Fréttablaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 8
8 28. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR
���������������������� �����������
�����������������������������������������
����������������������
����������������� ����������������������
��������������������������� �����������������������������
��������������������������������������������������
�������� ����������������������������������������� ���
����������������������������������� ������ ��������
�������������
����������������������
�������������
������������������������������������������������������������������������
������ ��������������������������������������������������� ���������������������
����������
������������
��������
���������
��������
��������
��������
��������
�����������������
��������
�����������
��������
������������������� �������������� �������������������
��������������������������������������������������������������
������������������������������������������������ ��������
����������������������������������������������� ������
�����������������������������������������������
EITRUN Klórgasmengun kom upp í
sundlaug Eskifjarðar rétt eftir
hádegi í gær og þurfti fjöldi fólks
á aðhlynningu að halda vegna eitr-
unar. Orsök slyssins er að edik-
sýru var hellt í klórtank laugar-
innar fyrir mistök. Þegar ediksýra
blandast klór lækkar sýrustig
skyndilega og klórgas losnar.
Klórgas er stórhættuleg eiturloft-
tegund sem getur verið banvæn í
ákveðnu magni.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var flutningabíll frá Olís,
sem átti að fara með klór til sund-
laugarinnar, með ediksýru í stað-
inn, án vitundar flutningabílstjór-
ans. Ekki er ljóst nákvæmlega
hvernig það átti sér stað að edik-
sýra var í stað klórs í flutninga-
bílnum. Þorsteinn Ólafsson,
forstöðumaður heildsöludeildar
Olís, viðurkenndi að eitthvað hefði
misfarist við flutninga á efnum til
sundlaugarinnar, en ekkert yrði
gefið upp fyrr en málið hefði verið
skoðað ofan í kjölinn. Strangar
reglur eru um hverjir mega flytja
efni af þessu tagi.
„Það voru iðnaðarmenn, sem
voru að störfum í byggingu sund-
laugarinnar, sem fyrst urðu varir
við klórgasið og forðuðu sér út,“
segir Jónas Vilhelmsson, yfirlög-
regluþjónn á Eskifirði, sem stjórn-
aði aðgerðum á vettvangi. Jónas
segir óljóst hver tilkynnti slysið til
lögreglunnar. Alls voru 34 fluttir til
aðhlynningar á heilsugæslunni á
Eskifirði og 25 af þeim fluttir
áfram á Fjórðungssjúkrahúsið á
Neskaupstað. Göngunum um Odd-
skarð og aðalgötunni á Neskaups-
stað var lokað á meðan til að greiða
fyrir umferð sjúkrabíla. Tveir
voru svo fluttir þaðan með sjúkra-
flugi á Akureyri og fjórir til
Reykjavíkur. Enginn er lífshættu-
lega slasaður.
Jónas segir að ákveðið ferli hafi
verið sett af stað þegar ljóst var
hversu alvarlegt ástandið var. Haft
var samband við samhæfingar-
stöðina í Reykjavík og björgunar-
sveitir kallaðar til ásamt læknaliði.
Flugvél og þyrla Landhelgisgæsl-
unnar voru send frá Reykjavík til
Egilsstaða með slökkviliðsmenn,
greiningarsveit frá Landspítala-
háskólasjúkrahúsi auk bráða-
tækna. Tvær flugvélar fóru frá
Akureyri til Neskaupstaðar með
sjúkraflutningamenn og lækni.
Fjórtán hús og leikskóli í
nágrenni sundlaugarinnar voru
rýmd vegna klórgassins. Vindur
var sex til átta metrar á sekúndu
og út frá því var áætlað að tvo
tíma tæki fyrir loftið að hreinsast
að sögn Jónínu Sigurðardóttur,
upplýsingafulltrúa samhæfingar-
miðstöðvarinnar, sem heyrir undir
almannavarnadeild Ríkislögreglu-
stjóra. „Fólk var varað við því að
vera á þessu svæði strax þegar
vart varð við mengunina.“
Lögreglan lauk störfum á vett-
vangi upp úr hálfátta um kvöldið
og hafði þá lokið við að koma á
jafnvægi á klórtankinum með því
að dæla vatni og sóta í hann.
sdg@frettabladid.is / salvar@frettabladid.is
Flutti edik í
stað klórs
Rúmlega þrjátíu manns lentu í klórgasmengun í
sundlaug Eskifjarðar í gær. Orsök slyssins er að edik-
sýru var hellt í klórtank laugarinnar fyrir mistök.
SJÚKRAFLUG FRÁ ESKIFIRÐI Tveir þeirra sem urðu fyrir eitrun voru fluttir til Akureyrar í gær
með sjúkraflugi en fjórir til Reykjavíkur. Var það meðal annars gert til að dreifa álaginu.
VEISTU SVARIÐ?
1 Fyrir hvað stendur W og H í nafni George H. W. Bush, fyrrverandi
forseta Bandaríkjanna?
