Fréttablaðið - 28.06.2006, Page 20

Fréttablaðið - 28.06.2006, Page 20
 28. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR Það hefur verið ansi heitt hér í Berlín frá því fótboltakeppnin byrjaði. Við notum þetta margir sem afsökun fyrir því að horfa á leiki undir berum himni og yfir köldum drykk í einhverjum af þessum risastóru bjórgörðum sem virðast helsta lífsmarkið í atvinnu- lífi borgarinnar þessa dagana. Þetta gefur í leiðinni færi á ýmiss konar félagsfræðilegum athugun- um. Ég myndi að vísu gefa nem- endum mínum núll ef þeir notuðu sömu aðferðafræði og ég en þetta er notaleg vinnuaðstaða. Eitt af því sem ég hef tekið eftir á þess- um rannsóknarferðum mínum er að lið frá Afríku og lið að mestu skipuð Afríkumönnum virðast njóta sérstakrar velvildar hjá fólki hér í borg. Ég hef ekki mæli- tæki upp á vasann en mér heyrist á klappinu og því sem sagt er að þessi lið séu í áberandi meira uppáhaldi en lið skipuð fólki með langar rætur í okkar eigin álfu. Nú eru allir hlutir sem snúa að skipt- ingu fólks í kynþætti afskaplega viðkvæmir hér í Berlín, af vel þekktum ástæðum, og því þótti mér þetta svolítið forvitnilegt og gerði enn óvísindalegri athugun á skoðunum manna á þessu. Það kom ekki á óvart að orð eins og samúð og aðdáun komu fram í skýringum manna auk þess sem mér var bent á að fæst evrópsku liðin hefðu spilað skemmtilega í keppninni. Það er hins vegar miklu stöðugra og áhrifameira fyrirbæri en samúð og aðdáun sem ég hef tekið eftir í þessari keppni. Og það er stórkostlega aukin nálægð fjar- lægustu heimshluta. Hún minnir á sig allt í kringum okkur í stóru og smáu en oft með sérlega áhuga- verðum og þægilegum hætti í þessari keppni. Nú er það svo sem ekki aldeilis nýtt að menn finni fyrir aukinni nálægð á milli ólíkustu heimshluta þessi árin. Þetta er eins konar leið- arstef samtímans. Það er líka auð- vitað að menn ættu að finna til meiri nálægðar í fótbolta en í flóknari greinum menningar, því að í fótbolta eru markmið og leiðir öllu einfaldari en til að mynda í pólitík eða trúarbrögðum. Nálægð- in hefur hins vegar aukist svo mikið á svo stuttum tíma að þarna er á ferðinni ein allra mikilvæg- asta bylting mannkynssögunnar. Í íslenskri landafræði, sem ég rétt slapp við að læra í mínum ung- dómi, er að finna fróðleg dæmi um þær óravíddir sem áður skildu á milli landa. Þar segir um íbúa Afr- íku, að hottentottar og búskmenn standi á lægsta menningarstigi, en að kaffar þrífist betur enda hafi þeir samið sig nokkuð að siðum hvítra manna. Kennslubókin segir að Súdansvertingjar séu að ýmsu leyti vel gefnir en að flestir svert- ingjar trúi hins vegar að voldugir andar búi í stokkum og steinum. Landkostir í Afríku fá heldur ekki háa einkunn í bókinni þótt á það sé bent að í Afríku megi finna dýr- mæt hráefni fyrir iðnaðarþjóðir Evrópu. Þetta sést strax á heitum stuttra kafla. Einn kaflinn heitir: „Menningarskilyrði eru óheppi- leg.“ Annar heitir „Loftslagið í skógunum er banvænt.