Fréttablaðið - 28.06.2006, Page 36

Fréttablaðið - 28.06.2006, Page 36
MARKAÐURINN 28. JÚNÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR6 Ú T L Ö N D Bandaríski auðkýfingurinn Warren Buffett ætlar að gefa 37 milljarða dollara, jafnvirði 2.800 milljarða íslenskra króna, til vel- gjörðasjóðs bandaríska hugbún- aðarmógúlsins Bill Gates. Þetta er meirihluti auðæfa Buffetts en eigur hans eru metnar á 44 milljarða dali eða rúma 3.300 milljarða króna. Sjóður Gates veitir styrki til heilbrigðis- og menntamála um allan heim. Þá ætlar Buffett einnig að stofna styrktarsjóð í nafni eig- inkonu sinnar, Susan Thompson Buffett, sem lést fyrir tveimur árum. Að sögn viðskiptatímaritsins Forbes er þetta stærsta gjöf sem nokkrum styrktasjóði hefur hlotnast í Bandaríkjunum. Warren Buffett er annar rík- asti maður í heimi. Hann verður 76 ára í ágústlok og oft nefnd- ur „spekingurinn frá Omaha“ vegna hæfileika sinna í fjárfest- ingum. Hann flaggar lítt auðæf- um sínum og hefur búið í sama húsinu í fæðingarbæ sínum í Omaha í Nebraska síðastliðin 49 ár. Ákvörðunina mun Buffett hafa tekið í kjölfar þess að Gates, sem er ríkasti maður í heimi, greindi frá því fyrir nokkru að hann hygðist hætta daglegum afskiptum af rekstri Microsoft og beina kröftum sínum að verk- efnum góðgerðasjóðsins. - jab BUFFETT OG GATES Þeim Warren Buffett og Bill Gates hafa þekkst í mörg ár en þeir spila stundum brids saman. MYND/AFP Buffett deilir út auðnum Jón Skaftason Skrifar Markaðsvirði rússneska olíurisans Rosneft er 4.500 til 6.100 milljarðar íslenskra króna sam- kvæmt verðmati sem fyrirtækið lét framkvæma. Hluti bréfa í Rosneft verður skráður á hluta- bréfamörkuðum í Lundúnum og Moskvu um miðj- an júlí. Forsvarsmenn fyrirtækisins vonast til að selja bréf fyrir um 1.500 milljarða króna. Verð á bréfunum er milli 450 til 600 íslenskar krónur á hlut. „Við eigum von á mun meiri eftirspurn en framboði. Nú þegar hafa margar pantanir borist frá stórum og sterkum fagfjárfestum,“ lét Sergei Bogdanikhov forstjóri hafa eftir sér. Rosneft er í dag næststærsta olíuvinnslufyr- irtæki í Rússlandi og yfirlýst markmið er að verða það afkastamesta ekki síðar en árið 2010. Hagnaður Rosneft nam rúmum 270 milljörðum króna árið 2005 og rúmlega fimmfaldaðist frá árinu áður. Stærstur hluti fyrirtækisins var áður í eigu rússneska olígarkans Michaels Kodorkovskí, sem nú situr í fangelsi í Síberíu. Kodorkovskí og fleiri voru árið 2004 neyddir til að selja hluti sína í Yukos til leppfyrirtækis sem síðar var yfirtekið af Rosneft, sem þá var miðlungsstórt olíufyrirtæki í eigu rússneska ríkisins. Gagnrýnendur höfðu mjög á móti afskiptum rússneska ríkisins af Rosneft og sögðu fyrirtækið í raun hafa verið þjóðnýtt. Margir fjárfestar líta þó þátttöku rússneska ríkisins jákvæðum augum, innheimta skatta hljóti að verða á hófsömum nótum og leiðin að opinberu leyfi greið. Þá þykir uppsett verð tiltölulega hagstætt. Vladimír Pútin, Rússlandsforseti, hefur gefið það út að það fé sem safnast í hlutafjárútboð- inu verði notað til niðurgreiðslu erlendra skulda rússneska ríkisins. Nýlega var tilkynnt að Rosneft hefði hagnast um tæpan 61 milljarð króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Rússneska ríkið metur Rosneft á 6.100 milljarða Hluti bréfa í rússneska ríkisolíurisanum fer á markað um miðjan júlí. Ágóðinn verður nýttur til að greiða niður skuldir rússneska ríkisins. Evrópusambandið hefur ákveð- ið að verja sem nemur 275 millj- örðum króna til vínframleiðenda innan aðildarríkja sambandsins til að koma vínuppskeru í lóg. Þetta er viðleitni sambandsins til að hjálpa til við að grynnka á sístækkandi „vínfljótinu“ svokallaða sem myndast hefur vegna samdráttar í sölu á vínum í álfunni. Þá verður vínframleið- endum sömuleiðis veittur fjár- stuðningur til að bregða búi. Helsta ástæða samdrátt- arins er