Fréttablaðið - 27.06.2006, Page 34

Fréttablaðið - 27.06.2006, Page 34
■■■■ { vélar og tæki } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■10 Íslandsmeistaramót Mest í krana- stjórnun verður haldið 1. september næstkomandi. Keppnin er haldin í samstarfi við Liebherr sem er stærsti framleiðandi á byggingakrönum í heiminum. Íslandsmeistarinn keppir fyrir hönd Íslands á Evrópumeist- aramótinu í kranastjórnun sem fer fram í október á þessu ári. Mótið var haldið í fyrsta sinn í fyrra og þá tóku þátt 48 kepp- endur frá 36 byggingaverktökum. Umboðsaðili Liebherr hér á landi stóð fyrir Íslandsmeistaramótinu sem fór fram í ágúst og kom þá nokkuð á óvart að kranamenn frá verktökunum Feðgar ehf. röðuðu sér í þrjú efstu sætin. Ingi Björnsson sem bar sigur úr býtum keppti svo fyrir hönd Íslands í Þýskalandi þar sem hann hreppti annað sætið. Allt stefnir í að enn fleiri taki þátt í ár en nánari upplýsingar um keppnina er að finna á heimasíðu Mest, mest.is, þar sem skráning fer einnig fram. Kranastjórnunar- keppni í annað sinn Íslandsmeistaramótið í kranastjórnun fer fram í haust. Íslandsmeistari í kranastjórnun náði öðru sæti á Evrópu- meistaramóti í Þýskalandi. Á myndinni má sjá Inga Björnsson, núverandi Íslandsmeistara í kranastjórnun. Ólafur Ben. Snorrason, fram- kvæmdastjóri fyrirtæksins segir mestmegnis borað eftir vatni, annað hvort köldu vatni fyrir sveitabæi og sumarbústaði eða heitu vatni fyrir Orkuveituna og bæjarfélög. „Við stundum einnig rannsókna- boranir,“ segir Ólafur. „Við tökum kjarna úr fjöllum, þar sem gera á jarðgöng. Dýpstu kjarnaholur gerð- um við á Kárahnjúkum, þar sem sýni var tekið á 600 metra dýpi. Þá er borað niður, kjarni tekinn til skoðunar á þriggja metra fresti og haldið áfram.“ Hann segir starfs- menn oft fengna til að taka jarðsýni til að mæla þéttleika og burðargetu jarðvegs þar sem reisa eigi mann- virki, eins og í tilfelli tónlistarhúss- in í Reykjavík. Að sögn Ólafs eru mjög sérhæfð tæki notuð til borunar. „Við erum með þrjá 20-25 tonna þunga rann- sóknarbora,“ útskýrir hann. „Hjá okkur eru líka vatnsborar sem geta borað 14 tommu víðar holur, aðrir geta farið niður á 1.100 metra dýpi og síðar á árinu verður vatnsbor sem kemst á 1.700-2.000 metra dýpi tekinn í umferð.“ Ólafur segir að ekki megi gleyma sprengjuborunum. „Boraðar eru 46-100 millimetra víðar holur, sem mismunandi miklu dýnamíti er komið fyrir ofan í, eftir því hvers smátt á að sprengja grjótið,“ segir hann. „Í dýnamítstúpuna er sett hvelletta, sandi dreift yfir dýnam- ítið svo ekki spýtist upp úr og raf- magni hleypt á hvellhettuna til að sprengja. Misjafnt er hversu marg- ar holur eru gerðar. Ég heyrði því fleygt að 50.000 rúmmetrar hafi verið teknir í einu skoti í álverinu fyrir austan, sem eru eitthvað um 100.000 tonn af grjóti. Það hlýtur að hafa heyrst hátt í því.“ Að miðju jarðar og til baka Ræktunarsamband Flóa og Skeiða er með stærstu verktakafyrirtækjum hérlendis í jarðvinnu, stofnað árið 1946. Starfsmenn fyrirtækisins hafa verið uppteknir við marg- háttaðar jarðboranir, þar sem fyrirtækið er fremst á sínu sviði. Rannsóknabor við Reykjavíkurhöfn, þar sem viðamiklar rannsóknir á jarðvegi voru gerðar vegna byggingar á tónlistarhúsi. MYND Í EIGU RÆKTUNARSAMBANDS FLÓA OG SKEIÐA. Sprengibor sem er eingöngu notaður til að bora fyrir sprengiefni. MYND Í EIGU RÆKTUNARSAMBANDS FLÓA OG SKEIÐA. Hér sjást starfsmenn Ræktunarsambands Flóa og Skeiða nota stærsta bor fyrirtæksins, Trölla, við vatnsborun. MYND Í EIGU RÆKTUNARSAMBANDS FLÓA OG SKEIÐA.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.