“ Landið er sagt að stórum hluta óhæft fyrir menningarþjóðir. Um loftslagið er sagt að það sé víðast óhollt hvítum mönnum, nema syðst í álfunni, og beinlínis banvænt hvítu fólki þar sem verst lætur. Fólk á Íslandi sem er fáum árum eldra en ég fékk þetta í veganesti út í lífið sem fróð- leik um Afríku. Kaflar um Asíu eru litlu skárri. Góðar kenslubækur skipta máli, og stundum miklu mál. Um þau efni hef ég hugsað svolítið að und- anförnu, ekki síst vegna þess að ég rakst nýlega á frásagnir af stór- veldum framtíðarinnar, Kína og Indlandi, í íslenskri kennslubók sem minntu á þær órafjarlægðir sem áður voru á milli landa. Kynja- sögur um fjarlægar slóðir sem skemmtu mönnum í einangrun fyrr á tímum eru hins vegar smám saman að verða hlægilegar á annan máta en áður. Það er auðvitað allt- af stutt í pólitík og enn styttra í fordóma, klisjur og grunnfærar staðalímyndir af fólki og þjóðum en sú einfalda tilfinning að mann- kynið sé eitt og heimurinn einn er hins vegar sífellt að breiðast út og verða dýpri og sterkari. Fótbolta- veislan í Þýskalandi minnir á þetta með skemmtilegri hætti en lestur á milli línanna í heimsfréttum. Sú einfalda tilfinning Í DAG FÓTBOLTI JÓN ORMUR HALLDÓRSSON Það er auðvitað alltaf stutt í pólitík og enn styttra í for- dóma, klisjur og grunnfærnar staðalímyndir af fólki og þjóð- um en sú einfalda tilfinning að mannkynið sé eitt og heimur- inn einn er hins vegar sífellt að breiðast út og verða dýpri og sterkari. FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 NFS Í BEINNI Á VISIR.IS 35.000 gestir vikulega sem dvelja í u.þ.b. eina klst. hver. Auglýsingasími 550 5000. Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5. Ríkisstjórnin hefur nú stigið fyrsta skrefið til að reyna að koma enn frekari böndum á verðbólguna í kjölfar sam-komulags vinnumarkaðarins og skattayfirlýsinganna sem gefnar voru í tengslum við undirskrift þess. Það var mikilvægt að Samtök atvinnulífsins og ASÍ skyldu ná saman um endurskoð- un kjarasamninga til loka næsta árs og að ríkisstjórnin skyldi eyða óvissunni varðandi skattamálin, en það þarf meira að koma til, ekki aðeins hjá ríkissvaldinu, heldur einnig hjá sveitarfélög- um og lánastofnunum. Stóran hluta þeirrar verðbólguhvetjandi fasteignasprenging- ar sem orðið hefur hér á undanförnum misserum, og þá aðallega á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannabyggðum, má rekja til hærri íbúðalána bæði af hálfu hins opinbera og ekki síst af hálfu bank- anna, sem voru í því að yfirbjóða hið opinbera íbúðalánakerfi og freistuðu margra verðandi íbúðaeigenda með lánamöguleikum sínum. Bankarnir hafa nú sem betur fer hægt á sér í þessum yfir- boðum, og gera nú meiri og strangari kröfur til lántakenda en áður. Þróunin á fasteignamarkaði hér hefur verið ótrúleg á síðustu misserum bæði hvað varðar fjölda bygginga og verðlag. Frá því bankarnir fóru að bjóða íbúðalán í stórum stíl fyrir tæpum tveim- ur árum hefur fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað upp undir 70 af hundraði og þar með er fasteignaverð í Reykjavík orðið með því hæsta í höfuðborgum Evrópu. Með aðgerðum þeim sem ríkisstjórnin boðaði í gær varðandi lægra lánshlutfall hjá Íbúðalánasjóði og lækkun hámarkslána leggur ríkisstjórnin enn eitt lóðið á vogarskálarnir til að stuðla að hjöðnun verðbólgunnar. Þetta getur haft úrslitaáhrif á það hjá mörgum hvort þeir leggja út í fasteignakaup. Það er þá spurning- in hvort þetta komi ekki aðallega niður á þeim tekjulægstu og þeim sem erfiðast eiga með að fjármagna sín íbúðakaup. Það má kannski segja sem svo að þeir eigi ekkert að vera að huga að slík- um málum, en ráðstafanir sem þessar mega ekki verða til þess að tekjulágir hópar og þeir sem búa á landsbyggðinni verði út undan í þessum efnum. Hinir efnameiri finna alltaf einhverja leið til að fjármagna fasteignakaup sín og eru ekki upp á hið opinbera komnir í þeim efnum. Jafnframt því