Fréttablaðið - 28.06.2006, Síða 16

Fréttablaðið - 28.06.2006, Síða 16
 28. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR16 nær og fjær „ORÐRÉTT“ „Nú höfum við verið í mikilli kosningabaráttu, svo allir eru í smápásu,“ segir Jakob Hrafnsson, formaður Sambands ungra framsóknarmanna, um starfið í flokknum. „Það eru allir í pásu seinnipart júní og fram í júlí, fólk tekur smá sumarfrí frá þessu.“ Jakob vinnur á sölusviði Orkuveitu Reykjavíkur, en hefur ekki tekið eftir miklum breytingum síðan nýr stjórnarformaður, Guðlaugur Þór Þórðarson, tók við. Spurður um nýju auglýsing- una frá fyrirtækinu segist hann ánægður með hana. „Fólk tekur eftir henni, það er fyrir öllu,“ segir Jakob. Jakob fór í gær á fyrsta fund nýs umhverfis- ráðs Reykjavíkurborgar eftir kosningar, en Gísli Marteinn Baldursson úr Sjálfstæðisflokknum er formaður þess. „Við erum þarna tveir úr Fram- sóknarflokknum, ég og Gestur Guðjónsson. Þar eru auðvitað mörg tækifæri, við ætlum að gera borgina hreinni og fallegri og láta gott af okkur leiða. Eins og frægt er ætlum við að losna við mávinn úr tjörninni og hreinsa til.“ Flokksþing Framsóknarflokksins verður haldið í ágúst, en Jakob segist ekkert geta spáð fyrir um útkomu þess. „Maður veit ekkert hverjir gefa kost á sér og það er ekkert hægt að segja til um það. En þetta verður spennandi.“ Bróðir Jakobs, Björn Ingi, komst inn í borgarstjórn og er Jakob að sjálfsögðu stoltur af eldri bróður sínum. Sambandsþing Sambands ungra framsóknarmanna verður haldið í haust og Jakobi finnst líklegt að hann gefi aftur kost á sér til embættis formanns. Jakob er mikill veiðimaður og fer eins oft og hann getur í silungs- og laxveiði, til dæmis í Þingvallavatni. „Svo á heimsmeistarakeppnin hug minn allan þessa dagana,“ segir Jakob að lokum. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? JAKOB HRAFNSSON, FORMAÐUR SAMBANDS UNGRA FRAMSÓKNARMANNA Mörg tækifæri í umhverfisráði Merkur áfangi „Þetta er mikil gleðistund í lífi okkar. Við höfum öðlast þennan rétt á við aðra sam- borgara.“ SÓLRÚN JÓNSDÓTTIR LJÓSMYND- ARI OG INGRID JÓNSDÓTTIR LEIKKONA FENGU LOKSINS AÐ SKRÁ SIG Í SAMBÚÐ Í GÆR. FRÉTTABLAÐIÐ, 27. JÚNÍ. Aldrei of seint að læra „Forsetinn talar spænsku, en ekki nógu vel.“ TALSMAÐUR HVÍTA HÚSSINS UM GEORGE W. BUSH BANDARÍKJA- FORSETA. FRÉTTABLAÐIÐ, 27. JÚNÍ. R V 62 08 B Eldvarnartæki – til öryggis Dufttæki 6kg með mæli og veggfestingu Reykskynjari 9v 6.698 kr. Eldvarnarteppi 100x100cm Eldvarnarfata 30ltr grá/svört 3.459 kr. 1.056 kr. 5.289 kr. Fyrir heim ilið, suma rbús taðin n, vinnu staði nn o g hóte lið Leikarinn og leikritahöf- undurinn Eric Bogosian er hér á landi til að taka þátt í Act alone-einleikjahátíð- inni sem hefst á Ísafirði á morgun. Þessi vandræða- gemlingur sem afvegaleidd- ist frá Hollywood en rataði inn á ritvöllinn segir meðal annars frá föður sínum sem var hermaður á Íslandi. Eric Bogosian hefur samið sex einleiki sem hann hefur sýnt víða um heim og skrifað fimm leikrit sem sýnd hafa verið og verðlaun- uð víða um Bandaríkin. Einnig hefur hann skrifað fjölmörg kvik- myndahandrit en þekktast þeirra er líklega Talk Radio sem Oliver Stone leikstýrði og Bogosian lék sjálfur í. Síðari ár hefur hann beitt fyrir sér stilvopninu í auknum mæli og nú liggja eftir hann tvær skáldsögur. „Ég á rætur mínar að rekja til Armeníu en