Fréttablaðið - 28.06.2006, Page 41

Fréttablaðið - 28.06.2006, Page 41
H A U S MARKAÐURINN KYNSLÓÐASKIPTI Á ÍSLANDI Þessi bylting í farsímatækni var nokkuð ítar- lega rædd á Alþingi sem og víða um heim um síðustu aldamót. Fyrir utan þá miklu möguleika sem tæknin býður upp á var helsta ástæðan útlit fyrir skort á tíðnisviði fyrir farsímafyrirtækin. Í skýrslu framkvæmda- nefndar um einkavæðingu Landssíma Íslands árið 2001 kemur fram að tvær leiðir hafi verið notaðar við úthlutun tíðnisviða. Annars vegar var farin verðútboðsleið þar sem fyrirtæki buðu í leyfin en hins vegar var fariðsaman- burðarútboð og horft til gæða þjónustunnar sem fjarskiptafyrirtækin voru tilbúin til að bjóða. Í síðasttöldu leiðinni var ekki horft á það verð sem fyrirtækin buðu. Bretar, Hollendingar, Þjóðverjar, Svisslendingar, P o r t ú g a l a r, D a n i r, Austurríkismenn og Belgar fóru verðútboðsleiðina en Finnar, Spánverjar, Norðmenn, Svíar, Írar, Frakkar og fjarskiptafyr- irtæki í Lúxemborg fóru í sam- anburðarútboð. Beinar tekjur hins opinbera hafa verið miklar í þeim löndum þar sem verðútboð var haldið og greitt fyrir rekstr- arleyfi. Í þeim löndum þar sem var samanburðarútboð miðuðust tekjur af kostnaði við umsýslu og þjónustu sem innt er af hendi af hálfu ríkisins. Ekki var ákveðið á þessum árum hvaða leið yrði farin hér á landi en ljóst var að greiðsla fyrir tíðniúthlutun og uppbygg- ing kerfisins gat orðið ærið kostnaðar- samt skref fyrir fjarskiptafyrirtækin. Þegar netbólan sprakk skömmu eftir aldamótin lentu mörg erlend fjarskipta- fyrirtæki í vandræðum og féll umræðan niður að mestu hér á landi. Uppbygging þriðju kynslóðar farsímanets hélt hins vegar áfram í löndum utan landsteinanna þrátt fyrir erfiðleikana. ÚTHLUTUN TIL 15 ÁRA FYRIR 190 MILLJ- ÓNIR Sturla Böðvarsson samgönguráðherra skipaði stýrihóp í byrjun árs 2004 sem vann að gerð fjarskiptaáætlunar fyrir árin 2005 til 2010. Þar kemur fram að farsímatæknin hafi verið innleidd í nokkrum löndum, meðal annars í Japan þremur árum fyrr. Sturla lagði svo fram frumvarp til laga um þriðju kynslóð í farsímatækni í október sama ár og varð það að lögum í febrúar næsta ár. Í lögunum er kveðið á um að PFS skuli úthluta tíðnum á UMTS- sviði sem bjóði upp á breiðbands- og margmiðlunarþjónustu að undangengnu útboði og gildi úthlutunin í 15 ár. Lágmarkskröfur hvers fjarskiptafyr- irtækis (rétthafa) er að þjónustan nái til 60 prósenta íbúa í öllum landshlutum. Þetta er ströng kvöð og eru forsvars- menn símafyrirtækjanna sammála um að hún sé strangari en úthlutun fyrir hefðbundna gsm-tíðni hér á landi. Þetta gerir fyrirtækjunum erfiðara um vik að standast skilyrðin. EKKI UNDIR 40 MILLJÓNUM Ekki liggur ljóst fyrir hversu hátt gjald fjar- skiptafyrirtækin þurfa að greiða fyrir úthlut- un UMTS-tíðnisviðsins. Í lögum um þriðju kynslóð í farsímatækni segir að fyrir hverja tíðniúthlutun skuli greiða 190 milljónir króna. Þar af skuli greiða 5 milljónir þegar tíðni hafi verið úthlutað en eftirstöðvar