Fréttablaðið - 28.06.2006, Page 40
MARKAÐURINN 28. JÚNÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR10
Ú T T E K T
Í síðustu viku var greint frá því að fjar-
skiptafyrirtæki í eigu fjárfestingafélagsins
Novator hafi fengið tilraunaleyfi hjá Póst- og
fjarskiptastofnun (PFS) til að nýta UMTS-
tíðni til reksturs þriðju kynslóðar farsíma-
kerfis. Fyrirtækið hyggst hefja rekstur í
ágúst en leyfið er til níu til tólf mánaða.
Hinir risarnir á farsímamarkaðnum,
Síminn og Og Vodafone, hafa kannað markað-
inn og hafa sömuleiðis á takteinum að sækja
um tilraunaleyfi. Þótt fjarskiptafyrirtækin
hafi tilraunaleyfi upp á vasann er ekkert
fast í hendi. Kvaðir fyrir rekstri kerfisins
eru miklar og getur PFS ákveðið að úthluta
engu fjarskiptafyr-
irtækjanna tíðni á
UMTS-tíðni til rekst-
urs þriðju kynslóðar
farsímakerfis.
En hvað felst í bylt-
ingunni sem boðuð er
með tækninni?
HVAÐ FELST Í ÞRIÐJU
KYNSLÓÐINNI?
Tvö farsímakerfi eru
rekin hér á landi sem
veita talsímaþjónustu
og háhraðaþjónustu
að hluta. Kerfin eru
annars vegar hliðrænt
kerfi (NMT) og hins
vegar stafræn kerfi (GSM 900 og DCS 1800).
Hliðræna kerfið er skilgreint sem fyrsta kyn-
slóð en stafræna kerfið sem önnur kynslóð. Á
milli annarrar kynslóðar og þeirrar þriðju er
svokölluð 2,5 kynslóð en það eru háhhraðanet
á borð við EDGE-, CDMA- og GPRS-tækni.
Með tilkomu þriðju kynslóðar í farsíma-
tækni er um að ræða umtalsverða byltingu
í gagnaflutningi en slíkt opnar fyrir nýja
möguleika á samskiptum með háum bita-
hraða. Þessi þriðja kynslóð er ekki bund-
in ákveðinni tækni en Evrópusambandið og
aðildarríki þess hafa
ákveðið að nota
UMTS-farsímakerf-
ið (Universal Mobile
Telecommunications
System) fyrir þriðju
kynslóðina.
Fjarskiptafyrir-
tæki sem reka þjón-
ustu fyrir þriðju kyn-
slóð í farsímatækni
geta veitt marg-
víslega þjónustu á
UMTS-tíðnisviðinu.
Auk hefðbundinnar
grunnþjónustu á borð
við hágæðatalsam-
band, faxsendingar,
myndsíma og gagna-
flutning með mikl-
um hraða getur netið
ráðið við margmiðlun,
þjónustu í mismun-
andi umhverfi, veitt
virkan aðgang að int-
ernetinu, staðarnetum
og annarri IP-staðl-
aðri þjónustu.
Notendabúnaður
fyrir þriðju kynslóð í
farsímatækni er fullkomnari en núverandi
GSM-búnaður. Þar er lögð áhersla á stóran
skjá vegna aukins gagnaflutnings en símarn-
ir og búnaðurinn verður líkari litlum tölvum
en þeim farsímum sem eru í notkun í dag.
ÞRIÐJA KYNSLÓÐ Í FARSÍMATÆKNI
Þrjú fjarskiptafyrirtæki hér á landi skoða
nýjustu kynslóð í farsímatækni. Ísland er
á eftir nágrannaþjóðunum í innleiðingu
byltingarinnar sem felst í þriðju kynslóð í
farsímatækni.
M U N U R Á M I S M U N A N D I F A R S Í M A T Æ K N I
Kynslóðir bandbreidd Nýting umfram tal
1. 8,9 kb/s NMT-langdræga farsímanetið.
Gagnaflutningur. Hliðrænt.
2. 14,2 kb/s GSM og PDC. SMS, WAP og gagnaflutning-
ur. Stafrænt
2,5. 52 kb/s m.a. Gprs og EDGE. Myndsendingar, tölvu-
póstur og hægt ráp á netinu. stafrænt + IP.
2,5. 384 kb/s Streymi á myndum, hægvirk skrifstofuvinna
möguleg yfir símtengingu. Stafrænt + IP.
3. 64 Kb/s-2 Mb/s IMT-2000, UMTS. Talsamskipti með IP-tækni
og samræður í lifandi mynd. Stafrænt + IP.
4. Allt að 100 mb/s Möguleikar á sítengingu við skrifstofuna
óháð staðsetningu. IP-tenging.
Hlustað eftir nýrri farsímatækni
Sex ár eru síðan fyrst var farið að ræða um þriðju kynslóð farsíma hér á landi. Tæknin er sögð bylting enda mögu-
leikarnir margfaldir á við það sem áður hefur þekkst. Lítið bólaði hins vegar á þessari byltingu fyrr en í síðustu
viku. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson lagði við hlustir um möguleikana sem felast í þriðju kynslóð farsímatækni.
Með reynslu frá
öðrum löndum
Fjarskiptafyrirtæki í eigu
fjárfestingafélagsins Novator,
sem er í eigu Björgólfs Thors
Björgólfssonar, hefur í bígerð
að hefja alhliða fjarskipta-
þjónustu hér á landi í
samstarfi við Industria
og Orkuveitu Reykja-
víkur.
Novator hefur
byggt upp mikla
reynslu af uppsetn-
ingu og rekstri þriðju
kynslóðar farsímakerfa
í Tékklandi, Búlgaríu og
Póllandi.
Að sögn Tómasar Ottós
Hanssonar, framkvæmda-
stjóra hjá Novator, hefst
rekstur í ágúst. Í
tilraunaleyfinu
felst heimild
til allt að árs til að setja upp
búnað og prófa fjarskiptakerf-
ið. Fyrirtækinu er ekki heim-
ilt að selja þjónustuna fyrr en
endanlegt leyfi liggur
fyrir. Slíkt gæti ekki
orðið fyrr en eftir
mitt næsta ár.
BJÖRGÓLFUR THOR
Fjarskiptafyrirtæki í
eigu Björgólfs Thors
Björgólfssonar mun
hefja tilraunarekstur með
þriðju kynslóðar farsíma-
kerfi eftir tæpa tvo
mánuði.
MYND/VILHELM