Fréttablaðið - 27.06.2006, Page 58

Fréttablaðið - 27.06.2006, Page 58
30 27. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI „Þetta er alltaf að fara versnandi, en lætin hafa verið sérstaklega slæm í sumar. Það má eflaust rekja það að einhverju leyti til þeirra miklu umfjöllunar sem dómarar hafa fengið í fjöl- miðlum,“ sagði Magnús sem hefur fengið að þola mjög ljótt orðbragð í sinn garð í sumar. „Orðbragðið er ekki bara meira og meira, heldur líka grófara og grófara, það er mikið áhyggju- efni, sérstaklega í ljósi mikils fjölda barna sem er í stúkunni,“ sagði Magnús, og bætti við að dómarar hefðu rætt um málið þegar þeir hittust fyrir skemmstu og verið sammála um málið. „Starfsumhverfi okkar er orðið mjög erfitt og menn eru svolítið skelkaðir, það á mjög almennt við. Maður hugsar um það hvort það sé þess virði að standa í þessu. Ég hef orðið var við að menn séu að íhuga það að leggja flautuna á hilluna vegna versnandi starfs- umhverfis, svo slæmt er þetta orðið,“ sagði Magnús sem var ekki sáttur við aðgerðir KSÍ í garð Kristjáns Guðmundssonar, þjálfara Keflavíkur, og Leifs Garðarsonar, þjálfara Fylkis, fyrir skemmstu þegar þeir létu ljót orð falla um dómara í sjónvarpsviðtali eftir leik sinna liða. Keflavík fékk tíu þúsund krónur í sekt og báðir þjálfararnir aðvörun. „Eftir umræðurnar í kringum dómara nýverið og hvernig þjálfurunum var refsað eru menn frekar ósáttir. Við erum ekki hafnir fyrir gagnrýni, en hún verður að vera málefnaleg og rökstudd. Það er kannski eitt atvik í leik sem er skeggrætt fram og til baka eftir leikinn en enginn man eftir framherjanum sem klúðraði þremur dauðafærum eða hvort liðið hafi verið á hælunum allan leikinn. Það gerðist til að mynda í leik Keflavíkur og ÍA, Keflavík er mitt lið og ég sá leikinn en það hefur hvergi komið fram hversu slakir þeir voru gegn Skagamönnum,“ sagði Magnús, en eftir þann leik lét Kristján ummælin umdeildu falla. Magnús vill að Knattspyrnusambandið taki á málinu. „Við höfum biðlað til KSÍ um að þeir komi til móts við okkur, sér í lagi að það megi endurskoða sektir og slíkt þegar þjálfarar láta alvarleg ummæli falla í fjöl- miðlum. Þessar refsingar voru hlægilegar,“ sagði Magnús. Halldór B. Jónsson, formaður dómaranefndar KSÍ, viðurkennir að hafa orðið var við óánægju dómaranna. „Við höfum heyrt af þessu og ég hef einnig orðið var við slæmt orðbragð og annað slíkt en það er erfitt að bera þetta saman á milli ára en því miður er starfsumhverfi dómaranna svona,“ sagði Halldór. „Þetta er vandamál sem snýr einnig að félögunum og það þarf að taka á þessu. Það er ekki skemmtilegt fyrir félög að stuðningsmenn hagi sér eins og dómararnir eru að greina frá. Þetta er einnig slæmt fyrir börn og unglinga og þau bíða skaða af þessu. Það er blóðugt að það þurfi að vera átak í gangi til þess að menn hagi sér almennilega en ég skil vel að sjónarmið dómaranna er þannig að þetta bitnar mest á þeim í návíginu,“ sagði Halldór. hjalti@frettabladid.is Starfsumhverfi dómara fer versnandi Dómarar í Landsbankadeild karla fá sífellt meiri úthúðun frá áhorfendum á leikjum og þykir sumum nóg boðið. Magnús Þórisson segir