Fréttablaðið - 28.06.2006, Page 2
2 28. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR
����������������������������������������� ������������
�������������
������������
�����������������
����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����
EFNAHAGSMÁL Ríkisstjórnin hefur
ákveðið að lækka lánshlutfall úr
90 prósentum í 80 prósent og
hámarkslán Íbúðalánasjóðs úr 18
milljónum króna í 17 milljónir
frá 1. júlí. Lán til íbúðakaupenda
og húsbyggjenda verða takmörkuð
þannig að sami aðili geti ekki átt
samtímis fleiri en eina íbúð með
lánum frá sjóðnum nema við
sérstakar aðstæður.
Ríkisstjórnin hefur einnig
ákveðið að fresta útboðum og
nýjum framkvæmdum á vegum
ríkisins og óskar eftir viðræðum
við forystumenn Sambands
íslenskra sveitarfélaga og
stærstu sveitarfélög landsins
með það að markmiði að draga úr
fjárfestingum þeirra á þessu ári
og næsta ári. Stór samstarfs-
verkefni ríkisins og Reykjavíkur-
borgar verða skoðuð sérstak-
lega.
„Allt sem hér verður boðið út
lendir í frestun en ekki þar með
sagt að hætt sé við framkvæmdir.
Það er bara verið að ýta þeim á
undan sér þangað til þróunin
skýrist betur,“ segir Geir H.
Haarde forsætisráðherra og
bætir við að fyrst og fremst sé
um vegaframkvæmdir að ræða
og einhverjar húsbyggingar á
vegum ríkisins. „Allt sem búið er
að semja um mun halda áfram.“
Geir telur að umfang aðgerð-
arinnar fari eftir því hvað komi
út úr viðræðum við sveitarfélög-
in. Hjá ríkinu nemi framkvæmd-
irnar tæpum þremur milljörðum
króna.
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra bendir á að umfang fram-
kvæmda sveitarfélaganna á
þessu ári sé nánast jafn mikið og
hjá ríkinu þannig að „þátttaka
sveitarfélaganna getur haft
veruleg áhrif“.
Hjá Íbúðalánasjóði er þegar
byrjað að hægja þar á en þetta
mun væntanlega flýta þeirri
þróun,“ segir Geir og kveðst
ekkert geta sagt um vaxtastigið
en miðað við þróunina undanfarið
sé líklegra að vextir hækki en
lækki.
Geir telur ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar ekki hafa bein
áhrif á hátæknisjúkrahús og
Sundabraut. Bygging Tónlistar-
húss verði rædd við Reykjavíkur-
borg og þá komi í ljós hvort hægt
sé að fresta henni „en við höfum
það mál ekki á valdi okkar,“ segir
Geir.
„Þetta eru mjög tímanlegar
aðgerðir í samhengi við samn-
ingana í síðustu viku,“ segir Jón
Sigurðsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra.
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra telur að með þessu sé
mikilvægt skref stigið á brems-
una.
ghs@frettabladid.is
Lækka lán og fresta
framkvæmdum
Ríkisstjórnin ætlar að draga úr þenslu og minnka verðbólgu með því að lækka
lánshlutfall og hámarkslán Íbúðalánasjóðs, fresta nýjum framkvæmdum og fá
sveitarfélögin til að draga úr nýjum fjárfestingum á þessu ári og næsta.
AÐGERÐIR TIL AÐ DRAGA ÚR ÞENSLU Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra, Geir H. Haarde forsætisráðherra og Árni Mathiesen fjár-
málaráðherra kynntu aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að draga úr þenslu eftir ríkisstjórnarfund
í gær. „Þetta mun róa vinnumarkaðinn. Það þarf að kæla hann aðeins niður,“ segir forsætis-
ráðherra um áhrifin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÖGREGLAN Þrír hafa verið úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald til sjöunda
júlí til viðbótar við þann sem
úrskurðaður var í fyrradag vegna
gruns um fjársvik og bótasvik í
starfi hjá Tryggingastofnun
ríkisins. Svikin nema 75 milljón-
um króna og er talið að þau hafi
staðið yfir frá 2002.
