Fréttablaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 28. júní 2006 19
Ná›u flér í n‡ja Kjörvara litakorti›
Trygg›u vi›num bestu fáanlegu vörn.
Á Íslandi er allra ve›ra von.
Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi
• Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i Litabú›in Ólafsvík
• Núpur byggingavöruverslun Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sau›árkróki
• Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi
• Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík
Allra veðra von
Viðarvörn er ekki það sama og viðarvörn. Kjörvari er
sérstaklega þróaður fyrir íslenska veðráttu þar sem
mikilvægt er að gæðin séu í lagi.
Notaðu viðarvörn sem þolir íslenskt veðurfar
FERÐAÞJÓNUSTA Selasetur Íslands á
Hvammstanga var opnað við
hátíðlega athöfn á sunnudag. „Hér
verður hægt að fræðast um seli,
selaveiðar og selaafurðir með
máli og myndum,“ segir Hrafn-
hildur Ýr Víglundsdóttir fram-
kvæmdastjóri setursins.
Hún segir að stofn kostnaður
sé um 25 milljónir en 75 hluthafar
eru að setrinu en einnig hafa
styrkir fengist til þess frá sam-
gönguráðuneytinu, framleiðni-
sjóði, Sparisjóði Húnaþings og
Stranda, Nýsköpunarmiðstöð og
fleirum.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra og Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra ávörpuðu
aðstandendur setursins við opn-
unina og kom fram í máli Einars
að Hafrannsóknarstofnun hefði
áhuga á því að hafa samstarf við
Selasetursmenn um selarann-
sóknir.
Á setrinu, sem er í sögufrægu
verslunarhúsi á Hvammstanga,
verður hægt að kaupa miða í sela-
skoðunarferðir með bátnum Áka
sem mun vera eini selaskoðunar-
báturinn á landinu.
Mikil hátíðarhöld voru í bænum
vegna opnunarinnar. „Það var
heilmikil grillveisla hér fyrir utan
setrið þar veitingar voru á boð-
stólum frá Kaupfélagi Skagfirð-
inga og Kaupfélagi Vestur-
Húnvetninga sláturhúsi, Vífilfelli,
Emmess ís og kökugerðinni hér á
Hvammstanga,“ segir fram-
kvæmdastjórinn.
Verið er að vinna að því að
koma upp selaskoðunarstöðum á
Vatnsnesinu en þar á ekki að væsa
um menn sem horfa til sjávar.
- jse
Selasetur Íslands opnað á Hvammstanga um síðustu helgi við mikil hátíðarhöld íbúa og aðkomumanna:
Stofnkostnaður um 25 milljónir króna
STURLA BÖÐVARSSON SAMGÖNGURÁÐ-
HERRA KLIPPIR Á BORÐANN Tveir ráðherrar
voru viðstaddir þegar Selasetur Íslands var
opnað á Hvammstanga á sunnudaginn. Á
þriðja hundrað manns tók þátt í hátíðar-
höldunum af tilefni opnunarinnar.
SAMKEPPNI Utanríkisráðuneyti
Japans efnir til ritgerðarsam-
keppni þar sem verðlaunin eru
tveggja vikna kynnisferð til Jap-
ans næstkomandi haust. Þátttak-
endur verða að vera á aldrinum 18
til 35 ára, vera með íslenskan ríkis-
borgararétt og mega ekki hafa
komið til Japans áður.
Efni ritgerðarinnar er eftirfar-
andi: „Í ár fagna Japan og Ísland
50 ára afmæli stjórnmálasam-
bands landanna. Hvað er hægt að
gera til að efla samskipti ríkjanna
enn frekar?“ en ritgerðin á að vera
á ensku.
Ritgerðum þarf að skila 14. júlí
næstkomandi í Sendiráð Japans.
Ritgerðarsamkeppni:
Ferð til Japans
í verðlaun
FRIÐARMÁL Amnesty International
ásamt fleiri mannréttindasamtök-
um afhentu Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, myndabanka á mánudag
með myndum af einni milljón
manna. Þetta gera samtökin til að
krefjast þess að eftirlit með vopna-
sölu verði hert og að alþjóðasamn-
ingi um vopnaviðskipti verði
komið á.
„Með því að senda mynd af sér
er fólk að krefjast þess að böndum
verði komið á vopnin og fyrsta
skrefið í þá átt er gerð þessa
alþjóðlega samnings. Nú þegar
eru 1300 Íslendingar komnir inn í
myndabankann og fjöldi til viðbót-
ar búinn að skrá sig,“ segir
Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Íslandsdeildar
Amnesty International. „Nú þegar
hafa 45 ríkisstjórnir lýst stuðningi
við gerð svona samnings auk
Evrópusambandsins svo við erum
bjartsýn á að hann verði að veru-
leika,“ segir Jóhanna. - öhö
Amnesty International:
Aukið eftirlit
með vopnasölu
JÓHANNA K. EYJÓLFSDÓTTIR framkvæmda-
stjóri Íslandsdeildar Amnesty International.
ÞÝSKALAND, AP Brúnó, björninn
ítalskættaði sem hefur reikað um
skóga Bæjaralands undanfarinn
mánuð, var skotinn í gær og drapst
í kjölfarið, tveggja ára að aldri.
Dýraverndunarsinnar eru reiðir
vegna málsins og hefur umhverfis-
ráðherra Bæjaralands, sem fyrir-
skipaði drápið, fengið morðhótan-
ir í kjölfarið. Áður höfðu yfirvöld
ákveðið að drepa Brúnó ekki, en
skiptu um skoðun.
Yfirvöld segja það einungis
hafa verið tímaspursmál hvenær
björninn hefði ráðist á fólk, en
fram að því hafði hann bara drep-
ið kindur og kanínur. Ekki hefur
fengist uppgefið hverjir það voru
sem skutu hann, af ótta við hefndar-
aðgerðir. - sgj
Brúnó bangsi allur:
Bjarndýrið fellt
í Bæjaralandi
FLÓTTABJÖRNINN BRÚNÓ Bjarndýrið komst
á síður blaðanna og skyggði jafnvel á HM í
knattspyrnu sem stærsta frétt Bæjaralands.