Fréttablaðið - 28.06.2006, Side 26
[ ]
Farsæll rallakstur er samstarf
tveggja aðila sem verða að
treysta hvor öðrum án umhugs-
unar og skilyrðislaust.
„Tuttugu, hægri þrír löng, í vinstri
tvo, varúð yfir hæð sem kreppist í
hægri tvo.“ Svona lýsingu þurfa
rallökumenn að geta meðtekið í
einni bunu og notað til að keyra
nánast blindandi. Það er því ljóst
að mikil ábyrgð hvílir á aðstoðar-
ökumanninum sem les lýsingarn-
ar upp á hárréttum tíma. Borgar
Ólafsson er aðstoðarökumaður
Jóns Bjarna Hrólfsson en saman
hafa þeir verið að gera góða hluti
á Ford Focus-bifreið sinni í sumar,
unnið allar keppnir í sínum flokki.
„Þetta þýðir að eftir tuttugu
metra kemur löng hægri beygja
sem við ætlum að keyra í þriðja
gír. Strax á eftir förum við í vinstri
beygju í öðrum gír sem liggur yfir
varasama blindhæð sem endar
í hægri beygju, áfram í öðrum
gír,“ segir Borgar. „Hlutverk
aðstoðarökumannsins er að lesa
nákvæmlega það sem er framund-
an. Við keyrum leiðina rólega fyrir
keppni og skrifum allt niður, allar
beygjur, gírana sem við ætlum að
keyra í, holótta kafla sem við köll-
um „kinký“, blindhæðir og stökk.“
Þegar í keppni er komið skiptir
svo höfuðatriði að lesa rétt, á rétt-
um tíma og að vera ekki að hafa
áhyggjur af því hvort bílstjórinn
ráði við bílinn. „Ég spái ekkert í
honum, treysti honum í blindni
eins og hann treystir mér. Það er
lykilatriði að ökumennirnir þekki
hvor annan og treysti. Í síðustu
keppni var svarta þoka og alveg
niður í fimm metra skyggni. Þá er
gott að hafa góðar leiðarnótur til
að geta haldið hámarkshraða. Það
verður allt að vera í botni, annars
töpum við tíma,“ segir Borgar.
Bíll þeirra félaga er 2000
árgerð en var fluttur hingað til
lands í nóvember 2005 í samvinnu
við Brimborg. Vélin er um 180
hestöfl og er með framdrifi, Dog
Box-gírkassa, Cosworth-brems-
um, Speedline-felgum og Pirelli-
dekkjum. Manni dettur í hug að
eftir að hafa keppt á svona tæki sé
erfitt að halda sig á löglegum
hraða á þjóðvegum úti.
„Alls ekki, ég er alveg slakur
eftir keppni. Þá er ég búinn að fá
útrás fyrir hraðann. Maður er
stundum bara fyrir öðrum öku-
mönnum á leiðinni heim,“ segir
Borgar hlæjandi. „Um daginn
vorum við á Akureyri að prófa
Ford GT-bílinn hjá Brimborg. Við
settum hann í 300 km hraða á flug-
brautinni og keyrðum svo heim
seinna um daginn. Eftir hálftíma
föttuðum við að hvorugur okkar
hafði sagt orð, við vorum svo slak-
ir og rólegir eftir þessa útrás,“
segir Borgar að lokum.
Næsta umferð í Esso rallinu fer
fram 8. júlí. einareli@frettabladid.is
Treysta blint
hvor á annan
Borgar og Jón Bjarni klárir í slaginn. Eins og sést er lítið eftir af innréttingu bílsins en þess í
stað kemur öflugt veltibúr, körfustólar og vandað öryggisbelti. LJÓSMYND/JÓHANN KRISTJÁNSSON
Borgar og Jón Bjarni á fleygiferð í einni af keppnum sumarsins. Þeim hefur gengið mjög
vel og hafa unnið allar keppnir í sínum flokki. LJÓSMYND/RAGGI M
HYUNDAI ER EINN AF STÆRSTU
STYRKTARAÐILUM HM Í ÞÝSKALANDI
OG LEGGUR TIL RÚMLEGA 1.000
BIFREIÐAR FYRIR BÆÐI LEIKMENN
OG STARFSMENN MÓTSINS.
Auk þess að leggja til rútur og bíla
stendur Hyundai fyrir ýmsum leikjum
kringum mótið. Meðal annars er
hægt að kjósa stuðningsmann leiks-
ins á netinu á heimasíðu FIFA eða
Hyundai. Áður en mótið hófst stóð
Huyndai einnig fyrir leik þar sem valin
voru bestu slagorðin fyrir hvert lið.
Hyundai framlengdi á síðasta ári
samning sinn sem einn megin
styrktaraðili FIFA fram til ársins 2014
og mun því áfram sjá sambandinu
fyrir nauðsynlegum farartækjum eða
a.m.k. næstu átta árin. Hyundai má
því kalla fótboltabílinn í ár. - tg
Hyundai á HM
Hyundai er einn aðal styrktaraðlili FIFA.
Þó það sé oft erfitt að fá bílastæði í miðbæ Reykjavíkur á það ekki að
stoppa bæjar- og kaffihúsaferðir. Það er alltaf hægt að fá stæði í bílastæðahús-
unum og fyrir lægra gjald.
10”, 12”, 15”, einföld
10”, 12”, 15”, tvöföld
Verð frá Kr. 5.995,-
Verð frá Kr. 8.995,-
Bassabox
AGMótorsport - Klettháls 9
110 Reykjavík - s. 587 5547
Verslun á netinu : www.agmotorsport.is