgð sem ástæðu fyrir vinnuskiptum á meðan um tvisvar sinnum fleiri karlar en konur skipta um vinnu vegna launa. „Við vitum auðvitað að þessi hefðbundnu kvennastörf eru metin til lægri launa og þegar fjölskylda stendur frammi fyrir því að velja á milli atvinnu og fjölskyldu þá er miklu líklegra að konur dragi við sig að vera úti á vinnumarkaðnum meðan laun þeirra eru lægri en karla,“ segir Fanný. - öhö Jafnréttisráð lét kanna ástæður vinnuskipta kynja: Karlar leita frekar að tilbreytingu FANNÝ GUNN- ARSDÓTTIR HEIMSÓKN Varaforseti kínverska ráðgjafarþingsins, Zhang Meiying, ásamt sjö manna sendinefnd, kom í heimsókn til Íslands á sunnudag en hún verður hér fram til mið- vikudags. Ekki er um opinbera heimsókn að ræða heldur er vara- forsetinn að endurgjalda heim- sókn íslensku sendinefndarinnar sem fór til Kína í fyrra að heim- sækja ráðgjafarþingið. Í gær var farið í skoðunarferð- ir um Suðurland og Reykjanes. Í dag heimsækir varaforsetinn Alþingi og félagsmálaráðherra ásamt því að fara til Bessastaða þar sem hún mun eiga fund með forseta Íslands. - gþg Heimsókn frá Kína: Hittir forset- ann í dag SIGLT FRAMHJÁ FRELSISSTYTTUNNI Þetta seglskip er nákvæm eftirgerð af God- speed, einu af þremur skipum sem fluttu landnema frá Englandi til Bandaríkjanna árið 1607. Nýja skipið sigldi inn í höfnina í New York í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.