Fréttablaðið - 28.06.2006, Síða 6

Fréttablaðið - 28.06.2006, Síða 6
6 28. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR LÍKAMSÁRÁS Hundarnir voru skotn- ir á færi af Halldóri Guðmunds- syni refaskyttu sem býr á bænum Holti, þegar til þeirra sást þar sem þeir réðust á lömb og drápu á landareign bæjarins. Alls lágu fimmtán lömb dauð eftir drápsæði hundanna. Búfjáreigendum er heimilt, samkvæmt upplýsingum Frétta- blaðsins, að drepa hunda á landar- eign sinni sem slíkt æði hleypur í til að verja fé sitt og geta hundeig- endur verið krafðir um skaðabæt- ur ef hundar þeirra drepa búfé. Eftir drápin gerði bróðir skytt- unnar, Jóhann Guðmundsson sem einnig býr að Holti, lögreglunni á Blönduósi viðvart. Þá var haft samband við eiganda annars hundsins og hjálpaði sá við að hirða upp dauðu lömbin ásamt Jóhanni. Lögregla tilkynnti drápin til Valdemars Ásgeirssonar, eiganda hins hundsins, sem býr að Auðkúlu I í Svínadal. Jóhann Guðmundsson segir, í samtali við blaðamann Frétta- blaðsins, að Valdemar hafa verið ansi heitt í hamsi þegar hann bar að bænum. Hann segir Valdemar hafa þrifið sig innan úr dyragætt- inni fyrirvaralaust og dregið sig niður tröppur á íbúðarhúsi sínu. Þar segir hann Valdemar hafa snúið sig niður og sest ofan á sig og látið nokkur vel valin orð falla. Að þessu loknu segist Jóhann hafa vísað Valdemar á hræið, þar hafi hann aftur misst stjórn á sér og meðal annars hrint konu Jóhanns til jarðar með þeim afleið- ingum að hún meiddist á hné. Valdemar hefur aðra sögu að segja. Hann segist hafa ákveðið að gera sér ferð að Holti til að hirða um hræið af hundi sínum eftir að lögregla hafði samband við hann. Hann segir að sér hafi verið meinað að taka hundinn sinn og hann hafi reiðst við það. Hann segir það ekki hafa komið til greina að skilja hundinn eftir, sem var að hans sögn mikið eftirlæti fjölskyldunnar, úti yfir nóttina. Hann neitar staðfastlega að hafa lagt hendur á Jóhann, heldur ein- ungis tekið hann taki og: „lagt fal- lega niður á jörðina eins og er gert við óþekka krakka,“ eins og hann lýsir atburðarásinni sjálfur. Féllst Jóhann að því loknu á beiðni hans og voru hundshræin afhent Valdemar. Jóhann kærði atvikið formlega til lögreglu síðastliðinn sunnudag. Hann segist vera marinn og með brákað rifbein, auk þess að kona sín hafi hlotið áðurnefnd meiðsli. Lögreglan á Blönduósi segir málið í rannsókn. aegir@frettabladid.is Fjárbóndi drap dýr- bíta og var laminn Tveir hundar voru skotnir við bæinn Holt í Svínadal, eftir að þeir höfðu drepið fimmtán lömb í æði. Eigandi annars hundsins lagði hendur á búfjáreigandann sem segir sig sáran eftir. Hann hefur kært árásina til lögreglu. BANDARÍKIN, AP Rausnarleg gjöf bandaríska auðkýfingsins Warren Buffetts gæti orðið fleiri auðkýf- ingum fyrirmynd til þess að gefa stóran hluta auðæfa sinna til líknarmála af ýmsu tagi. „Ég er viss um að það er fullt af ungum auðkýfingum sem hafa grætt á tá og fingri og fylgjast vel með þessu,“ sagði Diana Aviv, for- seti og framkvæmdastjóri sam- takanna Independent Sector, sem er bandalag um það bil 550 líknar- stofnana og fyrirtækja í Banda- ríkjunum sem stunda það skipu- lega að gefa fé til líknarmála. Gates-stofnunin er innan vébanda þessara samtaka. „Þessir viðskiptaleiðtogar eru átrúnaðargoð margra,“ segir Aviv og nefnir einnig til sögunnar fleiri gjafmilda auðkýfinga á borð við Andrew Carnegie, John D. Rockefeller og W.K.K. Kellogg. Buffett er talinn vera næstrík- asti maður heims. Hann skýrði frá því á sunnudaginn að hann ætli sér að gefa 1,5 milljarða dali á ári til Gates-stofnunarinnar, en sú upphæð samsvarar um það bil 114 milljörðum íslenskra króna. Á mánudaginn skýrði Buffett svo frá því að hann myndi ekki láta nema lítinn hlut auðæfa sinna renna í arf til barna sinna, og gaf þá skýringu að hann væri ekkert sérstaklega mikið fyrir fjölskyldu- auðæfi, „ekki síst þegar hinn kost- urinn eru sex milljónir manna,“ sem geta notið góðs af fénu. Þeir Buffett og Bill Gates kynntust fyrir rúmlega áratug og hittast reglulega til að spila brids. Með framlagi Buffets nánast tvö- faldast framlag Gates-stofnunar- innar til líknarmála á ári. Sérstaka athygli hefur vakið að Buffett gerir enga kröfu um að nafn sitt sé á neinn hátt tengt þeim gjafaverkefnum, sem fé hans verður notað í. „Þegar svona mikið fé er til að spila úr hafa gefendurnir oftast farið þá leið