greiðist með fjórum jöfnum greiðslum. Þessu til viðbótar mun hver rétthafi greiða 4 milljónir króna. Það er fjarri að þetta sé endanlegt gjald því heimild er fyrir því að veita 10 millj- ón króna afslátt fyrir hvern hundraðshluta íbúa umfram 60 prósent útbreiðslu utan höf- uðborgarsvæðisins. Gjaldið skuli þó aldrei verða lægra en 40 milljónir króna, líkt og segir í lögunum. Þá segir ennfremur að PFS geti úthlutað allt að fjórum bjóðendum UMTS-tíðnina. Í útboðslýsingu laganna segir að hvert fjarskiptafyrirtæki megi aðeins leggja fram eitt boð í UMTS-tíðnisviðið en PFS geti hafn- að tilboði ef það er ekki í samræmi við útboðslýsingu eða ef bjóðandi leggur ekki fram upplýsingar eða gögn sem Póst- og fjarskiptastofnun telur nauðsynleg til þess að leggja mat á tilboðið. Þá getur PFS sömuleið- is hafnað tilboði frá fyrirtækjum sem eiga ráðandi hlut í öðrum fyrirtækjum sem leggja fram tilboð í rekstur sviðsins. Í tilboðum fyrirtækjanna þarf að leggja fram viðskiptaáætlun sem miðast við að bjóð- andi byggi upp net sitt sjálfur, áætlun um útbreiðslu netsins og þjónustu bæði eftir mannfjölda og svæðum, áætlun um hraða við uppbyggingu nets og áætlun um frágang mannvirkja. Komi engin tilboð í tíðniúthlutunin þá kveða lögin á um að þremur fyrirtækjum hið mesta verði úthlutað tíðnum fyrir þriðju kynslóð farsíma hér á landi. TÆKNIBYLTING Í ÖÐRUM LÖNDUM Allt frá því umræða um þriðju kynslóð í farsímatækni hófst í kringum síðustu alda- mót hefur fjöldi landa tekið hana upp á sína arma. Japanska fjarskiptafyrirtækið DoCoMo ruddi brautina með rekstri farsímanetsins í Japan árið 2001 og Og Vodafone þar í landi fylgdi á eftir næsta ár. Sprenging varð í rekstri þriðju kynslóðar í farsímatækni eftir þetta en við lok árs 2004 buðu 70 fjarskiptafyr- irtæki viðskiptavinum sínum upp á tæknina um allan heim. Japanska fyrirtækið DoCoMo hefur í raun markað brautina fyrir önnur farsímafyrirtæki en það hóf tilraunarekstur á fjórðu kynslóð farsímanets og hyggst taka kerfið í notkun árið 2010. Í sömu sporum eru Kínverjar og Indverjar, sem sleppa innleiðingu þriðju kyn- slóðar og fara beint úr stafræna kerfinu yfir í rekstur fjórðu kynslóðar farsímanets. ER MARKAÐUR FYRIR TÆKNINA? Þótt tækninni hafi fleytt fram undanfarin ár þá er ekki með fullu vitað hver komi til með að nýta sér kynslóðaskipti í farsímatækni. Í lok maímánaðar voru farsímanotendur 2,4 milljarðar talsins um allan heim, samkvæmt upplýsingum markaðsrannsóknafyrirtækis- ins Informa Telecoms & Media. Af þeim eru notendur stafræna kerfisins (2. kynslóðar í farsímatækni) sem nota hefðbundna farsíma- þjónustu langflestir, eða 1,89 milljarðar talsins og tæplega 79 prósent allra farsímanotenda. Þeir sem nýta sér háhraðanet, svokallaða 2,5 kynslóð í farsímatækni, eru mun færri eða 18,3 prósent farsímanotenda. Þá nýta 64,8 milljónir farsímanotenda sér þriðju kynslóð í farsímatækni á UMTS-tíðni eða einungis rúm 2,7 prósent farsímanotenda á heimsvísu. Þessu til samanburðar má nefna að tæplega 300.000 