að starfsumhverfi dómara fari sífellt versnandi og lýsir yfir áhyggjum sínum. DÓMARAR Eru ekki alls kostar sáttir við það starfsumhverfi sem þeir búa við. Hér er Eyjólfur M. Kristinsson, dómari að störfum í leik ÍA og Fylkis fyrr í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR HANDBOLTI Haukamaðurinn Árni Þór Sigtryggsson hefur vakið mikinn áhuga spænskra handbolta- liða undanfarið. Það nýjasta er að CAI Aragon hefur áhuga á kappanum en liðið varð í sjöunda sæti í spænsku úrvalsdeildinni í vetur. Stórliðið Portland San Antonio hafði samband við Árna Þór fyrr í mánuðinum en svo virðist sem ekkert verði aðhafst frekar í því máli. Þorgeir Haralds- son, formaður handknattleiksdeildar Hauka, sagði enga fyrirspurn hafa borist félaginu um Árna sem er samningsbundinn Haukum næstu tvö árin. - esá Árni Þór Sigtryggsson: CAI Aragon hefur áhuga Á LEIÐ TIL SPÁNAR? Árni Þór Sigtryggsson í leik gegn Val. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN > Arnar féll úr leik Tenniskappinn Arnar Sigurðsson féll úr leik í undanúrslitum á opnu móti í Dublin á Írlandi sem lauk um helgina. Arnar náði frábærum árangri á mótinu og vann hvern frækna sigurinn á fætur öðrum en hann laut loks í gras fyrir Andis Juska frá Lettlandi, sem er númer 445 á heimslistanum. Juska tapaði svo fyrir Frederik Nielsen í úrslitunum. Arnar er sem stendur í sæti númer 1410 en búast má við því að hann taki stórt stökk upp listann eftir frábæran árangur á Írlandi. Kekic ekki með í bikarnum Sinisa Valdimar Kekic mun ekki spila með Þrótti í leiknum gegn sínum gömlu félögum í Grindavík í 16-liða úrslitum VISA bikars karla sem fram fer mánudaginn 3. júlí. Grindvíkingar settu það í samninginn sem þeir gerðu við Þróttara þegar Suðurnesjaliðið seldi Kekic í síðustu viku. FÓTBOLTI Heiðar Davíð Bragason, Íslandsmeistari í höggleik úr GKJ, fór illa að ráði sínu á opna DG mótinu. Heiðar átti frábæran dag í fyrradag þegar hann lék á 69 höggum, einu höggi undir pari, og var í sjötta sæti eftir fyrsta daginn. Heiðar lék aftur á móti alls ekki nægilega vel í gær og lék þá á sex höggum yfir pari en þriðji hringur mótsins verður leikinn í dag. Heiðar Davíð var í 26.-30. sæti að loknum öðrum keppnisdegi og komst auðveldlega í gegnum niðurskurðinn. Hann er þó ellefu höggum á eftir efsta manni. - hþh Heiðar Davíð Bragason: Fór illa að ráði sínu í gærdag LCI-830, 102x122sm kr. 29.800,- Goddi.is S. 5445550. Þær eru komnar vinsælu, ódýru kerrurnar okkar LCI-850, 122x244sm kr. 48.800,- LCI-745, 128x158sm kr. 51.200,- LCI-958, 152x244sm kr. 84.500,- LCI-880, 392x134sm kr. 65.100 LCI-887, 548x170sm kr.115.600 Ármúla 11 - sími 568-1500 Lónsbakka - sími 461-1070 Vélorf Alvöru orf á góðu verði www.sturta.is allan sólarhringinn! Sími: 565-5566R e yk ja ví k u rv e g u r 6 4 , H a fn a rf jö rð u r. Ótrúleg… … sæ la !! ! FÓTBOLTI Fótboltaunnendur hafa um nóg að tala eftir leik Ítalíu og Ástralíu í sextán liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar. Ítalía vann leikinn en eina markið kom úr mjög umdeildri vítaspyrnu sem dæmd var í uppbótartíma eftir góð tilþrif frá Fabio Grosso. Francesco Totti var geymdur á