Fréttablaðið - 28.06.2006, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 28.06.2006, Qupperneq 31
Gott til síðasta dropa House of Fraser: Flaggskipið á Oxford Street Sala Stoke City: Var Stoke bara djók? 8 Sögurnar... tölurnar... fólkið... Miðvikudagur 28. júní 2006 – 24. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 F R É T T I R V I K U N N A R 10-11 Stórstreymt í Straumi | Átaka- fundur var haldinn í Straumi Burðarási þar sem tókust á fylkingar Björgólfs Thors Björgólfssonar og Magnúsar Kristinssonar. Hlutabréf í félag- inu snarhækkuðu. Forstjóraskipti | Björgólfur Thor tilkynnti í lok fundarins að Þórði Má Jóhannessyni forstjóra yrði ýtt til hliðar og Friðrik Jóhannsson tæki við. Fasteignamarkaður kólnar | Sérfræðingar spá tíu prósenta raunlækkun fasteigna á næstu misserum. Lækkana verður helst vart í úthverfum enda útlit fyrir metframboð nýbygginga á árinu. Horfa enn á HoF | Getgátur voru uppi um að Baugur ætlaði að draga sig út úr viðræðum við stjórn House of Fraser um kaup á félaginu. Heimildir benda til þess að áætlanir Baugs hafi ekk- ert breyst og að bækur HoF séu enn í skoðun. Nýtt lyf DeCode | Íslensk erfða- greining tilkynnti um jákvæð- ar niðurstöður prófana á nýju astmalyfi. Tilraunalyfið CEP- 1347 hefur jákvæð áhrif á ýmsa þætti lungnastarfsemi og á bólgu- þátt sem tengist astma. Dalurinn styrkist | Bandaríkja- dalur hefur verið að styrkjast gagnvart evru og jeni að undan- förnu en búist er við að stýrivext- ir bandaríska seðlabankans hækki um fjórðung úr prósentustigi, í 5,25 prósent í þessari viku. Keops kaupir skrifstofur | Danska fasteignafélagið Keops, sem er að stórum hluta í eigu Baugs, hefur skrifað undir sam- komulag um kaup á 37 skrifstofu- byggingum í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð fyrir nítján milljarða króna. Atorka heldur áfram að auka hlut sinn í breska iðnaðarfyrirtækinu NWF Group og heldur nú utan um átján prósenta hlut. Mikil hækkun hefur orðið á gengi NWF Group að undanförnu en í júní hefur hluturinn farið úr 695 pensum í 900 pens. Þetta gerir 29,4 prósenta hækkun. Frá ára- mótum nemur hækkunin tæpum 38 prósentum. Verðmæti hlutabréfa Atorku í NWF Group er nú í kringum tvo milljarða króna. Breska félagið byggir rekstur sinn á fóður- og eldsneytisdreif- ingu, aðfangadreifingu til stór- markaða og rekstri garðyrkju- vöruverslana. - eþa Enn hækkar NWF Group Það hefur verið nóg að gera hjá efnisveitunni Hexia í tengsl- um við HM í knattspyrnu í Þýskalandi en fyrirtækið sendir myndskeið af mörkum í HM til farsímanotenda í Mið-Ameríku fimm mínútum eftir að boltinn lendir í netinu. Helga Waage, tækniþróunar- stjóri Hexia, segir að venjulega sé mest að gera hjá fyrirtækinu í tengslum við helgarleiki í ensku knattspyrnunni en líkir hama- ganginum nú við að þrír leikir séu haldnir í ensku úrvalsdeild- inni á hverjum degi. Helga segir Mexíkóa hafa sýnt myndsendingunum sérstak- an áhuga enda hafi þjóðin ætlað að landa heimsmeistaratitlinum. Þær vonir runnu út í sandinn eftir að Argentínumenn sendu Mexíkóa heim eftir 2-1 sigur á laugardag. - jab Boltinn til Mið-Ameríku Þriðju kynslóðar farsímar: Hlustað eftir nýrri tækni Óli Kristján Ármannsson skrifar Aðgerðir sem ríkisstjórnin upplýsti um í gærmorgun til að stuðla að hjöðnun verðbólgu þykja ganga held- ur skammt og vera seint fram komnar. Frá og með mánaðamótum breytast útlánareglur Íbúðalánasjóðs, útboðum og nýjum framkvæmdum á vegum ríkisins er frestað og ríkið óskar eftir viðræðum við sveitar- félögin um frestun framkvæmda. Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greining- ardeildar Landsbankans, fagnar útspili ríkisstjórn- arinnar og segir mikilsvert að fá það svo skjótt fram. „Þetta er sterkt útspil,“ segir hún en áréttar um leið að á vanti varðandi útfærslu aðgerða , bæði tímasetningar og tölur. Hún segir ríða á að umfang aðhaldsaðgerðanna skýrist og telur að í síðasta lagi verði það að gerast með fjárlagafrumvarpinu í haust. „Svo er í næstu viku náttúrlega stýrivaxta- ákvörðun Seðlabankans,“ segir hún og telur ljóst að vextir verði hækkaðir, enda mikilvægt að allir sýni styrkt aðhald. „Ég tel enga spurningu um að stýri- vextir verði hækkaðir, en útspil ríkisstjórnarinnar dregur heldur úr líkunum á því að hækkunin verði 100 punktar, þótt vissulega sé það ekki útilokað.