minni víndrykkja á heimamarkaði, offramleiðsla á vínum og aukin sala á vínum frá Bandaríkjunum og Chile. Til að bregðast við aukinni samkeppni hafa evrópskir vín- framleiðendur reynt að fjölga viðskiptavinum sínum utan Evrópusambandsins. Þær til- raunir hafa borið þann árangur sem horft var til. Um 300 milljónum lítra af léttvíni frá Frakklandi, Ítalíu og Spáni verður samkvæmt ákvörðun ESB breytt í etanól og spíra fyrir lækna auk þess sem horft er til þess að skera niður framleiðslu á léttvíni í álfunni um tíu prósent fyrir árið 2011. - jab ESB grynnkar á víni Spænska þingið samþykkti á dögunum ný lög sem stefna að því að jafna hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja í landinu. Fjölmörg fyrirtæki á Spáni hafa brugðist ókvæða við lögunum en samkvæmt þeim eru þau skikkuð til að hafa konur í 40 prósentum stjórnarsæta. Þetta er stórt stökk frá því sem nú er en 3,8 prósent stjórn- armanna í almenningshluta- félögum á Spáni eru konur. Nái fyrirtæki ekki tilskyldum árangri eftir 8 ár eiga þau á hættu að missa samninga sína við spænska ríkið. Þingið samþykkti fyrir nokkru lög sem jafna eiga vinnufram- lag hjóna innan veggja heimil- isins og segir breska dagblaðið Guardian nýju lögin stuðla að því að útrýma hinni landlægu karlrembu á Spáni. - jab FRÁ SPÆNSKA ÞINGINU Jose Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, og Maria Teresa Fernandez de la Vega, aðstoðarforsætisráðherra, ræða málin á spænska þinginu. MYND/AFP Aðför að spænsku karlrembunni Breska flugfélagið Virgin Atlantic ætlar að greiða starfsfólki fyrir- tækisins bónus sem nemur hálf- um mánaðarlaunum þess. Tilefnið er tvöföldun á hagnaði fyrirtækis- ins á síðasta ári. Hagnaður flugfélagsins fyrir skatta nam 41,6 milljónum punda, jafnvirði rúmlega 5,7 milljarða íslenskra króna, en það er tvö- földun á milli ára. Þá nam velta félagsins á síðasta ári 1,9 millj- örðum punda eða rúmum 262 milljörðum íslenskra króna. Steve Ridgeway, fram- kvæmdastjóri Virgin Atlantic, er hæstánægður með árangurinn en breska dagblaðið Guardian hefur eftir honum að starfsfólk fyrir- tækisins hafi staðið sig vel þrátt fyrir hækkun á eldsneytisverði og harðnandi samkeppni. Virgin Atlantic, sem er dótt- urfélag bresku Virgin-samstæð- unnar, er sagt hafa kjaftað frá samráði breskra flugfélaga með þeim afleiðingum að bresk og bandarísk yfirvöld hófu að rann- saka nokkur flugfélög, meðal annars British Airways. Flugfélögin eru grunuð um að hafa sammælst um að láta farþega greiða aukagjald til að vega upp á móti hærri eldsneyt- iskostnaði en bresk samkeppn- islög kveða á um að félögum er óheimilt að láta samkeppnisaðila vita um fyrirhugaðar breytingar á gjaldskrá sinni. - jab RICHARD BRANSON Stofnandi Virgin- samstæðunnar með líkan af einni vél Virgin Atlantic. MYND/AFP Veglegur bónus hjá Virgin PÚTÍN RÚSSLANDSFORSETI Í HÖFUÐSTÖÐVUM ROSNEFT Rosneft varð til við kaup rússneska ríkisins á Yukos, fyrirtæki Michaels Kodorkovskí. Gagnrýnendur sögðu fyrirtækið hafa verið þjóðnýtt og kaupverðið aðeins til málamynda. ������� ��� ����������������� �������������� ��������������������������������������������������������������������������������� ����� ������������� ����������� ����� �������� ���� ������� ����� ������������� ������� SJÓÐUR 1 – ÖRUGG LANGTÍMAÁVÖXTUN Hentar þeim sem vilja spara í eitt ár eða lengur. Þú getur fjárfest í áskrift eða keypt fyrir staka upphæð. Farðu á www.glitnir.is og kláraðu málið. Sjóður 1 er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Glitnir Sjóðir hf. Útboðslýsingu og útdrátt úr útboðslýsingum má nálgast í útibúum Glitnis eða á www.glitnir.is/sjodir. *Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð. 9,3% Nafnávöxtun síðustu 3 ár, 9,3% á ári.* H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 20 8

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.