að takmarka lánamöguleika hjá Íbúðalánasjóði hefur ríkisstjórnin nú gefið út að frestað verði útboðum og upp- hafi nýrra framkvæmda, og að rætt verði við Samtök sveitar- félaga og stærstu sveitarfélögin með það að markmiði að dregið verði úr framkvæmdum á þessu ári og hinu næsta. Það er hæpið að nokkur verulegur árangur verði af þessu fyrr en seint á þessu ári og líklega ekki að nokkru gagni fyrr en á næsta ári, nema hjá ríkinu sjálfu. Þar hefur tíðum verið gripið til þess að skera niður vegaframkvæmdir við svipaðar aðstæður og svo hefur það líka tíðkast að veita meira fé til samgöngubóta, þegar efnahagslífið hefur verið í lægð. Vegaframkvæmdir verða því áreiðanlega skornar niður að þessu sinni auk annarra framkvæmda. Stjórnvöld mega ekki grípa til einhverra skyndiráðstafana, sem líkja má við taugaveiklun á markaði, því það getur líka verið hættulegt að spennan í efnahagslífinu falli mjög snöggt, þótt allir séu sammála um brýna nauðsyn þess að verðbólgan hjaðni, jafn- framt því sem kaupmáttur launatekna verði varðveittur. Leiðin að þessum tveimur markmiðum getur verið vandrötuð, en hún á að vera fær ef vilji er fyrir hendi hjá þeim sem sitja undir stýri og stjórna ferðinni. SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Ríkisstjórnin í baráttu við verðbólguna: Dregið úr fasteignalánum Tjaldsvæði fyrir djamm en ekki húsbíla Áður hefur verið frá því sagt í þessum dálki að víðsvegar á landsbyggðinni hafi skapast óánægja með það hversu tregir húsbílaeigendur séu til þess að nota tjaldsvæði sem búið er að leggja mik- inn pening í. Þetta vandamál hefur til dæmis komið upp á Hólmavík og Höfn í Hornafirði. Gunnar Th. Þorsteinsson frá Félagi húsbílaeigenda gaf Fréttablaðinu sína skýringu á þessum vanda. „Mergur- inn málsins er einfaldlega sá að rekend- ur tjaldsvæða ganga rösklega fram í að innheimta dvalargjöld en gera síðan í fæstum tilvikum nokkurn skapaðan hlut til að tryggja þessum borgandi gestum sínum næturfrið fyrir ölvuðu fólki sem fer í útilegu eingöngu til að drekka og djamma næturlangt. Það er ákaflega slæmt, en þó staðreynd, að vilji fólk fá næturfrið á ferðum sínum um landið er oft skásta leiðin að forðast tjaldsvæð- in og leita gistingar annars staðar.“ Spjaldaglaður dómari á spjöld sögunnar Dómar á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi hafa verið óvenju harðir í þessari keppni en aldrei fyrr hafa rauðu og gulu spjöld farið jafn oft á loft. Þegar búið var að leika 54 leiki hafði rauða spjaldið farið 24 sinnum á loft en það gula 289 sinnum. Rússneski dómarinn Valentin Ivan- ov sem dæmdi leik ódælla Hol- lendinga og Portúgala hefur verið iðnastur við kolann en hann sýndi rauða spjaldið fjórum sinnum en það gula 16 sinnum. Það er aldeilis aðferð til að skrá sig á spjöld sögunnar! Rangstæðir dómarar En þeir eru fleiri sem sýna hörku þegar verið er að dæma. Það var umtalað hversu lélegur leikmaður brasilíski leikmaðurinn Ronaldo væri fyrir stuttu. Margir spurðu hvað þessi fitubolla væri eiginlega að gera í liðinu. Ronaldo svaraði fyrir sig með því að skora þrjú mörk í tveimur leikjum og hefur hann því skorað 15 mörk í lokakeppni heimsmeistarakeppn- innar. Fleiri en nokkur annar. Ítalski leikmaðurinn Totti hafði einnig fengið svipaða gagnrýni þar til hann skoraði úr vítaspyrnu í uppbótartíma gegn Áströlum. Það er greinilegt að stundum er sá sem dæmir rangstæður. jse@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.