Fréttablaðið - 28.06.2006, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 28. júní 2006 5
Við Bæjarflöt er verkstæðið
Formverk sem meðal annars
framleiðir pallhýsi. Árlega
framleiðir fyrirtækið tæplega
10 hús og að sögn Bjarna Ein-
arsson, starfmanns Formverks,
anna þeir vart eftirspurn.
Pallhýsin eru eins konar ferðahús
sem fara aftan á pallbíla. Húsin
virðast ekki stór við fyrstu sýn
enda þurfa þau að vera létt og fyr-
irferðalítil. Þess vegna eru þau úr
léttu en jafnframt sterku trefja-
plasti sem steypt er eftir mótum
hérlendis. Til að minnka loftmót-
stöðu eru húsin ekki höfð há á
meðan á akstri stendur en þegar
húsin eru í notkun lyfta lofttjakk-
ar þakinu upp svo manngengt er í
húsinu. Á milli þaks og veggja er
sterkur dúkur sem vel strekkist á.
„Þetta er eiginlega eins og félags-
heimilið í Stuðmannamyndinni
Með allt á hreinu,“ segir Bjarni og
hlær. „Lítið að utan en miklu
stærra að innan.“
Í pallhýsinu, sem ekki vegur
nema 360 kíló, er svefnpláss fyrir
fjóra. Þar er svokallað Webasto-
hitakerfi sem tengt er við bensín-
tank bifreiðarinnar og hitastýring
sér til þess að hægt er að velja
hitastigið. Tólf volta pressuísskáp-
ur prýðir hýsin en í honum er bæði
kælir og frystihólf. Eldunarbún-
aðurinn samanstendur af tveimur
gashellum og innbyggðum vaski
með krana sem tengdur er við lít-
inn vatnstank. „Innréttingarnar
eru mjög sterkar og gerðar til að
þola nokkuð álag. Svo er auðvelt
að þrífa húsin og það tekur ekki
nema klukkutíma að gera það
skínandi hreint eftir skítugt ferða-
lag,“ segir Bjarni.
Eins og áður kom fram fram-
leiðir Formverk um tíu hús á ári.
Framleitt er eftir pöntunum og
hefjast starfsmenn handa við að
smíða hús upp úr áramótum.
Húsin eru framleidd í staðalstærð
en samkvæmt Bjarna hafa bæði
minni bílar og stærri fengið hús
og hafa þau vandamál sem komið
hafa upp varðandi stærðarmun
verið leyst. Innréttað pallhúsi hjá
Formverki kostar 1.590.000 krón-
ur en án innréttingar kostar það
890.000 krónur.
tryggvi@frettabladid.is
Bjarni Einarsson starfsmaður Formverks.
FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL
Íslensk hýsi á pallinn
Pallhýsin eru smíðuð af Formverki. Hér sést eitt tilbúið til notkunar. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL
Mældur í hundruðum volta en
ekki hestafla.
Alþjóðlegi hönnunarskólinn í
Frakklandi hefur lokið við hönnun
Audi-hugmyndabíls sem hefur
fengið nafnið R-Zéro. Bíllinn verð-
ur knúinn rafmagni en er þó ætlað
að búa yfir afli og aksturseiginleik-
um ofurbíls.
Samkvæmt hönnuðum er hug-
myndin að nota lithium-ion raf-
hlöður til þess að framleiða 800
volt sem sjá svo um að knýja fjóra
rafmótora. Allt vegur þetta eittvað
og mótorarnir verða líklega nálægt
85 kg samanlagt og blikna því í
samanburði við 1.200 kílóa rafhlöð-
urnar. Það er reyndar ekki ljóst
hvort yfirhöfuð er mögulegt að
smíða slíkan bíl, en yfirbyggingin
á þó fullt erindi í sviðsljósið. - ee
Hugmynd að raf-
knúnum ofurbíl
Gríðarlega fallegur ofur-Audi. Því miður er ekki vitað hvort mögulegt er að smíða hann.
Síðustu mánuði hefur þjófaflokkur sem
rænir hljómflutningstækjum úr bílum haft
sig mikið frammi í Evrópu. Þjófaflokkurinn
virðist sérhæfa sig í þýskum bílum, meðal
annars frá Audi og Volkswagen. Fjölmargir
bílaeigendur hafa upp á síðkastið orðið
varir við það að hljómsflutningstækjum í
bílum þeirra hefur verið stolið, án þess þó
að nokkur ummerki séu um innbrot.
Danska lögreglan telur í þessu sam-
bandi að þjófarnir noti mögulega einhvers konar þjófalykkla sem stungið er sam-
tímis í læsingar beggja framdyra og opni þannig samlæsinguna vandræðalaust.
Lyklarnir hafa fengið nafnið „pólskir lyklar“ og vísar það til gruns lögreglunnar um
að þjófaflokkurinn komi frá Póllandi. Fjölmiðlafulltrúi VW/Audi í Danmörku stað-
festi að slíkur lykill að bílunum fyrirfinnist. Hann sé líklega rafræn fjarstýring sem
forrituð sé þannig að hún lesi fjarstýðar læsingar í bílum sömu tegundar.
Innbrotsalda í Evrópu
Gildir til 4. ágúst 2006 eða á meðan birgðir endast.
Fjórhjóladrifsbílarnir frá Mitsubishi eru löngu orðnir að uppáhalds-
ferðafélögum lífsglaðra Íslendinga. Af því tilefni fylgir 200.000 kr.
úttekt hjá Ellingsen völdum Pajero, Outlander og Pajero Sport. Njóttu
sumarsins á sprækum fjórhjóladrifsbíl með fullu skotti af dóti frá Ellingsen.
með völdum Mitsubishi Pajero,
Outlander og Pajero Sport.
l i i i j
l j .
Útivistartilboð
200.000 kr. úttekt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
6
3
1