Jón H. B. Snorrason, yfirmaður
efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglu-
stjóra, segir að málið geti tengst
tugum fólks og því þurfi að rann-
saka hlutdeild eða meinta hlutdeild
fólksins. Ekki skipti máli hvort það
taki einn eða tvo daga að tala við
fólk. Margir verði yfirheyrðir.
„Rannsóknin er á frumstigi og
miðast við að ná utan um málið
eins og það er. Til þess þarf að afla
gagna,“ segir hann. „Aðferðir
okkar eru fólgnar í því að afla
gagna og yfirheyra alla sem eru
taldir geta tengst málinu eða geta
gefið upplýsingar um það.“
Jón segir að eðlilegt sé að fara
yfir öryggismál og vinnuferla,
hvort sem það er hjá einkafyrir-
tæki eða opinberri stofnun, þegar
manneskja í lykilstöðu virðist hafa
brugðist trúnaði í starfi sínu. Það
verði gert hjá Tryggingastofnun.
„Þegar upplýst er um svona
mál þá reyna allir að gera ráðstaf-
anir til að fyrirbyggja að slíkt geti
komið upp eða viðgengist,“ segir
hann.
- ghs
RANNSÓKNIN Á FRUMSTIGI Jón H. B.
Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar,
segir að fjársvikamálið hjá Tryggingastofnun
geti tengst tugum fólks.
Þrír hafa verið úrskurðaðir í ellefu daga gæsluvarðhald til viðbótar:
Svikin nema 75 milljónum
EFNAHAGSMÁL Ögmundi Jónassyni
þingmanni finnst afleitt að láns-
hlutfall Íbúðalánasjóðs verði
lækkað, því að það bitni á þeim
sem séu að festa kaup á sínu fyrsta
húsnæði. „Þetta er fráleit ráðstöf-
un,“ segir Ögmundur, „og vekur
fyrst og fremst reiði hjá fólki“.
Ágúst Ólafur Ágústsson þing-
maður segir að með ákvörðun
sinni sé ríkisstjórnin að viður-
kenna sjálfskaparvanda sem
stjórnarandstaðan hafi fyrir
löngu bent á. Þetta sé skammtíma-
aðgerð til að bregðast við von-
lausri hagstjórn en með henni
svíki ríkisstjórnin loforð sín.
Stjórnvöld þurfi að segja hvað eigi
að skera niður. - ghs
Aðgerðir stjórnvalda:
Vekja reiði
hjá fólki
EFNAHAGSMÁL Gunnar I. Birgisson,
bæjarstjóri Kópavogs, segir að
Kópavogsbær geti ekkert skorið
niður í framkvæmdum á þessu
ári, þær séu fastbundnar. „En við
munum reyna að sjá til þess að
hér verði stöðugleiki og festa í
efnahagslífi þjóðarinnar.“
Spurður um hvaða fram-
kvæmdum komi til greina að
fresta segir hann að Kópavogs-
bær muni fara sér „rólega í bygg-
ingu óperuhúss og kannski fleiri
mannvirkja,“ en skólar og leikskólar
verði byggðir. - ghs
Framkvæmdir í Kópavogi:
Óperuhúsinu
verður seinkað
PALESTÍNA, AP Abdel Rahman Zeidan,
ráðherra í palestínsku heima-
stjórninni, leiðrétti fréttaflutning
af samkomulagi milli Hamas-
samtakanna og Fatah-hreyfingar-
innar í gærkvöldi. BBC hefur eftir
honum að í samkomulaginu milli
Hamas og Fatah væri ekki minnst
einu orði á viðurkenningu á Ísraels-
ríki. „Þetta hefur enginn samþykkt.
Þetta var aldrei á borðinu.“
Fréttamaður BBC segir að í
plagginu samþykkta sé einungis
talað um myndun ríkis Palestínu-
manna og hvernig skuli unnið að
henni. Þetta hafi hingað til verið
talið hluti af „tveggja ríkja lausn-
inni,“ og var því reiknað með að
samkomulagið síðan í gær viður-
kenndi tilvist Ísraels, þótt á óbeinan
máta væri. Þetta virðist nú hafa
verið oftúlkun.
Hamas-liðar telja samkomulagið
samt sem áður „sögulegan við-
burð,“ en það er ávöxtur nokkurra
vikna hatrammra samninga-
viðræðna milli þessara stríðandi
fylkinga.