fjölskylda mín flúði ofsóknir Tyrkja í byrjun síðustu aldar,“ segir Bogosian. „Ég er hins vegar alinn upp í litlum bæ þar sem allir litu út... ja, eiginlega eins og Íslendingar,“ segir hann og lítur í kringum sig í matsalnum á Nordica Hotel þar sem fjölmargir Íslendingar sitja að snæðingi. Bogosian er nokkuð dökkur yfir- litum og sker sig því úr innan um víkingana. „Ég var því ólíkur öllum öðrum í útliti og háttum og var því nokkuð utangarðs. Þegar ég kynntist svo leiklistinni fimmtán ára gamall fannst mér ég hafa fundið eitthvað sem átti sam- leið með. Ég fór fljótlega að búa til einleiki, eiginlega til að æfa mig en mér til mikillar undrunar fóru sýningastjórar að sýna þeim áhuga. Ekki var undrunin minni þegar aðsóknin fór að aukast og fólk fór að hlæja á sýningunum hjá mér; ég sem ætlaði að vera svo alvarlegur.“ Leiðin til og frá Hollywood Eftir það gerðust hlutirnir hratt en það var líka umhugsunarefni fyrir listamanninn. „Ég og kona mín lifðum á tæpum 400 þúsund krónum á ári árið 1981, sem ég skil eiginlega ekki hvernig er hægt núna, en svo fimm árum síðar var ég kominn með rokna tekjur, einkabílstjóra og allan pakkann. Auðvitað vil ég ekki vera svangur en það má nú á milli sjá og ég tel að svona stökkbreyting sé ekki góð fyrir listamann. Ég tek ekki að mér hvaða vitleysu sem er og umbarnir voru alveg búnir að fá nóg af þessari vandlætingu minni svo smátt og smátt fjarlægðist ég Hollywood,“ segir Bogosian og sýpur á kaffinu. „Reyndar lék ég í myndinni Under Siege 2 með Steven Seagal árið 1992, svo maður getur nú gert eitt og annað fyrir góðan pening og nú er fullt af fólki sem þekkir mig einungis fyrir þessa vitleysu,“ segir hann og hlær við. „En málið er það að ég tók bara aðra stefnu. Ég er einfari á þessari leið sem ég hef valið mér sem er ólíkt hlut- skipti Hollywood-liðsins sem er umsetið allan daginn.“ En hvað er það sem hann vill segja áhorfendum sínum? „Ég vil fyrst og fremst hafa gaman í eina og hálfa klukkustund. En til þess að það sé í raun eitthvað gaman verður sýningin að ná til áhorf- andans og jafnvel hrista upp í honum. Ég á bágt með að þola við- horf bandarískra áhorfenda sem líta á leiksýningu eins og um neyslu sé að ræða. Ég vil hrista upp í fólki svo stundum fer ég jafnvel að rífast við áhorfanda og skamma hann til dæmis ef hann hlær á vitlausum stað. Þá er komið á beint samband milli mín og hans og þá er gaman.“ Les Bandaríkjastjórn pistilinn En það er ekki aðeins á leiksviðinu sem Bogosian á það til að vera ódæll. „Ég var svolítið agressífur hér áður og kom mér oft í slags- málaklandur þar sem ég hafði gaman af því að viðra skoðanir mínar þó þær féllu í grýttan jarð- veg. En kona mín yrði ekkert hrifin af því ef ég kæmi heim á kvöldin með glóðarauga svo ég hef látið af þessu... að mestu, ég var reyndar kominn í klandur í gær,“ segir hann og hlær við. „En mér finnst bara fólk vera of gagnrýnislaust og latt. Það nennir ekki að hugsa þannig að þegar einhver Hollywood-mynd býður því upp á að finna samhljóm með fötluðum, saklausum manni sem heimurinn hefur farið illa með fer það að telja sér trú um að það sé saklaus fórnarlömb sem ekkert geti gert. Það nennir til dæmis eng- inn að trúa því að án aðstoðar bandarísku leyniþjónustunnar CIA hefði harmleikurinn 11. september ekki getað átt sér stað. Staðreynd- irnar eru nógu margar