2 Hvað heitir nýjasti liðsmaður Kastljóssins?
3 Hvað voru mörg mörk skoruð samtals í síðustu þremur leikjum
Landsbankadeildar kvenna?
SVÖR VIÐ SPURNINGUNUM ERU Á BLS. 42
UM 13:30 >
Iðnaðarmenn verða varir við klórgas-
mengun í byggingu sundlaugarinnar.
13:35 >
Tilkynning berst til Neyðarlínunnar um að
klórgaseitrun hafi myndast í sundlauginni.
13:35-13:40 >
Lögregla kemur strax á staðinn og hefur
störf.
13:40-13:45 >
Sjúkraflutningsmenn og slökkvilið koma
á staðinn.
13:35-13:50 >
Fólk flutt til aðhlynningar á Heilsugæslu
Eskifjarðar.
UM 14:00 >
Hús og leikskóli í nágrenni sundlaugar-
innar eru rýmd.
UM 14:30 >
Göngum um Oddskarð og aðalgötu
Neskaupstaðar er lokað.
RÚMLEGA 15:00 >
Þeir fyrstu fluttir áfram á sjúkrahúsið á
Neskaupstað.
UM 16:00 >
Flugvél og þyrla frá Reykjavík lenda með
mannskap og búnað.
UM 16:00 >
Tvær flugvélar frá Akureyri lenda með
mannskap og búnað.
RÚMLEGA 16:00 >
Átta manna afeitrunarlið kemur með
áætlunarflugi.
UM 16:30 >
Flugvél með tvo sjúklinga frá Neskaup-
stað lendir á Akureyri.
UM 19.30 >
Störfum á vettvangi lokið. Jafnvægi komið
á klórtank.
UM 20:00 >
Flugvél með fjóra sjúklinga frá Neskaup-
stað lendir í Reykjavík.
RÖÐ ATBURÐA Í KJÖLFAR MENGUNARINNAR»
EITRUN „Það er með ólíkindum að
þetta skyldi geta komið fyrir,
efnin eiga öll að vera merkt,“
segir Eyjólfur Sæmundsson,
forstjóri Vinnueftirlitsins, um
slysið í sundlauginni á Eskifirði í
gær þar sem sundlaugargestir
slösuðust alvarlega við að anda að
sér klórgasi. „Þetta sýnir það að
mannleg mistök geta orðið og það
er ofsalega erfitt að koma algjör-
lega í veg fyrir þau. Þetta verður
allt rannsakað ofan í kjölinn,
hvort nauðsynlegt sé að gera
frekari ráðstafanir og þá hverj-
ar.“
Slysið varð þegar ediksýru var
fyrir mistök dælt í klórgeymi
sundlaugarinnar í stað klórs, en
lítið var af klór í geyminum. Þó
þarf ekki mikið til þess að hætta
skapist eins og raunin varð í sund-
lauginni. Ekki mátti miklu muna
að afleiðingarnar hefðu verið
miklu alvarlegri.
„Ef merkingum er haldið
almennilega til haga eiga svona
slys ekki að geta gerst. Ég veit
ekki nákvæmlega hvernig þetta
gerðist en þarna hefur greinilega
eitthvað misfarist við meðferð
efnanna og vonandi mun rann-
sókn málsins hjálpa okkur við að
koma í veg fyrir svona slys í
framtíðinni,“ segir Eyjólfur.
- sþs
Efni á borð við ediksýru og klór eiga að vera vel merkt samkvæmt lögum og reglum í landinu:
Segir að svona eigi ekki að geta gerst
AF SLYSSTAÐ Á ESKIFIRÐI Ekki mátti miklu muna að afleiðingarnar hefðu verið alvarlegri.
Forstjóri Vinnueftirlitsins segir að málið verði rannsakað ofan í kjölinn.
MYND/HELGI GARÐARSSON
EITRUN Lögregla, slökkviliðsmenn,
læknar og hjúkrunarlið auk
björgunarsveitarmanna og liðs-
manna Rauða kross Íslands tóku
þátt í aðgerðum í gær.
Samhæfingarstöð veitti aðstoð
eftir þörfum og stýrði flutningi
bjarga til og frá staðnum og flutn-
ingi á sjúklingum. Einnig veitti
starfsfólk stöðvarinnar fjölmiðlum
upplýsingar jafn harðan og þær
var að fá.
Samhæfingarstöðin heyrir
undir almannavarnadeild Ríkis-
lögreglustjóra og sér um að sam-
hæfa aðgerðir af hálfu ríkisins.
Auk starfsfólks almannavarna-
deildar er samhæfingarstöðin
mönnuð hjálparliði frá margvís-
legum stofnunum og félaga-
samtökum sem virkjast að hluta
eða öllu leyti í almannavarna-
aðgerðum. - sdg
Fjöldi manns tók þátt í gær:
Aðgerðir voru
samhæfðar
M
YN
D
/H
Ö
R
Ð
U
R
G
EIR
SSO
N