Fréttablaðið - 28.06.2006, Qupperneq 59

Fréttablaðið - 28.06.2006, Qupperneq 59
MIÐVIKUDAGUR 28. júní 2006 23 KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.482 -1,52% Fjöldi viðskipta: 231 Velta: 1.535 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Hlutabréf í úrvalsvísitölu: Actavis 62,70 -0,79% ... Alfesca 3,86 -1,28%... Atorka 6,12 -1,29% ... Bakkavör 44,30 -0,45% ... Dagsbrún 5,70 -1,38% ... FL Group 17,50 -0,57% ... Flaga 3,83 +0,79% ... Glitnir 17,70 +0,00% ... Kaupþing banki 734,00 -1,61% ... Landsbankinn 20,40 -3,77% ... Marel 70,90 +0,28% ... Mosaic Fashions 15,80 -2,47% ... Straumur-Burðarás 18,30 -2,14% ... Össur 106,50 -1,39% MESTA HÆKKUN Flaga +0,79% Marel +0,28% MESTA LÆKKUN Landsbankinn -3,77% Avion -3,21% Mosaic Fashions -2,47% Umsjón: nánar á visir.is Útflutningshandbókin Iceland Export Directory verður eftirleiðis gefin út af Útgáfufélaginu Heimi sem meðal annars gefur út tíma- ritið Frjálsa verslun. Handbókin hefur verið gefin út frá árinu 1992 í samvinnu Útflutningsráðs og íslenskra fyrirtækja. Í bókinni er að finna ítarlegar upplýsingar um helstu útflutnings- fyrirtæki landsins, bæði á vöru og þjón- ustu, en upplýsingar er jafnframt að finna á vefnum icelandexport. com. Vefurinn er helsta upplýsingaveita fyrir útlendinga sem vilja komast í samband við íslensk fyrirtæki en bókin er einnig sögð gegna mikilvægu hlutverki, enda send á mörg þúsund aðila erlendis, auk þess að vera dreift á vörusýningum. Fram til þessa hefur Ec Web ehf. sem gefur út handbókina Íslensk fyrirtæki séð um útgáfu útflutningshandbókarinnar. Benedikt Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Heims, segir nýja verkefnið styrkja fyrirtækið, en Heimur hefur einbeitt sér að útgáfu rita um viðskipti eins og Frjálri verslun og Vísbendingu, auk rita fyrir ferðamenn, bæði tímaritum og árbókum. Iceland Export Dir- ectory er sögð mikil- væg viðbót við upplýs- ingar sem fram koma á vefnum www.iceland- review.com, en þar eru bæði fréttir og upplýs- ingar um land og þjóð. Fram að þessu hafa upplýsingarnar einkum snúið að ferðamönnum, en nú bætist við upplýsingaveita um fyrirtækin, því vefirnir verða sameinaðir. „Við höfum líka góða reynslu af samvinnu við Útflutningsráð, en við sjáum um útgáfu blaðsins Issues and Images fyrir ráðið. Þannig að þetta er á allan hátt eins og best verður á kosið,“ segir Benedikt. - óká Útflutningshandbók- in fer yfir til Heims SAMKOMULAGIÐ STAÐFEST Magnús E. Kristjánsson hjá Ec Web og Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Heims, staðfesta samkomulag um Útflutningshandbókina. Jón Ásbergs- son framkvæmdastjóri Útflutningsráðs fylgist með. Suður-kóreska hátæknifyrirtækið Samsung Electronics, sem er þriðji stærsti farsímaframleið- andi heims, ætlar að einbeita sér að framleiðslu ódýrra farsíma sem styðja þriðju kynslóð í farsímatækni. Símarnir munu kosta um fimmtíu til sextíu bandaríkjadali, eða allt að 4.400 íslenskar krónur. Samdráttar hefur gætt í sölu á farsímum hjá Samsung síðustu misserin. Sérfræðingar segja að ástæðan fyrir því sé að fyrirtækið hafi ekki sett á markað ódýra farsíma þrátt fyrir mikla eftir- spurn eftir þeim á nýmörkuðum á borð við Indland og Kína. - jab MEÐ FARSÍMA FRÁ SAMSUNG Samsung ætlar að framleiða ódýra farsíma sem styðja þriðju kynslóð í farsímatækni. Með ódýra 3G-síma Innlendir aðilar seldu erlend verð- bréf fyrir einn milljarð króna í maí síðastliðnum samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands. Nokkuð jafnt var keypt af hluta- og skuldabréf- um. Fram kemur á vef greiningar- deildar Glitnis að eftir mikinn straum fjármagns í kaup á erlendum verðbréfum virðist breyting hafa orðið á. Síðustu þrjá mánuði hafi verið seld verðbréf fyrir 3,1 millj- arð króna samanborið við 81,1 milljarðs kaup þrjá mánuðina þar á undan. Telur greiningardeildin að þessi viðsnúningur sé til þess fallinn að draga úr gengislækkun krónunnar. -jsk Seldu fyrir milljarð Breska prentsmiðjan Wyndeham Press Group, sem er í eigu Dags- brúnar, hefur gengið frá samningum um prentun á tímaritunum Time og Newsweek fyrir Bretlands- markað næstu þrjú árin. Wynde- ham mun vikulega prenta 195.000 eintök af blöðunum, 142.000 eintök af Time og 53.000 eintök af Newsweek. Í tilkynningu frá Dagsbrún segir að prentunin muni fara fram í Heron prentsmiðju Wyndeham í Maldon í Essex. Tímaritin eru send frá prentsmiðjunni klukkan ellefu á sunnudagskvöldi í viku hverri og verða í hillum verslana víðs vegar um Bretland á mánu- dagsmorgni. Dagsbrún keypti Wyndeham Press Group, sem er þriðja stærsta prentfyrirtæki Bretlands, í mars síðastliðnum og hafa bresk sam- keppnisyfirvöld samþykkt yfir- tökuna. - jab Prenta bæði Newsweek og Time EINN AF BÍLUM PRENTSMIÐJUNNAR Vikuritin Time og Newsweek eru prentuð í prentsmiðju Wyndeham Press Group, sem er í eigu Dagsbrúnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.