að gera þetta sjálfir, og hafa sjálfir umsjón með hlutun- um,“ segir Doug Bauer, en hann er aðstoðarforseti ráðgjafastofnun- arinnar Rockefeller Philanthropy Advisors í New York. Sú stofnun veitir einstaklingum, stofnunum og fyrirtækjum aðstoð við að skipuleggja gjafastarfsemi. Bauer segist vonast til þess að gjöf Buffetts verði öðrum auð- kýfingum hvatning til þess að taka saman höndum frekar en að vinna hver í sínu lagi að sömu markmiðunum. gudsteinn@frettabladid.is Warren Buffet ætlar einungis að láta lítinn hlut auðæfa sinna renna í arf: Í kapphlaup um gjafmildi BILL GATES, EIGINKONA HANS MELINDA GATES, OG WARREN BUFFETT Þau skýrðu sameiginlega frá rausnarlegri gjöf Buffets til líknarstofn- unar Gates-hjónanna á blaðamannafundi um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LANDSMÓT Forkeppni í B-flokki gæðinga lauk í gær á öðrum degi Landsmóts hestamanna í Skaga- firði. Landsmótssigurvegarinn frá síðasta landsmóti sem haldið var á Hellu fyrir tveimur árum, Rökkvi frá Hárlaugsstöðum, sýndi kunn- uglega takta og fer efstur inn í milliriðil sem riðinn verður á föstudag með einkunnina 8,76. Forkeppni í barnaflokki er einnig lokið, mjótt er á munum á efstu hrossunum enda börnin vel ríð- andi. Efst inn í milliriðli eru Ragn- heiður Hallgrímsdóttir og Svalur frá Álftárósi. Yfirlitssýningum hryssna er lokið á mótinu en yfirlitssýning stóðhesta hefst í dag. Dögg frá Breiðholti vakti verðskuldaða athygli en Jón Páll Sveinsson reið henni í einkunnina 8,56 í flokki fimm vetra hryssna. Á fjórða þúsund gestir eru nú komnir á Landsmót, veðrið hefur verið nokkuð milt og gott það sem af er þó sólin hafi ekki látið sjá sig. Nokkrir dropar hafa fallið en að sögn þeirra sem staddir eru á mótssvæðinu hafa veðurguðirnir tímasett rigningardembur á sama tíma og kaffihlé þegar flestir eru í veitingatjöldunum. Spáð er svip- uðu veðri næstu daga, að mestu þurrt en þó von á einhverjum skúrum. - sg Forkeppni í B-flokki lokið á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum í gær: Rökkvi efstur inn í milliriðil TÖLT MEÐ TILÞRIFUM. Landsmótssigurveg- ararnir í B-flokki frá árinu 2004, þeir Rökkvi frá Hárlaugsstöðum og Þorvaldur Árni, ætla sér að koma, sjá og sigra. LJÓSMYND/HESTAR, JE LÍKAMSÁRÁS Maður á fertugsaldri er ákærður fyrir líkamsárás, á þáverandi sambýliskonu sína, í desember í fyrra. Honum er gefið að sök að hafa tekið konuna hálstaki og slegið hana nokkrum sinnum í andlitið með þeim afleiðingum að hún marðist og bólgnaði. Ákæruvald- ið krafðist refsingar, en maður- inn neitaði alfarið sök, sagðist einungis hafa ýtt við konunni í sjálfsvörn en að hún hafi verið drukkin og ofbeldisfull. Málinu var frestað fyrir dómi fram í september. - æþe Ákærður fyrir líkamsárás: Lamdi sambýl- iskonu sína LONDON, AP Skrifstofa Karls Breta- prins hefur skýrt frá því að tekjur prinsins á síðasta ári hafi numið rúmlega fjórtán milljónum punda, eða jafnvirði um það bil 1.900 milljóna íslenskra króna. Tekjurnar hækkuðu um sex prósent á síðasta ári, en líknar- stofnanir á vegum Karls prins söfnuðu 110 milljónum punda, eða um það bil fimmtán milljörðum króna, sem nýttar eru til margvís- legra mannúðarmála. - gb Karl prins og Kamilla: Alls ekki stödd á flæðiskeri KAMILLA OG KARL Héldu upp á 150 ára afmæli Viktoríukrossins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KOSNINGAR Kostnaður Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs við síðustu sveitarstjórnarkosn- ingar er tólf til tólf og hálf milljón- ir króna á landsvísu. Útlagður kostnaður hreyfing- arinnar nam fjórum til fjórum og hálfri milljón króna en hann felst meðal annars í launagreiðslum, ferðakostnaði og auglýsingum. Til viðbótar við þetta styrkti flokkur- inn framboð á sínum vegum, bæði V-lista framboð og blönduð fram- boð, um 8 milljónir króna. Bráðabirgðauppgjör svæðis- félaga má sjá á vef flokksins, www.vg.is. - gþg Vinstri græn: Birta uppgjör Lýsa eftir lúsum Breskir og banda- rískir vísindamenn bjóða foreldrum 20 sterlingspund, tæpar 2.800 krónur, fyrir að plokka og selja lýs úr hári barna sinna. Vísindamennirnir eru að berjast við ofur- lýs sem eru ónæmar fyrir lúsaeitri. BRETLAND KJÖRKASSINN Ætlar þú að fara á listasýningu í sumar? Já 28% Nei 72% SPURNING DAGSINS Í DAG Hefur þú sent SMS-skilaboð undir stýri? Segðu þína skoðun á Vísi.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.