“ Að sama skapi fagnar Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, áætlunum um frestun framkvæmda og útboða og segir þær mjög í samræmi við það sem hagfræðingar hafi verið að segja. „Þetta er þó pínulítið í lausu lofti allt, en góð vísbending engu að síður,“ segir hann og segir jafn- framt mjög skynsamlegt að reyna að fá sveitarfé- lögin til að draga úr framkvæmdum. „En mér finnst allt of skammt gengið hvað varðar Íbúðalánasjóð. Þar hefði þurft miklu harðari afstöðu og helst ganga frá því máli með endanlegum hætti,“ segir Tryggi sem helst hefði viljað sjá Íbúðalánasjóð seldan bönkunum eða breytt í heildsölubanka. „Á þetta hafa allir hagfræðingar og alþjóðastofnanir bent og kallað eftir.“ Að sama skapi segist Tryggvi sakna trúverðugrar yfirlýsingar um að ekki yrði skrifað undir frekari stóriðjuframkvæmdir næstu tvö árin. „Það hefði mátt gera meira,“ segir hann. Ingólfur H. Bender, forstöðumaður greiningar- deildar Glitnis banka, segir ekki verða um það deilt að með nýjustu aðgerðum ríkisstjórnarinnar sé leitast við að draga úr verðbólgu, en veltir fyrir sér samhljómnum við aðgerðir liðinnar viku þar sem reynt var að bæta kjör almennings með skattalækk- unum og fleiri aðgerðum. Þær aðgerðir segir hann klárlega ýta undir frekari verðbólgu. „Aðgerðirnar nú leggjast svo á árar með öðru sem kemur til með að lækka verð á íbúðarhúsnæði á næstunni,“ segir hann og bendir á að um leið og bæta hafi átt kjör almennings stuðli aðgerðirnar nú að því að rýra virði sparnaðar fólks sem falinn sé í húsnæði þess. „Þarna er í rauninni tekið úr öðrum vasanum það sem sett var í hinn.“ Ingólfur segir að ríkisvaldið hefði átt að grípa miklu fyrr til aðgerða, enda hafi strax við upphaf stóriðjuframkvæmda verið ljóst í hvað stefndi. Hann segir að verðbólgan komi til með að hjaðna hratt á næsta ári um leið og áhrif veikingar krónunnar fjara út og aðgerðir ríkisvaldsins nú vegi þar ekki þungt. Of skammt gengið Sérfræðingar segja meira þurfa að koma til hjá ríkisstjórn- inni. Aðgerðir hennar gætu haft áhrif á vexti Seðlabankans. Búist er við að 31 prósenta hlutur Trygginga- miðstöðvarinnar (TM) í Fjárfestingafélaginu Gretti verði keyptur á allra næstu dögum. Núverandi hluthafar í Gretti eru Landsbankinn, Ópera, félag í eigu Björgólfsfeðga, Sund og TM en ekki hefur fengist uppgefið hvernig kaupendur ætla að skipta með sér hlutnum og/eða hvort nýir hluthafar koma að Gretti. Í bókum TM er Grettishluturinn metinn á 5,5 milljarða króna. TM hefur óskað eftir innlausn þessa hlutar og kemur þá annaðhvort til greina að aðrir hluthafar kaupi hlutinn eða Grettir, sem er meðal annars stærsti hluthafinn í Straumi Burðarási með tæp- lega sextán prósenta hlut, verði leystur upp og eignir hans færðar til hluthafa. Eftir því sem næst verður komist vilja forsvarsmenn TM fá greitt fyrir bréfin með peningum. Í ljósi þeirra átaka sem hafa átt sér stað innan hluthafahóps Straums koma þessi áform ekki á óvart, að eigendur Grettis vilji halda félaginu gangandi með því að kaupa hlut TM. Óvíst er hvernig TM myndi kjósa á hluthafafundi, sem boð- aður hefur verið í Straumi, ef Grettir yrði leystur upp og hlutabréfum félagsins í Straumi skipt milli hluthafa. Þá hefur líka verið boðað til hluthafafundar í TM þann 5. júlí næstkomandi að ósk Sunds þar sem fram fer stjórnarkjör. Einnig stendur til að umræður fari fram um þá ákvörðun, sem stjórn TM tók, að leysa til sín eignarhlutinn í Gretti. Yfirtökunefnd hefur komist að þeirri niður- stöðu að hvorki hafi myndast yfirtökuskylda í TM eða Gretti eftir að miklar eignabreytingar urðu þar á dögunum. Landsbankinn og tengdir aðilar náðu þá meðal annars meirihluta í Gretti. - eþa Eigendur verja stöðu í Gretti 14
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.