Fréttablaðið - 27.06.2006, Qupperneq 26
■■■■ { vélar og tæki } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■2
„Maður sem var byrjaður að gera
vörubílinn upp, en hafði ekki
aðstöðu til að klára verkið, fól mér
bílinn,“ segir Sævar Pétursson er
hann er spurður hvers vegna hann
tók að sér að gera upp gamlan vöru-
bíl. Bíllinn sem er af gerðinni Ford
´41 módel var upphaflega notaður
við vegavinnu og svipuð störf norð-
ur í Eyjafirði.“ Þetta þótti stór bíll á
þeim tíma, en bílar sem þessi fluttu
um 2,5 tonn af sandi og er hann
með sturtubúnaði og fleiru sem var
sjaldgjæft,“ segir Sævar. Í bílnum er
100 hestafla vél sem Sævar þurfti
að taka algerlega í gegn. „Ég skipti
meðal annars um stimpla, legur og
ventla.“
Bíllinn er sérstakur að mörgu
leyti, en honum þarf að tvíkúpla
þegar skipt er um gír. „Ég er nátt-
úrulega þaulvanur því, enda keyri
ég mikið af fornbílum.“ Auk þess
ók Sævar svipuðum bíl hjá Bæjar-
útgerðinni í gamla daga. „Það var
reyndar ´47 módelið sem ég vann
á,“ segir Sævar.
Hann segir vörubílinn vera þann
eina af þessari gerð sem er gangfær
í dag, en hann veit til þess að einn
annar er til, en sá hefur ekki verið
gerður upp.
Bílinn er Sævar oft með til sýnis,
þá jafnvel í Húsdýragarðinum og
á fleiri stöðum. Hann segir bíl sem
þennan alltaf vekja athygli en fyrir
honum er fátt eðlilegra en að aka
um á fornbíl. „Ég hef ekið um á
gömlum Ford frá árinu ´78 og það
var ekki fyrr en um síðustu áramót
að ég fékk mér nýjan bíl. En ég gríp
ennþá í þann gamla, því ég er ekki
tilbúinn til að skipta alveg,“ segir
Sævar.
Á erfitt með að keyra nýja bíla
Sævar Pétursson, formaður Fornbílaklúbbs Íslands, gerði upp Ford 4́1 módel af vörubíl.
Sævar Pétursson við vörubílinn sem hann gerði upp. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN AXELSDÓTTIR
Vörubíllinn er af gerðinni Ford ´41 módel með 100 hestafla vél. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN AXELSDÓTTIR
Jón Björgvinsson er skipstjóri á
hafnsögubátnum í höfninni í Hafn-
arfirði. Við hringdum í hann og
forvitnuðumst aðeins um starfið
og að sjálfsögðu bátinn líka. „Við
aðstoðum skipin við að komast inn
og út úr höfninni, en hingað kemur
mikið af erlendum skipum sem
þekkja ekki höfnina,“ segir Jón.
„Þá förum við út á móti þeim og
komum hafnsögumanni um borð,
sem fer í brúna og leiðbeinir skip-
inu inn. Svo þurfum við oft að ýta
skipunum eða draga þau ef aðkom-
an er mjög þröng.“
Við höfnina í Hafnarfirði eru tveir
hafnsögubátar og tveir skipstjórar.
„Við skiptum með okkur vöktum, og
vinnum allan sólarhringinn. Maður
getur átt von á því að fá símtal hve-
nær sem er sólarhringsins þegar
maður er á bakvakt, þar sem maður
er kallaður út,“ segir Jón. Starfið
segir hann vera mjög fínt, en hann
hefur verið skipstjóri mest alla ævi,
og bætir hlæjandi við að hann
kunni ekkert annað.
Bátarnir tveir sem notaðir eru,
heita Þróttur og Hamar og eru
smíðaðir árið 1963 og 2001 hjá
Ósey sem var og hét í Hafnarfirð-
inum. „Bátarnir eru 17 metra lang-
ir með sérstökum krók til að setja
tog í. Gúmmí er framan á þeim svo
hægt sé að ýta á önnur skip án þess
að skemma þau. Tvær vélar eru í
hvorum báti, sem þýðir að þá eru
tvær skrúfur sem gera hann liprari
og auðveldara að stýra honum.“
Vélarnar eru af gerðinni Caterpill-
ar og eru ekki ósvipaðar þeim sem
notaðar eru í jarðýtur og gröfur,
nema annar búnaður er notaður í
vélina á sjó.
Toga og ýta skip-
um inn í höfnina
Við höfnina í Hafnarfirði er leiðsögubátur sem aðstoðar
stór skip inn í höfnina.
Jón Björgvinsson er skipstjóri á hafnsögubátnum í Hafnarfjarðarhöfn. FRÉTTBLAÐIÐ/GVA
JCB hefur breikkað vöru-
línu sína frá því fyrir um
ári og framleiðir nú úrval
af jarðvegsþjöppum og
jarðvegs- og malbikun-
arvölturum. Ástæðan er
sú að JCB keypti þá þýska
fyrirtækið VIBROMAX
sem sérhæfði sig í fram-
leiðslu á þessum vinnu-
vélum. Vélarnar eru nú
framleiddar undir nafn-
inu JCB VIBROMAX, en Vélaver
hefur hafið innflutning á þessum
vélum og getur nú að líta þær í sýn-
ingarsal Vélavers.
Ný vörulína frá JCB
ER UPPBYGGING Á DÖFINNI?
Glitnir Fjármögnun býður fjölbreytta kosti við fjármögnun
bíla, atvinnutækja, skrifstofubúnaðar og atvinnuhúsnæðis.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
2
1
6
FJÁRMÖGNUN
Hafðu samband í síma 440 4400 eða
kynntu þér málið á www.glitnirfjarmognun.is
• Fjármögnunarleiga
Leigðu tækið og gjaldfærðu
• Kaupleiga
Leigðu tækið og eignfærðu
• Rekstrarleiga
Greiddu aðeins fyrir afnot af tækinu
• Fjárfestingarlán
Fjármögnun með veði