bekknum en kom inn sem vara- maður þegar stundarfjórðungur var eftir og skoraði af öryggi úr spyrnunni. „Ég hef þurft að þola gagnrýni frá mörgum að undanförnu og veit að það var sárt fyrir þá að sjá mig skora þetta mark. Ég hlakka til að heyra hvað þeir hafa að segja eftir þetta. Sigur okkar var sanngjarn að mínu mati, við áttum að vera yfir í hálfleik og missum síðan mann af velli sem var fáránlegur dómur. Við vorum ákveðnari og vildum sigurinn meira,“ sagði Totti. Spænski dómarinn, Luis Medina Cantalejo, var í aðalhlutverki en þegar fimm mínútur voru liðnar af seinni hálfleik gaf hann ítalska varnarmanninum Marco Materazzi rautt spjald. Mjög strangur dómur en brot Materazzi verðskuldaði í allra mesta lagi gult spjald. Hann kom inn í vörnina í stað Alessandro Nesta sem á við meiðsli að stríða og hafði verið einn besti maður vallarins fram að þessu. Þrátt fyrir að vera einum færri nánast allan seinni hálfleik náði Ítalía þó sigri og komst í átta liða úrslit. - egm Ítalía komst í átta liða úrslitin á HM með dramatískum sigri á Ástralíu: Totti kom Ítalíu til bjargar HETJAN Francesco Totti þaggaði niður gagnrýnisraddirnar. NORDICPHOTOS/AFP Vignir Grétar Stefánsson, landsliðsmaður í júdó, varð fyrir óhappi á Norður- landamótinu í Noregi fyrir skömmu. Hann sleit krossbönd og hliðarliðbönd í opnunarviðureign mótsins og verður frá æfingum og keppni í marga mánuði vegna þessa. Vignir er margfaldur Íslandsmeistari og hann sigraði á Norðurlandamótinu í fyrra. Hann var því að verja titil sinn á mótinu en varð að hætta keppni strax eftir fyrsta einvígið. „Ég fór illa í hnénu og sleit krossböndin og hliðarliðböndin. Hnéskelin fór alveg til hægri og allt fór í klessu, ég er því spelkaður í dag. Þetta gerðist á móti Svía sem fór síðan alla leið og vann mótið. Ég mætti honum einnig í fyrra þegar ég sigraði þetta mót og vann hann þá,“ sagði Vignir, en þessi meiðsli sem hann varð fyrir eru mjög sjaldgæf í júdóheiminum. „Ég er bara að bíða eftir uppskurði og lítur út fyrir að ég þurfi að gangast undir hnífinn í Svíþjóð. Þar mun ég hitta sérfræðing sem sérhæfir sig í kross- bandaaðgerðum,“ sagði Vignir, en hliðarliðböndin í hnénu á honum gróa ekki saman og óvíst er hve lengi hann verður frá. „Það fer eftir því hvernig uppskurðurinn fer, ég er hræddur um að verða frá í svona ár en stefni á að vera kominn í lag fyrir haustið 2007, því þá verður heimsmeistaramótið. Ég vonast til að geta byrjað að æfa aftur í febrúar á næsta ári.“ Vignir er nýorðinn þrítugur en hann segist ekki hafa getað lent í þessum meiðslum á verri tíma. Hann missir af Evrópumeistaramótinu í júdó og einnig af nokkrum stórum mótum í Evrópu. „Ég og konan mín vorum úti í Bandaríkjunum og ég var búinn að æfa rosalega vel þar. Ég kom heim í dúndurformi og setti stefnuna hátt. Þá kemur þetta eins og þruma úr heiðskíru lofti en ég hef sjaldan eða aldrei verið í betra formi,“ sagði Vignir, sem er giftur Silju Úlfarsdóttur, frjálsíþróttakonu í FH. JÚDÓKAPPINN VIGNIR GRÉTAR STEFÁNSSON: SLEIT KROSSBÖND OG HLIÐARBÖND Á MÓTI Í NOREGI Gat ekki gerst á verri tímapunkti

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.