til að fólk að minnsta kosti velti því fyrir sér en það nennir því ekki. Hvernig stend- ur á því að flugræningjarnir lærðu að fljúga á flugvelli þar sem CIA hefur einna mesta æfingastarf- semi? Hvað er Bandaríkjastjórn að gera í Afganistan annað en að tryggja sér aðgang að dópinu og olíunni í Írak með brasi sínu þar? Fólk er ekki varnarlaust né sak- laust, það hefur kosningarétt og rétt til að tjá sig og hugsa. Það ætti bara að hafa dug í sér til að nýta sér það í stað þess að sitja með hendur í skauti og taka öllu gagn- rýnislaust sem slengt er framan í það.“ Fallegar konur á Íslandi Faðir Bogosians var hermaður sem sendur var til Íslands í fjórtán mánuði í seinni heimsstyrjöldinni og því hefur Bogosian lengi verið forvitinn um þetta norræna land. „Hann sagði eitt og annað um þetta ævintýri á Íslandi. Til dæmis hældi hann konunum í hástert og ég sem hef aðeins verið hér í nokkrar klukkustundir er strax búinn að sjá glæsilegar konur svo hann hefur líklegast haft eitthvað til síns máls,“ segir hann og hlær. „En þó voru það hlutirnir sem hann sagði ekki sem vöktu frekar forvitni mína um þessa þjóð. Reyndar bauð ég þeim gamla að koma með mér hingað í þessari ferð en hann er kominn á níræðisaldurinn og var ekki til í tuskið.“ Bogosian mun sýna brot úr ein- leikjum sínum á Act alone-hátíð- inni og það gæti orðið tímamóta- sýning. „Ég kalla þetta samsull The Worst of Eric Bogosian og þetta er í síðasta sinn sem ég sýni einleik því nú finnst mér rétt að fara að breyta til og jafnvel skrifa meira.“ Við svo búið var kappinn flog- inn til Ísafjarðar með Elfari Loga Hannessyni sem stendur fyrir hátíðinni. Og svo er það aðeins að sjá hvaða klandur hann kemur sér í næst. jse@frettabladid.is Einfarinn sem yfirgaf Hollywood ERIC BOGOSIAN Hann er vanur að segja skoðanir sínar umbúðarlaust enda átti hann ekki samleið með liðinu í Hollywood. Ekki verður betur séð en hann geti komist í frekari vand- ræði í heimalandi sínu miðað við það sem hann segir um stjórnina þar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN STEVEN SEAGAL Bogosian segist ekki til í að taka að sér hvaða vitleysu sem er en þó lét hann sig hafa það að leika í mynd með Steven Seagal og nú þekkja margir hann einungis fyrir það. Fiskifræðingarnir Bjarni Jónsson og Eik Elfarsdóttir komu að loðnu á þurru landi í Ingólfsfirði á Strönd- um um síðustu helgi. Loðnutorfa hafði þá komið inn með morgunflóð- inu og synt upp í á sem er venjulega ekki háttur loðnunnar. Áður fyrr var þó ekki óalgengt að sjá loðnu í fjörunni en Þórarinn Snorrason, bóndi á Selvogi, segir að loðna hafi skolast í fjöruna á hverju ári um miðja síðustu öld en afar óalgengt er að hún syndi sjálf í fjöru. En fleiri tegundir eiga það til að taka upp á nýjungum eins og ósa- lúran sem fiskifræðingarnir tveir frá Veiðimálastofnun voru að rann- saka. „Menn tóku eftir þessari tegund hér fyrst árið 1999 og þá töldu menn að aðeins væri um flækinga frá Færeyjum að ræða en nú hafa þeir hrygnt hér og dreift sér allt frá Faxaflóa, Breiðafirði og nú síðast er þeirra einnig orðið vart á Strönd- um,“ segir Eik. - jse Ingólfsfjörður á Ströndum: Loðna á landi LOÐNA Í FJÖRUNNI Loðnutorfa synti upp í á með morgunflóðinu en þegar fjaraði aftur út enduðu fjölmargar eins og þessar. MYND/EIK ELFARSDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.