Fréttablaðið - 27.06.2006, Page 54
27. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR
Við hlaupum
Blátt áfram...
... alla leið frá Hellu til Reykjavíkur
Mætum við Reykjavíkurhöfn
og tökum vel á móti hlaupurunum!
Boot Camp þjálfararnir Arnaldur Birgir Konráðsson, Evert
Víglundsson og Róbert Traustason ætla að leggja af stað
frá Hellu á miðnætti aðfaranótt laugardagsins 8. júlí og
hlaupa til Reykjavíkur.
Hver og einn þeirra mun
hlaupa tvö og hálft maraþon!
Hvað getur þú gert
til að styrkja Blátt áfram?
Við skorum á fyrirtæki að styrkja hlauparana
blátt áfram með myndarlegum framlögum
og að hvetja sitt fólk til að vera með.
Lítið skref fyrir þig, stórt skref fyrir börnin
Stígðu skrefið laugardaginn 8. júlí
www.blattafram.is
Blátt áfram frábær dagur
laugardaginn 8. júlí
Vertu með!
Hlaupastöð 1
Kl. 10.00 Litla Kaffistofan – Hafnarbakkinn
= 26,3 km
Hlaupastöð 2
Kl. 12.00 Húsgagnahöllin – Hafnarbakkinn
= 7,6 km
Leiðin sem farin verður: Ártúnsbrekka, Grensás-
vegur, Suðurlandsbraut, Laugavegur niður á höfn.
Frjálst er að koma inn í hlaupaleiðina á hvaða stað sem er.
Kl. 14.00 Reykjarvíkurhöfn – Skemmtun
*Þú getur keypt bolina á næstu Esso stöð,
á www.blattafram.is eða við hlaupastöðvarnar þann 8. júlí.
• Þú getur hringt í 907 2000
þá dragast 1.000 kr. af símreikningnum þínum
• Þú getur keypt bol*
og fylgt Boot Camp strákunum síðasta spölinn
• Þitt fyrirtæki getur heitið á strákana
Hringdu í 533 2929 og styrktu Blátt áfram
Eitt stærsta verkefni
hjóna er að leita ham-
ingjunnar saman,
sagði prestur í
brúðkaupi sem ég
sótti síðustu helgi.
Varð mér þá hugsað
til þess að ekki
fyrir svo ýkja löngu
skipti hamingjan ekki svo miklu máli
í hjónabandinu, heldur það að fólk
lifði af saman. Nú giftir fólk sig víst
af ást, en upphaflega var hjónabandið
bara góður ráðahagur og ástin kom
þar málinu ekkert við. Ástin getur
horfið eins og ekkert sé og þá er
grunnur hjónabandsins brostinn. En
það þarf víst meira en ást til að fá
hjónabandið til að ganga. Enda var
ekkert lát á góðum ráðum í þessu
ágæta brúðkaupi sem ég var gestur
í. Ég komst ekki hjá því að verða
snortin þar sem ástinni var fagnað
svo skemmtilega og fólk opnaði
hjarta sitt örlítið, lofaði ástvini og
veitti fólki smá innsýn í eigið líf.
Eins og afi og amma brúðarinnar
gerðu. Þau héldu frábæra ræðu
saman, hnýttu í hvort annað á meðan,
lýstu eigin hjónabandi og að lokum
gaf afinn nokkur góð ráð. Hann sagði
að lykillinn að velgengni hjóna-
bandsins væri margþættur en það
væru nokkrir hlutir nauðsynlegir,
tryggð, ást og húmor og síðast en
ekki síst að vera ekki lengi í fýlu.
Allt voru þetta virkilega góð ráð sem
skipta heilmiklu, en ég minnist ekki
á að nokkur hafi gefið ráð um
peninga, sem skipta kannski ekki
neinu máli lengur. Eða hvað?
Lögin líta nefnilega ekki á hjóna-
bandið sem bandalag elskenda og við
giftingu renna eigur fólks í eina
sæng. Fjárhagslegu sjálfstæði
einstaklingana er fórnað fyrir hjóna-
bandið, og ef ekki er gerður kaup-
máli í upphafi, getur komið til
vandræða ef hjónabandið reynist
skammlíft. Hjónabandið hlýtur því
ennþá að snúast að einhverju um
peninga og góðan ráðahag. Ef til vill
að afinn hafi aðeins komið inn á það,
þegar hann talaði um fýluna, því
rifrildi út af peningum er víst ein
helsta skilnaðarorsökin. Ef fólk lærir
að vera ekki í fýlu yfir þeim, þá er
kannski auðveldara að leysa
verkefnið, að leita hamingjunnar
saman.
STUÐ MILLI STRÍÐA Ástir samlyndra hjóna
KRISTÍN EVA ÞÓRHALLSDÓTTIR FÓR Í BRÚÐKAUP
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ég get út-
skýrt þetta!
Jæja,
lát heyra!
Einmitt!
Adam, ég er að skapa Evu svo
þú skalt vera snöggur að græja þig.
Ætlar þú bara að sitja þarna
í allt sumar? Veist þú ekki að
sumarið er tími til að prufa
eitthvað nýtt og spennandi?
Íbúafjöldi: I
Þú kominn á fætur og
það fyrir hádegi.
Þetta eru
stórfréttir!
Ertu orðinn þreyttur á að
missa bæði af morgun-
og hádegismat?
Halló? NFS? Sonur
minn er kominn á
fætur, þið getið sent
myndatökuliðið
núna!
Ég bjóst ekki
við að segja
þetta, en þú
lítur ekki
illa út!
Þar
erum við
sammála!
Fallegt fés!
Ég skil bara ekki af hverju ég
var ekki löngu búinn að þessu!
Þér fóru ekki að
spretta grön fyrr
en þú varst 28 ára.
Burtséð
frá því!
Ég var að sýna Hannesi
hvernig ætti að bregðast við
ef hann skyldi lenda í kodda-
slag einhvern-
tímann
Svo þetta var semsagt ekki
slys heldur varst þú að
kenna bróður
þínum?
Ég er ekki að ala upp börn, ég
er að ala upp stjórnmálamenn!
Já ég
meina
það!
Þetta er
fallegt fés!
Hvað
annað?
Hann fer í
ljós, þrisvar í
viku... Og mæti
reglulega í
líkamsrækt...
Það hreyf-
ist...Það er
lifandi!
Það er ekki komið sumar fyrr
en mamma fer að tuða yfir
svefnvenjum
mínum.