Fréttablaðið - 28.06.2006, Side 23

Fréttablaðið - 28.06.2006, Side 23
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 3.00 13.31 24.01 Akureyri 1.44 13.16 24.44 Andrés Pétur Rúnarsson, eigandi eign. is fasteignasölu, lumar á nokkrum dýrgripum í bílskúrnum sem flestir bílaáhugamenn myndu vilja koma höndum yfir. Andrés Pétur er stoltur eigandi af þónokkrum bílum, bæði gömlum og nýjum. Í góðviðrinu um daginn dró Andrés einn þeirra út úr fylgsnum sínum til að sýna lesendum Frétta- blaðsins. „Þetta er álíka bíll og Bobby Ewing átti í Dallas þáttunum. Mig var búið að dreyma um svona bíl lengi eða allt frá því ég fylgdist með Dallas í gamla daga,“ segir Andrés og hlær. „Þetta er Mercedes Bens SL280, árgerð 1976 og er bæði með blæju og húsi. Þessi bíll var fyrst framleiddur árið 1974 og ég held að framleiðslu hans hafi verið hætt árið 1986.“ Andrés er búinn að eiga Bensinn í nokkur ár og má með sanni segja að hann sé í miklu uppáhaldi. „Þessir bílar eru ekki margir hér á landi, kannski um þrír eða fjórir,“ segir Andrés en í gegnum árin hafa margir bílaáhugamenn hrist peningapyngjuna framan í hann í von um að festa kaup á gripnum. Hingað til hefur Andrés þó ekki getað hugsað sér að segja skilið við þennan góða og fallega vin. „Ég er reyndar núna að leita mér að 1971 árgerð af svipuðum bíl. Mig langar í þá árgerð þar sem ég er fæddur árið 1971,“ segir Andrés og hlær. „Finni ég þá árgerð er aldrei að vita nema ég láti gamla Bensinn í hendurnar á einhverjum sem er hans verðugur.“ Bensinn hans Andrésar verður þrítugur á þessu ári. Við 25 ára aldur teljast bílar til fornbíla og þá lækka tryggingar verulega og bifreiðagjöld falla niður. „Ég nota þennan bíl meira sem sparibíl enda er hann bara ekinn hundrað þúsund kílómetra. En það jafnast ekkert á við rúnt í góðu veðri með blæjuna niðri. Það er algjör draumur.“ johannas@frettabladid.is Draumur um Dallas Andrés Pétur Rúnarsson segir fátt betra en góður blæjulaus rúntur á góðum degi á góðum fornbíl. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hálendisleiðir opnast nú ein af annarri. Fylgjast má með stöðu vega á heimasíðu vegagerðarinnar www.vegargerdin.is. Á síðustu dögum hafa meðal annars verið opnaðar leiðir um Fjallabaks- leið nyrðri og Dómadalsleið, af Mývatnsöræfum að Dettifossi og upp í Herðubreiðarlindir. Bílatryggingar hækka hjá VÍS þann 1. ágúst. Ábyrgðartrygg- ing bifreiða, bifhjóla, fjórhjóla, vélsleða og dráttarvéla hækkar, ásamt slysatryggingu ökumanns og eiganda, um fimm prósent. Útivist gengur á Smáþúfur á Lág-Esju klukkan hálf sjö í kvöld. Lagt verður af stað frá Toppstöð- inni í Elliðaárdal. Gengið verður frá þjóðvegi við mynni Blikdals um tvo kílómetra frá munna Hvalfjarðarganga. Smáþúfur eru á Esju vestanverðri. ALLT HITT [BÍLAR FERÐIR] GÓÐAN DAG! Í dag er miðvikudagurinn 28. júní, 179. dagur ársins 2006. KRAFLA STÓÐ UPP ÚR Hollendingarnir Nico og Anders hafa ferðast um Ísland síðastliðinn hálfan mánuð. FERÐIR 2 TREYSTA BLINT Á HVORN ANNAN Farsæll rallakstur er samstarf tveggja keppenda sem verða að treysta hvor öðrum án umhugsunar. BÍLAR 4

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.