Fréttablaðið - 28.06.2006, Page 12

Fréttablaðið - 28.06.2006, Page 12
12 28. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR RÚV STÖÐ 2 SKJÁR 1 NFS SIRKUS UPPSAFNAÐ ÁHORF YFIR VIKUNA 91,7% 67,3% 65,1% 33,8% 33,4% Könnun gerð af Gallup vikuna 28. maí til 3. júní ■ Allir aldurshópar VINSÆLUSTU SJÓNVARPSÞÆTTIRNIR Sjónvarpsefni Prósent Fréttir, íþróttir og veður 38,3% Kastljós 28,3% Aðþrengdar eiginkonur 28,4% Út og suður 26,7% Lífsháski 24,6% Tíufréttir 22,2% Fréttir 21,0% CSI 16,7% CSI: Miami 16,3% America’s Next Top Model 14,2% KÚVEIT, AP Mikill órói er nú í Kúveit vegna væntanlegra þing- kosninga í landinu. Kosningarn- ar fara fram þann 29. júní og eru sögulegar að því leyti að nú er konum í fyrsta skipti leyft að kjósa og bjóða sig fram til þings. Búist var við að nýfenginn kosninga- og framboðsréttur kvenna yrði veigamikill í barátt- unni, sem og átök um hversu langt skuli gengið í því að koma á lögum í anda Kóransins. Í kosn- ingabaráttunni hefur hins vegar mestur tími farið í að ræða um ýmis spillingarmál og ásakanir um atkvæðakaup. Konur hafa ásakað einn frambjóðandann um að hafa borið á þær fé og reynt að múta þeim með dýrum hand- töskum. Þetta tilboð til atkvæða- kaupa hefur verið kallað „sigur fyrir konur“ í kúveisku samfé- lagi. Umbótasinnar segja slaginn vera á milli þeirra og „herbúða hinna siðspillandi“, en með því eiga þeir við gömlu valdaelítuna í landinu; ríkisstjórnina og með- limi fjölskyldu emírsins. Í her- búðum umbótasinna hafa sam- einast íhaldssamir íslamistar og frjálslyndir menn sem aðhyllast vestræna stjórnarhætti. Í látunum hafa nokkrir þing- menn umbótasinna strunsað út úr þingsal til að mótmæla nýrri kjördæmaskiptingu, sem þeir segja að gangi ekki nógu langt til að hamla gegn spillingu. Það þykja nýmæli í landinu að háskólanemar hafa verið með hávær mótmæli. Ágreiningurinn milli fylkinganna er svo djúp- stæður að líklegt þykir að átökin muni setja mark sitt á kúveiskt samfélag til langframa. - kóþ Fyrstu kosningarnar í Kúveit þar sem konur mega bjóða fram og ríkir mikill órói vegna þessa: Mestur tími fer í að ræða spillingarmál KONUR Í FRAMBOÐI Ekki eru allir jafn hrifn- ir af því að konur bjóði sig fram til þings í Kúveit og eru fjölmörg auglýsingaskilti skemmd. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTAFLJÓÐ Í DORTMUND Stemningin var góð í gær á leik Brasilíu og Ghana í Dortmund, Þýskalandi og minnti á stundum á litríka kjötkveðjuhátíð í Ríó. NORDICPHOTOS/AFP Fögnum jafnrétti Helmingur ráherra Framsóknarflokksins eru konur Landssamband framsóknarkvenna boðar til fagnaðar og óskar Framsóknarflokknum til hamingju með að konur eru helmingur ráðherra flokksins. Fagnaðurinn fer fram fimmtudaginn 29. júní kl. 20.00 að Hverfisgötu 33. 3-hæð. Veislustjóri; Ingibjörg Pálmadóttir fyrsti kvennráðherra Framsóknarflokksins. Léttar veitingar Framsóknarfólk velkomið, takið með ykkur gesti Valgerður Sverrisdóttir fyrsta konan sem gegnir stöðu utanríkisráðherra Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra GAZA-SVÆÐIÐ, AP Palestínumenn bjuggu sig undir innrás Ísraels- manna á Gaza-svæðið í gærkvöldi og var vegum við landamærin lokað með jarðhleðslum og gadda- vír. Ísraelsher hefur með öllu lokað landamærunum og Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hefur samþykkt drög að gríðar- stórri hernaðaraðgerð inn á Gaza- svæðið. Um þrjú þúsund ísraelsk- ir hermenn voru við landamærin í gær, ásamt fjölda skriðdreka og vopnaðra herbíla. Egypsk stjórnvöld hafa einnig brugðist við ástandinu með her- væðingu sinna landamæra, en þangað voru sendir um 2.500 her- menn í gær til að hindra straum væntanlegra flóttamanna frá Gaza-svæðinu. Hundruð Palest- ínumanna eru nú þegar föst Egyptalandsmegin landa- mæranna. Condoleezza Rice, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, hvatti Ísraelsmenn til að reyna samn- ingaleiðina til þrautar, en alþjóð- legir sáttasemjarar voru vonlitlir