Fréttablaðið - 28.06.2006, Page 61
ÚTFARIR
13.00 Magdalena Eiríksdóttir (Balla),
Dvergabakka 28, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík.
13.00 Sigríður Sigbjörnsdóttir verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju.
14.00 Sigurbjörg Jónína Jónsdóttir verður
jarðsungin frá Hólmavíkurkirkju.
15.00 Guðrún Gísladóttir, Arnarhrauni 11,
Hafnarfirði, verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
Við hlaupum Blátt áfram...
... alla leið frá Hellu til Reykjavíkur
Hvað getur þú gert til að styrkja Blátt áfram?
Lítið skref fyrir þig, stórt skref fyrir börnin
Arnaldur Birgir Konráðsson
Þjálfari Boot Camp
Evert Víglundsson
Þjálfari Boot CampRóbert Traustason
Þjálfari Boot Camp
Boot Camp þjálfararnir Arnaldur Birgir Konráðsson, Evert Víglundsson
og Róbert Traustason ætla að leggja af stað frá Hellu á miðnætti
aðfaranótt laugardagsins 8. júlí og hlaupa til Reykjavíkur.
Hver og einn þeirra mun hlaupa tvö og hálft maraþon!
Vertu með!
Hlaupastöð 1
10.00 Litla Kaffistofan – Hafnarbakkinn = 26,3km
Hlaupastöð 2
12.00 Húsgagnahöllin – Hafnarbakkinn = 7,6km
Leiðin sem farin verður: Ártúnsbrekka, Grensás-
vegur, Suðurlandsbraut, Laugavegur niður að höfn.
Frjálst er að koma inn í hlaupaleiðina á hvaða stað sem er.
14.00 Reykjarvíkurhöfn – Skemmtun
*Þú getur keypt Blátt áfram bolina á næstu Esso stöð,
á www.blattafram.is eða við hlaupastöðvarnar þann 8. júlí.
• Þú getur hringt í 907 2000
þá dragast 1.000 kr. af símreikningnum þínum
• Þú getur keypt bol*
og fylgt Boot Camp þjálfurunum síðasta spölinn
- frá hlaupastöð 1 eða 2
• Þitt fyrirtæki getur heitið
á Boot Camp þjálfarana
Hringdu í 533 2929 og styrktu Blátt áfram
Laugardagurinn 8. júlí
Reykajvík
Hella
Selfoss
Hlaupastöð Boot Camp þjálfarana – kl. 00.00 – 100 km
Hlaupastöð 2 – kl. 12.00
Húsgagnahöllin – 7,6 km
Hlaupastöð 1 – kl. 10.00
Litla Kaffistofan – 26,3 km
Hveragerði
MIÐVIKUDAGUR 28. júní 2006 25
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull var
stofnaður 28. júní árið 2001.
Heillandi náttúra og sögulegar
minjar voru ástæðan fyrir
stofnuninni og vonast var til þess
að fólk ætti auðveldara með að
ferðast um svæðið og kynnast því.
Sérstaða þjóðgarðsins er meðal
annars sú að hann nær fram að sjó.
Þjóðgarðsvörður sér um daglegan
rekstur þjóðgarðsins, en öllum er
frjálst að ferðast um hann, hlýti
þeir reglum sem um hann gilda.
Nokkrum sinnum í viku eru farnar
skipulagðar gönguferðir og yfir
sumarmánuðina starfa þar land-
verðir við fræðslu, eftirlit og
umhirðu. Í þjóðgarðinum er bannað
að hrófla við menningarminjum og
óheimilt að fara um á hestum nema
á sérmerktum reiðstígum.
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull fimm ára
ÁHANGENDUR ARGENTÍNU Þeir eru margir litríkir, fótboltaaðdáendurnir. Hér eru tveir
stuðningsmenn Argentínu, annar málaður í framan, en hinn með grímu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
stelpurnar hefðu öðlast nauðsyn-
lega reynslu fyrir næstu leiki.
Eftir nokkra leiki í Noregi
kepptu þær svo á Norðurlanda-
mótinu í Finnlandi og svo aftur á
Norðurlandamótinu 1959 í Þránd-
heimi og stóðu sig mjög vel.
Guðlaug spilaði sem skytta, en
neyddist til að ljúka handboltaferl-
inum vegna læknisráðs eftir þá
keppni, en fór að keppa í frjálsum
íþróttum og vann þar fjölda verð-
launa. Hún segist þó enn fylgjast
með handknattleik eins og þær
flestar.
Stelpurnar hittust 28. maí
síðastliðinn til að fara á kvenna-
landsleikinn í handbolta milli
Íslands og Makedóníu. „Við höldum
líka alltaf upp á 19. júní, út af
landsleiknum,“ segir Guðlaug.
„Svo var bara tilviljun að þetta var
kvenréttindadagurinn!“
Síðastliðinn kvenréttindadag
héldu þær svo eins og vanalega
upp á daginn og skoðuðu Land-
námsskálann og borðuðu hátíðar-
mat á Fjalakettinum í kjölfarið.
Árið 1991 hins vegar fóru þær í
„pílagrímsferð“ til Osló: „Við
vorum búnar að hafa samband við
aðila úti. Það var tekið afar vel á
móti okkur, okkur var boðið heim
til þeirrar einu sem er á lífi af
þeim norsku, sem spiluðu á móti
okkur. Við höldum enn sambandi.“
Guðlaug segir að stelpurnar í
liðinu hafi verið mjög reglusamar
og miklir íþróttamenn. „Við
drukkum ekki einu sinni kaffi,
bara mjólk og engin okkar reykti.
Stelpurnar í hinum Norðurlanda-
liðunum keðjureyktu flestar og
voru jafnvel með sígarettupakk-
ana í íþróttafötunum sínum,“
segir Guðlaug og hlær.
„Við vorum fyrirmyndar-
stelpur með geysilegan áhuga á
boltanum, sem var allt annar þá,
en í dag.
Stúlkurnar í dag eru í mjög
strangri þjálfun og sumar hverjar
í atvinnumennskunnni.“
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í
smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.
is eða hringja í síma
550 5000.