Benita Ferrero-Waldner, stjórnar-
maður utanríkismálanefndar Evrópu-
sambandsins, tók tilkynningunni
fagnandi en sagði að meira þyrfti
til að ESB veitti heimastjórninni
aftur beina neyðaraðstoð. Sam-
komulagið væri einungis „upphaf
ferlis“ að áðurtöldum markmiðum.
Talsmaður Hvíta hússins tók í
sama streng. - kóþ
Ráðherra Hamas-samtakanna dregur úr væntingum:
Viðurkenna ekki Ísraelsríki
FRÁ BLAÐAMANNAFUNDINUM Hátt settir menn innan fylkinga Palestínumanna tilkynntu
um samkomulagið á Gaza-ströndinni í gær. NORDICPHOTOS/AFP
SPURNING DAGSINS
Egill, eru Kallarnir komnir í
aflitað hár saman?
„Ákveðnir menn innan hópsins hafa
einfaldlega girt niðrum sig og skitið á
sig.“
Upp er komið ósætti innan Kallanna eftir að
heimasíðu þeirra, kallarnir.is var lokað. Egill
„Gilzenegger“ Einarsson var afar ósáttur við
ákvörðunina, svo ekki sé meira sagt.
BRETLAND, AP Charles Clarke, fyrr-
verandi innanríkisráðherra Tony
Blair, gagnrýndi fyrrverandi sam-
herja sinn harkalega í gær og sagði
hann hafa misst
sjónar á þeim
stefnumálum og
markmiðum sem
Verkamanna-
flokkurinn hefði
áður staðið fyrir.
Gagnrýnin kemur
í kjölfar slæmrar
útreiðar Verkamannaflokksins í
skoðanakönnun í vikunni.
Undir rós fylgdi þessari gagn-
rýni áskorun um að Blair leiddi
flokkinn áfram til ársins 2008, en
Blair íhugar að segja af sér á kjör-
tímabilinu. Clarke lét hafa eftir
sér að til þess að Blair nái aftur
áttum, og klári þau mál sem flokk-
urinn fékk kosningu til að fram-
fylgja, væri heilladrýgst að hann
sæti áfram við stjórnvölinn enn
um sinn. - kóþ
Fyrrum innanríkisráðherra:
Hörð gagnrýni
á Tony Blair
CHARLES CLARKE
Mikið um ölvun Mikið barst af
tilkynningum um ölvun til lögreglunn-
ar í Hafnarfirði. Erlendur maður var
handtekinn fyrir að hafa undir höndum
smyglað áfengi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ÍRAN, AP Ali Khamenei æðstiklerkur
sagðist í gær ekki sjá neinn tilgang
í því að Íranar ættu viðræður við
fulltrúa Bandaríkjastjórnar um
kjarnorkumál sín.
„Viðræður við Bandaríkjamenn
myndu ekki skila okkur neinu, og
við þurfum ekki á þeim að halda,“
hafði íranska ríkissjónvarpið eftir
Khamenei. Talsmenn Bandaríkja-
stjórnar hafa sagt að fallist Íranar
á tilboð stórveldanna til lausnar á
kjarnorkudeilunni kunni stjórnin
að slást í lið með samningamönnum
Evrópuveldanna og eiga þar með
sínar fyrstu beinu viðræður við
Íransstjórn frá því í klerkabylt-
ingunni árið 1979. - aa
Khamenei æðstiklerkur Írans:
Segir viðræður
tilgangslausar
TEIKNING AF ÓPERUHÚSI Í KÓPAVOGI
Bæjarstjóri ætlar rólega í byggingu þess.
INNBROT Tvö innbrot voru framin í
Mosfellsbænum um kaffileytið í
fyrradag með stuttu millibili.
Húsin sem brotist var inn í eru
staðsett í sama hverfi og skammt
er á milli þeirra. Lögregluna í
Mosfellsbæ grunar að innbrotin
séu tengd. Lögreglan telur að
annað húsanna hafi verið ólæst, en
í hinu tilvikinu var brotin upp
gluggafesting.
Á meðal þess sem var stolið
voru tvær fartölvur úr hvoru húsi
um sig, ein stafræn myndavél og
ipod tónlistarspilari. - æþe
Innbrot í Mosfellsbæ:
Tvö innbrot
um miðjan dag