Fréttablaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 60
28. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR24
MERKISATBURÐIR
1541 Siðaskiptin hefjast formlega
hérlendis þegar klerkar
Skálholtsbiskupsdæmis
samþykkja nýja kirkjuskip-
an.
1940 Bretar viðurkenna Charles
de Gaulle hershöfðingja
sem leiðtoga frjáls Frakk-
lands.
1947 Landbúnaðarsýning er
opnuð í Reykjavík. Hún
stendur í tvær vikur og tæp-
lega helmingur þjóðarinnar
kemur að sjá hana.
1948 Sovétríkin reka Júgóslavíu úr
COMINFORM sem stofnuð
var árið áður til að sam-
ræma kommúnistahreyf-
ingar í ýmsum löndum.
2001 Þjóðgarðurinn Snæfells-
jökull er formlega opnaður.
FRANZ FERDINAND (1863-1914)
„Hvers virði er ræða þín?
Ég heimsæki Sarajevó og fæ
yfir mig sprengjur. Þetta er
svívirðilegt.“
Ríkisarfi Austurríkis-Ungverjalands lét
þessi orð falla í miðri ræðu
borgarstjóra Sarajevó-borgar nokkrum
klukkustundum áður en hann var
drepinn.
Á þessum degi árið 1674 innlimuðu Frakkar eyja-
klasann Guadeloupe inn í heimsveldi sitt. Eyjan er
austur í Karíbahafi og er enn hluti Frakklands þótt
nokkur styr hafi staðið um hana í gegnum söguna.
Frá árinu þrjú hundruð fyrir Krist hafa menn
búið á Guadeloupe. Á áttundu öld bjó indíána-
þjóðflokkurinn Karíbar á eyjunum, sem þeir kölluðu
Karukera eða eyju fallegu vatnanna.
Þegar Kristófer Kólumbus kom í annað sinn til
Ameríku lenti hann á Guadeloupe og var þar með
fyrsti Evrópubúinn til að stíga fæti sínum á eyjarnar.
Frakkar komu svo þangað árið 1635, drápu eins
marga Karíba og þeir gátu og innlimuðu eyjarnar
í veldi sitt á þessum degi árið 1674. Bretar höfðu
þó lengi augastað á Guadeloupe og náðu henni af
Frökkum í nokkra daga árið 1794. Þeir náðu henni
svo aftur árið 1810 og réðu Bretar eyjunum fram til
ársins 1813 þegar Svíar fengu yfirráð yfir henni eftir
Napóleónstríðin. Með Vínarsamningnum árið 1815
fengu Frakkar hana aftur til yfirráða sem þeir hafa
haldið til dagsins í dag.
ÞETTA GERÐIST: 28. JÚNÍ 1674
Frakkar innlima Guadeloupe í ríki sitt
FRÁ GUADELOUPE
KVENNALANDSLIÐIÐ FRÁ 1956 Þær hittust fyrst á fimm ára fresti en síðar meir árlega til að halda upp á fyrsta íslenska kvennalandsleikinn í handbolta.
Myndin var tekin þegar þær hittust í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL
Fyrsti kvennalandsleikur
Íslands í handbolta fór fram
í Noregi þann 19. júní 1956,
fyrir fimmtíu árum síðan.
Landsliðið, sem skipað var
stúlkum úr sex félagsliðum,
er mjög samheldið enn þann
dag í dag og þær hittast
árlega og halda upp á daginn
sem þær sköpuðu kvenþjóð-
inni nýjan grundvöll til
afreka.
Guðlaug Elísa Kristins-
dóttir var aðeins fjórtán ára
gömul þegar hún keppti í
fyrsta landsleiknum, en hún
lék þá með meistaraflokki
FH. „Við kepptum allar með
hinum og þessum félögum,
en það var ekkert hand-
knattleikssamband á þessum
tíma, svo þetta lið var valið
á vegum Handknattleiks-
ráðs Reykjavíkur,“ segir
Guðlaug.
Fyrsti leikurinn sem þær
kepptu var gegn Noregi
kvöldið 19. júní 1956 á Bistel
leikvanginum í Osló. Mikið
hafði rignt fyrir leikinn, en
hann var spilaður á gras-
velli utandyra. Íslensku
stelpurnar, sem voru bara í
strigaskóm, en ekki takka-
skóm eins og mótherjarnir,
náðu 3-1 forystu, en töpuðu
loks leiknum 10-7. Dagblöðin
lofuðu þó engu að síður
íslenska liðið fyrir barátt-
una og mál manna var að
FYRSTA KVENNALANDSLIÐ Í HANDBOLTA: SEX STELPUR SKIPAÐAR ÚR SEX FÉLAGSLIÐUM
Stelpurnar okkar í handboltanum
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Anna Þórarinsdóttir
sjúkraþjálfari, Hraunvangi 1, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum þann 24. júní sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þórarinn Stefánsson Ragnheiður Karlsdóttir
Guðni Stefánsson Ewa Sunneborn
Tryggvi Stefánsson Unnur Sigursteinsdóttir
Valgerður Stefánsdóttir Sigurður G. Valgeirsson
Ástríður Stefánsdóttir Jón Á. Kalmansson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og
stjúpmóðir,
Guðríður Eiríksdóttir
Eikarlundi 26, Akureyri,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að kvöldi
mánudagsins 19. júní sl. verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 30. júní nk. kl. 13.30.
Gunnar Ragnars
Ragnar Friðrik Ragnars
Eiríkur Geir Ragnars
Gunnar Sverrir Ragnars
Ágústa Ragnars
Ólafur Friðrik Gunnarsson.
Kona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
Hallgerður Sjöfn Helgadóttir
Dynskógum 1, Egilsstöðum,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans mánudaginn
26. júní. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristinn Árnason
Árni Kristinsson
Helgi Kristinsson Svava Þórey Einarsdóttir
Aðalheiður Sjöfn og Kristinn Viktor.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Laufey Guðlaugsdóttir
Mýrargötu 18, Neskaupstað,
lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn
21. júní. Útför hennar fer fram frá Norðfjarðarkirkju
föstudaginn 30. júní kl. 14.
Hulda Sveinbjörnsdóttir
Sveinn Sveinbjörnsson Margrét Samúelsdóttir
Matthea G Ólafsdóttir
Sigurður Sveinbjörnsson Guðbjörg Friðjónsdóttir
Anna Maren Sveinbjörnsdóttir Jónas Jónson
Gunnar Sveinbjörnsson Elísabet Grettisdóttir
Ólafur Sveinbjörnsson Ingibjörg Stefánsdóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Óli Haukur Sveinsson
vélstjóri, Háengi 19, Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands laugardaginn
24. júní sl.
F.h. aðstandenda,
Lilja Friðbertsdóttir.
Ástkær faðir okkar og afi,
Sigmar Jóhannesson
til heimilis að Egilsbraut 2, Þorlákshöfn,
varð bráðkvaddur mánudaginn 26. júní.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Helena Rós Sigmarsdóttir
Ægir Snær Sigmarsson
Hrannar Már Sigmarsson
Ástríður Rán, Askur Máni og Breki Blær.
60 ára afmæli
Á MORGUN, FIMMTUDAGINN
29. JÚNÍ VERÐUR sextugur
Sigurgeir Þór Sigurðsson
Af því tilefni bjóða hann og eiginkona hans,
Sigríður Guðlaugsdóttir, ættingjum og vinum
til samgleði í Danshöllinni, Drafnarfelli 2,
Reykjavík e. kl. 18 á afmælisdaginn.
timamot@frettabladid.is