Fréttablaðið - 28.06.2006, Side 22

Fréttablaðið - 28.06.2006, Side 22
 28. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR22 Dagur B. Eggertsson er nú þegar búinn að stofna íþróttafélag úti í Geldinganesi, samanber grein hér í Fréttablaðinu þann 26. júní. Dagur hefur af því miklar áhyggjur að eftir ríflega eitt til tvö ár verði slatti af lóðum tilbúinn til afhend- ingar úti í Geldinganesi. Svona verður ástandið að hans mati: „Gamli góði Villi,“ gefandi gömlum, góðum verktökum lóðirnar út og suður og fólk vaðandi með bygg- ingarefnið út í Geldinganes. Reyndar er það svolítið skondið, þegar menn komast svona glæsi- lega á flug. Dagur ræðir í fram- haldinu um kostnað við sundlaugar- byggingu úti í Geldinganesi. Úr því hann er svo frumlegur að telja að menn vaði með mótatimbrið þarna út, þá bjóst ég nú við því að hann mundi gera ráð fyrir því að menn lærðu sund á því að synda með sementið út í nesið. Já vel á minnst, leiðin út í Geldinganes. Dagur kallar hana einu óspilltu fjöruna í Reykjavík. Eftir grand- anum liggur nú þegar vegur út í nesið. Ég veit greinilega ekki hvað er óspillt land. Það er algjörlega óskiljanlegt af hverju Dagur nefnir ekki almenning til sögunnar, þegar hann talar um lóðirnar. Hann sér Vilhjálm fyrir sér gefandi verk- tökum lóðir. Ég viðurkenni fúslega að R-listinn gerði það algjörlega ómögulegt fyrir almenning að fá lóð. Samt hélt ég að hann myndi átta sig á því að nú mun hinn almenni Reyk- víkingur aftur hafa möguleika á því að byggja. Einnig er það algjör fásinna að tala um að lóðir verði gefnar. Það er nefnilega ekkert athugavert við það að selja lóðir á kostnaðarverði, en í raun algjör kvikindisskapur að okra þannig á þeim að enginn venjulegur maður hafi efni á því að fá sér lóð. Skelfing er ég líka leiður á því, þegar menn slá því fram að fólk hafi almennt stutt eitthvað sem það hefur aldrei verið spurt um. Dagur segir að menn hafi upp til hópa stutt þéttingu byggðar til vesturs? Kannast nokkur við að hann hafi verið spurður álits? Að lokum. Dagur segir í greininni að við höfum ekkert að gera með hálfbyggð hverfi. Ja, hver skramb- inn. Ég man glöggt þegar Neðra- og Efra- Breiðholt voru hálfbyggð svo og Seljahverfi og Foldahverfi. Gaman að heyra það að maður hafi ekkert með hálfbyggð hverfi að gera. Nú förum við í Grafarvogi að skilja af hverju okkur fannst svo oft að lítið mark væri tekið á íbúum hér. Dagur - ertu að grínast? UMRÆÐAN BYGGÐ Á GELDINGANESI VALUR ÓSKARSSON KENNARI Eins og við öll vitum, hafa mögu- leikar hins almenna borgara á að tjá sig þróast mjög hratt með tilkomu netmiðla undanfarin ár. Margir virðast taka þátt í því á einhvern hátt, eins og t.d. á spjall- rásum vefsíðna, á blogg-síðum eða með fjöldasendingum í tölvupósti. Það er því óhætt að segja að tjáningarfrelsið blómstri. Tjáning í netmiðlum virðist þó ólík þeirri sem fer fram í dagblöðum og sjónvarpsþáttum. Samskiptamátinn virðist vera einhvers staðar á milli opinberra samskipta og persónulegra, form- legra og óformlegra, enda staða miðilsins og markhópur hvers og eins þeirra oft óljós. Stundum er það opinber fjölmiðill, stundum heimasíða stofnunar og stundum einstaklings eða hópa. Mér finnst eðlilegt að með þessum miðlum sé meira siðferðislegt aðhald og eftirlit. Ástæða þess að ég hef máls á þessu er sú að ég hef tekið eftir að það er talsvert um það, og það er mein á tjáningarfrelsinu, að ómál- efnalegar árásir á einstaklinga eigi sér stað í netmiðlum. Sem dæmi má nefna að ég fann um mig sjálfan ummæli á nokkrum vefsíð- um eins og „Toshiki segist finna engin virði í íslenskri menningu,“ „Hann vill leggja niður íslenskt mál af því að hann telur það vera kúgunartæki.“ Ég tel að ummælin séu ekki tómur misskilningur heldur meðvituð þegar ég skoða þau í samhengi. Slíkt virðist koma fyrir fleiri og er ekki alltaf persónulegt. Málið er að slíkt er gert án vitundundar viðkomandi. Ég fékk nokkrum sinnum svipaðar athugasemdir, sem að mínu mati voru alrangar, í dag- blaði en a.m.k. hafði ég möguleika á að svara þeim, þar sem þær voru opinberar. En hvernig getur maður leiðrétt misskilning annarra eða svarað persónulegum skoðunum eins og t.d. á bloggi? Á meðan geta saklausir lesendur netsins haldið að vitlaus ummæli séu réttmæt. Fyrir utan meðvitaðan hug einhvers annars til manns og málefnis, getur það átt sér stað líka að maður skrifar vanhugsuð ummæli inn á netið í tilfinninga- legu uppnámi og sem samstundis viðbrögð við því sem maður hefur þar lesið eða annars staðar. Satt að segja hef ég sjálfur gerst