í gærkvöldi. Var því búist við að vopnuð átök brytust út. -kóþ Ísraelsmenn og Palestínumenn vígbúast: Stefndi í hörð átök STJÓRNMÁL Innan Framsóknar- flokksins hefur verið ákveðið að Jónína Bjartmarz láti af störfum sem annar varaforseti Alþingis og sömuleiðis Magnús Stefánsson sem varaformaður stjórnar þing- flokksins, eftir skipun þeirra í ráðherraembætti flokksins. Að sögn Hjálmars Árnasonar, formanns þingflokksins, hefur enn ekki verið ákveðið hverjir muni taka við fyrrnefndum stöð- um. „Enn hefur ekkert verið ákveðið í þeim efnum, en þing- flokkurinn mun funda um þessi mál bráðlega,“ segir Hjálmar. Aðspurður um hvenær búast megi fregna um eftirmenn þeirra tveggja, segir Hjálmar að tilkynn- ingar sé hugsanlega að vænta eftir rúma viku. Í stað þeirra Halldórs Ásgríms- sonar og Jóns Magnússonar, sem stigu upp úr ráðherrastóli fyrir skemmstu eins og kunnugt er, koma inn á þing þau Guðjón Ólaf- ur Jónsson og Sæunn Stefánsdótt- ir sem verða þingmenn Reykja- víkurkjördæmis norðurs. - æþe Eftir að stokka upp innan þingflokks Framsóknar: Ráðherrar enn í eldri embættum SJÓNVARP Fréttastöðin NFS sækir í sig veðrið samkvæmt könnun Gallup á sjónvarpsáhorfi lands- manna í maí. Tæp 34 prósent aðspurðra horfðu eitthvað á NFS á tímabilinu, en það er um tíu pró- sentustiga aukning frá því í mars. Á sama tíma minnkaði áhorf á Stöð 2 um sjö prósentustig, en Skjár Einn stendur nokkurn veg- inn í stað. Ríkissjónvarpið nær enn til flestra landsmanna en tæp 92 prósent horfðu eitthvað á stöð- ina í vikunni sem könnuð var, sem er svipað og hefur verið seinasta árið. Áhorf á Sirkus fer lítillega lækkandi frá því síðast. Meðaláhorf á virkum dögum lækkar eða stendur í stað hjá öllum stöðvum nema NFS, og er það líklegast sumarveðrið sem veldur því að fólk horfir almennt minna á sjónvarp. Karlmenn horfa meira á NFS og Sjónvarpið en konurnar eru í meirihluta hvað varðar Stöð 2, Skjá Einn og Sirkus. Í einstökum dagskrárliðum eru það fréttir Ríkissjónvarpsins sem hafa vinninginn með rúmlega 38 prósenta áhorf en Kastljós fylgir þar á eftir með um 28 prósent. Í erlendum þáttum eru Aðþrengdar eiginkonur vinsælastar, en 28 pró- sent þátttakenda horfðu á ævin- týri þeirra í hverri viku. Á sam- eiginlegan fréttatíma Stöðvar 2 og NFS horfðu 21 prósent aðspurðra. Vinsælasti innlendi þátturinn er Út og suður sem sýndur er í Ríkis- sjónvarpinu, en hann mældist með um 27 prósenta áhorf. Áhorf á sjónvarpsstöðvar eftir aldurshópum er nokkuð mismun- andi eftir því hvaða stöð er um að ræða. Ríkissjónvarpið er áberandi vinsælast hjá áhorfendum 50 ára og eldri en dæmið snýst við þegar áhorf á Sirkus og Skjá Einn er mælt. Könnunin var gerð vikuna 28. maí til 3. júní og náði til 1.500 Íslendinga á aldrinum 12 - 80 ára, völdum af handahófi úr þjóðskrá. 43 prósent aðspurðra tóku þátt í könnuninni. salvar@frettabladid.is Áhorf á NFS jókst í maí Samkvæmt könnun IMG Gallup í maí eykur frétta- stöðin NFS mest við sig áhorfi. DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavík- ur ógilti í gær að hluta úrskurð setts umhverfisráðherra, Jóns Kristjánssonar, frá 30. janúar 2003 þar sem heimiluð var gerð set- og miðlunarlóns norðan og vestan Þjórsárvera og veituskurðar í Þjórsárlón án mats á umhverfis- áhrifum framkvæmdarinnar. Áhugahópur um verndun Þjórs- árvera, ásamt sjö einstaklingum, meðal annars Hjörleifur Guttorms- son fyrrverandi iðnaðarráðherra, höfðuðu málið á hendur íslenska ríkinu, Skipulagsstofnun og Lands- virkjun og var þess meðal annars krafist að ógiltur yrði í heild sinni úrskurður setts umhverfisráð- herra. Auk þess kröfðust þau þess að úrskurður Skipulagsstofnunar yrði felldur úr gildi. Á það féllst dómurinn hins vegar ekki. - öhö Meta átti umhverfisáhrif: Úrskurðurinn ógiltur að hluta MAGNÚS STEFÁNS- SON JÓNÍNA BJARTMARZ ÍSRAELSKIR SKRIÐDREKAR Ísraelskir skrið- drekar þustu að Gaza-svæðinu í gær. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.