farsímar voru í notkun hér á landi við lok síðasta árs. Séu erlendu tölurnar um notkun farsíma sem styðja við þriðju kynslóð í farsímatækni yfirfærðar á Ísland má segja að 8.100 farsíma- eigendur muni nota hana hér. Tölunum ber hins vegar að taka með þeim fyrirvara því um talsverða kynslóðaskipti í gagnaflutningum er að ræða auk þess sem landsmenn hafa löngum verið þekktir fyrir að flykkjast að öllu tækni- legu nýjabrumi. Notendur þriðju kynslóðar í farsímatækni gætu því hæglega orðið hlut- fallslega mun fleiri en gerist í öðrum löndum. 11MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 2006 Ú T T E K T Brynjólfur Bjarnason segir margs konar tækni hafa þróast eftir að fyrst var rætt um þriðju kynslóð í farsímatækni. „Við höfum fikrað okkur að þriðju kynslóð- inni,“ segir Brynjólfur og bendir á að menn hafi skoðað tækni á borð við CDMA- og WiMax háhraðatengingar. „Við gerðum forkönnun á verði tækja- búnaðar hjá þremur birgjum í fyrra og höfum ákveðna fjárfestingarhugmynd,“ segir hann. Kostnaður við uppbyggingu kerfisins hljóp á árum áður á milljörð- um króna en hefur lækkað mikið þótt það sé enn hátt að hans sögn. Aðspurður hvort Síminn ætli að sækja um tilraunaleyfi fyrir rekstur þriðju kynslóðar farsímakerfis segir Brynjólfur að fyrirtækið sé vel undir- búið. „Þetta er mál sem tekur sinn tíma. Við vitum hvað þarf til rekstursins og höfum leitað tilboða,“ segir forstjóri Símans. BRYNJÓLFUR BJARNASON Forstjóri Símans segir fyrirtækið hafa kannað búnað fyrir þriðju kynslóð farsímakerfis í fyrra. MYND/RÓBERT Síminn hefur skoðað kynslóðaskiptin Hlustað eftir nýrri farsímatækni Sex ár eru síðan fyrst var farið að ræða um þriðju kynslóð farsíma hér á landi. Tæknin er sögð bylting enda mögu- leikarnir margfaldir á við það sem áður hefur þekkst. Lítið bólaði hins vegar á þessari byltingu fyrr en í síðustu viku. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson lagði við hlustir um möguleikana sem felast í þriðju kynslóð farsímatækni. Árni Pétur Jónsson, forstjóri Og Vodafone, segir fyrirtækið hafa átt í viðræðum við Póst- og fjar- skiptastofnun um tilraunaleyfi fyrir prófanir með kerfi fyrir þriðju kynslóð í farsímatækni, leitað til erlendra aðila um kaup á tækjabúnaði og kynnt sér þá reynslu sem Og Vodafone hefur af tækninni erlendis. „Við erum alveg sannfærð um að þjónustan muni á einhverjum tíma verða innleidd hér á landi,“ segir Árni og bætir við að nokkuð sé í að UMTS-tíðni í viðskiptaleg- um tilgangi verði úthlutað hér. „Við erum tilbúin fyrir tækn- ina og líklegt að við sækjum um tilraunaleyfi fljótlega,“ segir for- stjóri Og Vodafone. ÁRNI PÉTUR JÓNSSON Forstjóri Og Vodafone segir líklegt að fyrirtækið sæki um tilraunaleyfi fljótlega. MYND/GVA Og Vodafone sækir um tilraunaleyfi Með tilkomu þriðju kynslóðar í farsíma- tækni er um að ræða umtalsverða byltingu í gagnaflutningi en slíkt opnar fyrir nýja möguleika fyrir sam- skiptum með háum bitahraða.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.