sekur um það, þar sem ég gerði slíkt nokkrum sinnum en hef það nú fyrir reglu að ígrunda vel það sem ég set inn á netið. Það verður ekki syndaaflausn en a.m.k. bað ég viðkomandi afsökunar á sama hátt og ég sendi út afsökunarbeiðni þar sem ég sagði frá mistökum mínum. Ég ætla því ekki að ásaka annað fólk í þessum málum heldur vil ég eingöngu spyrja hvort ekki sé tímabært að móta einhvers konar siðareglur á sviði netsamskipta og miðla. Sjálfur hef ég lausnirnar ekki á takteinunum og vil endilega heyra skoðanir fólks sem er vel að sér um réttindamál, tjáningarfrelsi og siðferði í fjölmiðlum. Vonast til þess að heyra í einhverjum. Vantar ekki blogg-siðferði? UMRÆÐAN SIÐFERÐI Á NETINU TOSHIKI TOMA PRESTUR INNFLYTJENDA Þessa dagana keppast fjölmiðlar við að dásama það sem menn leyfa sér að nefna þjóðarsátt. En núver- andi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnurekenda nefndi það því nafni, þ.e.a.s. samning þann sem ASÍ, SA og ríkisstjórnin hafa gert með sér. Þetta er auðvitað rangnefni og étið upp eftir þessum aðilum. Þetta er ekki þjóðarsátt, frekar en margt annað sem þessir aðilar hafa tekið sér fyrir hendur undanfarin ár. Þjóðarsáttin, eða kjarasamningar er gerðir voru 1990 voru með allt öðru formi og máttu svo sannar- lega kallast þjóðarsáttarsamningar því öllum aðilum samfélagsins er höfðu áhuga á var boðið að koma að samningaborðinu á þeim forsendum er hentuðu hverjum og einum aðila. Að því borði var öllum launa- mönnum boðið hvort sem þeir voru á „almennum“ vinnumarkaði eða „opinberir starfsmenn.“ Öllum samtökum vinnuveitenda, fulltrúum ríkisins og fulltrúum sveitarfélag- anna, stéttarfélagi bænda og full- trúum bankanna. Ekki var aðeins rætt um launataxta launamanna, heldur var allt samfélagið skannað og farið yfir öll þau atriði sem hugsanlega gátu haft áhrif á kaup- mátt launa launafólks, á kaupmátt bænda, á samkeppnisstöðu atvinnu- lífsins, á stöðu fjölmargra stofnana og á stöðu sveitarfélaganna. Reynt var að sjá fyrir um flesta þessa þætti auk þess sem það var markmið að halda uppi kaupmætti lægstu kauptaxtanna. Allar aðrar formúlur þar sem stórum hópum launamanna er haldið utan við samningaborðið eins og nú, geta ekki talist vera neinar þjóðarsáttir. Því er það ótrúlegt dómgreindar- leysi af ASÍ að gera ekki kröfur um, að öllum samtökum launa- manna yrði boðið að samningaborð- inu og staðið við slíkar kröfur. Þetta þýðir auðvitað á mannamáli að sumir mega vera með og aðrir ekki. Þegar svo háttar til í kjarabarátt- unni verður manni hugsað til 1. maí. Jú, við göngum saman í göng- unni en lengra nær samstaðan ekki. Því miður. Enda hafa ýmsir forystu- menn innan ASÍ t.a.m. hafnað öllu samstarfi með félögum B.S.R.B. varðandi 1. maí og eða með öðrum „opinberum starfsmönnum.“ Ef þetta eru vinnubrögðin og viðhorf forystumanna ASÍ gagnvart opinberum starfsmönnum þá ættu launamenn almennt að taka sérstak- lega eftir þeim. Því ég veit að almennir félagar hafa allt önnur viðhorf, okkur hliðhollari. Minna verður á að nú verða ýmsir forystu- menn innan ASÍ að hætta að blanda sér inn í kjaramál opinberra starfs- manna eins og þeir hafa gert bæði ljóst og leynt undanfarin ár. Þeir þurfa einnig að hætta að hafa skoð- anir á þeim og hætta að fjalla um einstaka taxtahækkanir hjá ýmsum stéttarfélögum opinberra starfs- manna. Enda eru langflestir félagar ASÍ á svonefndum markaðslaunum sem eru í mjög litlum tengslum við umsamin laun þessara manna nema ef væru gamlir menn og útlendingar svo vitnað sé í orð eins þeirra nýverið. Einmitt þveröfugt við það sem gerist meðal opinberra starfs- manna, þeir eru á taxtalaunum. Með sumarkveðju, til allra launamanna hvar sem þeir eru í stéttarfélagi. Það var auðvitað margt þrælgott í þessu samkomu- lagi og það hefði ekkert orðið öðru vísi með okkur innanborðs. Tókuð þið eftir því, hvort þið hafið fengið að kjósa um þessa niðurstöðu? Þjóðarsátt eða ekki þjóðarsátt UMRÆÐAN KJARASAMNINGAR KRISTBJÖRN ÁRNASON KENNARI Ef þetta eru vinnubrögðin og viðhorf forystumanna ASÍ gagnvart opinberum starfs- mönnum þá ættu launamenn almennt að taka sérstaklega eftir þeim. Því ég veit að almennir félagar hafa allt önnur viðhorf, okkur hliðhollari. SENDIÐ OKKUR LÍNU Við hvetjum lesendur til að senda okkur línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tekið á móti efni sem sent er frá Skoð- anasíðunni á visir.is. Þar eru nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. 550 5000 Hringdu ef blaðið berst ekki - mest lesið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.