Fréttablaðið - 27.06.2006, Side 37

Fréttablaðið - 27.06.2006, Side 37
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { vélar og tæki } ■■■■ 13 Það má með sanni segja að ætíð sé nóg að gera í gatnagerð hérlendis á sumrin. Ef ekki er verið að breyta vegum út frá nýjum skipulagshug- myndum er verið að laga þá til eftir veturinn. Malbikunin er einn veigamesti þátturinn í starfsemi Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf., sem er til húsa á Sævarhöfða 6-12, en við hittum hressan vinnuflokk frá fyrirtækinu á förnum vegi og spurðum hvernig þeim líkaði vinn- an. Starfsmenn lágu ekki á skoð- unum sínum, en meðfylgjandi er myndasyrpa sýnir að hvergi er slegið slöku við. Hugað að líffæð- um borgarinnar Gatnagerðarmenn eru áberandi um þessar mundir og fara eins og maurafylking um borgina með alls kyns tæki og tól sem nota þarf við malbikun. Framkvæmdadeild Höfða er búin góðum tækjum, þar á meðal þessum vörubíl sem er ómissandi við gatnagerð. Bílarnir eru ekkert sérstaklega sveigjanlegir og þar sem þeir ná ekki að slétta úr malbikinu dugar ekkert annað en handafl til. Það getur verið vandasamt verk, en auðveldast þegar margir leggjast á eitt til að klára það. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hér sést hvernig malbikið lekur út úr malbikunarvélinni og valtari kemur í kjölfarið og jafnar úr því. Haraldur Guðbjartsson, 31 árs „Ég hef unnið við vegagerð í níu sumur, en á veturna vinn ég við snjóruðning hjá borginni,“ segir Haraldur. Hann er ánægður með vinnuna og gefur vinnufélögum sínum góða einkunn. „Hér ríkir mikil samheldni, enda þurfa menn að standa saman sérstak- lega þar sem það getur verið alveg brjálað að gera. Um þess- ar mundir erum við mestmegnis að vinna í Reykjavík, en förum vítt og breitt um landið sem gerir starfið nokkuð skemmti- legt. Einn helsti kosturinn við þetta er líka sá að geta verið úti, sérstaklega í góða veðrinu. Töluvert frelsi er fólgið í því.“ Ómar Örn Sævarsson, 24 ára Ómar hefur unnið í sjö sumur við vegagerð, en á veturna legg- ur hann stund á viðskiptafræði við Háskóla Íslands. „Þetta er góð tilbreyting frá náminu og heldur manni í formi,“ segir hann. „Svo er frábært að vera úti þegar vel viðrar. „Það er minna um vinnu í rigningu, en þá hleður maður batteríin. Í vik- unni sem leið mætti ég til dæmis nokkrum sinnum klukkan fimm og vann fram að kvöldmat. Ég hleyp í allt sem til fellur, moka til að mynda til hliðar með mal- bikunarvélinni. Á heildina litið er þetta góð vinna, sem herð- ir mann upp og undirbýr fyrir lífið.“ Björn Vigfús- son, 46 ára Björn Vigfússon hefur unnið við malbikun í 25 ár. Spurður um hvort honum líki svona vel í starfi miðað við árafjölda segist hann tolla í vinnunni og hlær við. „Ég hef nú gaman af þessu í alvöru talað og hérna kynnist maður alltaf nýju fólki. Þetta er mikil vinna og ekki alltaf útséð hvenær vinnudegi lýkur. Mikið fer eftir veðri enda vinn ég á tjörubílnum, sem sprautar lím- inu á götuna. Á veturna er ég á saltvöktum, en finnst skemmti- legra að vera úti að moka og djöflast með strákunum en að hanga inni í vörubíl.“ VÉLAMENN ÓSKAST ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa um 650 manns, víðsvegar um landið sem og erlendis. ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem var stofnað árið 1970 og hefur annast ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stóriðjuver, hafnar- gerð, vega- og brúagerð auk flug- valla. Ennfremur húsbyggingar fyrir opinberar stofnanir, sveitar- félög, fyrirtæki og einstaklinga. Upplýsingar um störfin og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS, Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is. Vélamenn Vegna aukinna verkefna óskar ÍSTAK eftir að ráða vélamenn til starfa. Um er að ræða stjórnun á jarðýtum og gröfum. Möguleiki er á húsnæði fyrir utanbæjarfólk.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.