Fréttablaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 66
28. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR30
29. júní Frumsýning – Uppselt
30. júní – Örfá sæti laus
1. júlí – Uppselt
6. júlí – laus sæti
7. júlí – laus sæti
8. júlí – laus sæti
Miðasalan er í síma 568 8000
www.borgarleikhus.is
www.minnsirkus.is/footloose
Á ÞAKINU
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JÚNÍ
25 26 27 28 29 30 1
Miðvikudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
12.15 Kvintettinn Atlas leikur í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í
Laugarnesi. Hópurinn er Skapandi
sumarhópur á vegum Hins hússins
og Reykjavíkurborgar og skipaður
ungu tónlistarfólki úr Listaháskóla
Íslands.
20.00 Hljómsveitin Narodna
Musika leikur á Café Cultura í
Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu.
Tyrknesk, búlgörsk og grísk tónlist
sem fær alla á fætur.
■ ■ SKEMMTANIR
Dúettinn MoR, Margrét Eir og
Róbert, leika á skemmtistaðnum
Yello í Reykjanesbæ.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.00 Sumarliði R. Ísleifsson
sagnfræðingur heldur erindi í bóka-
sal Þjóðmenningarhússins í tilefni
af opnun sýningar um skrif erlendra
manna um Ísland. Fyrirlesturinn
nefnist Carta Marina og ímyndir
Íslands.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
[BÆKUR]
UMFJÖLLUN
Leyndardómur býflugnanna er
ein af þessum bókum sem fara
sigurför um alþjóðlega bóka-
markaðinn, bandarísk skáldsaga
sem kom fyrst út árið 2002 og
hefur síðan verið þýdd á meira
en tuttugu tungumál, íslenska
útgáfan kom út hjá Bjarti núna í
byrjun sumars í neon-ritröðinni.
Sue Monk Kidd er frá Suðurríkj-
unum, upphaflega menntuð í
hjúkrun en aflaði sér ritreynslu
og nokkurrar frægðar með blaða-
mennsku og sjálfsævisögulegum
bókum. Leyndardómur býflugn-
anna er fyrsta skáldsaga hennar
en ber þess vitni að hér skrifar
vanur höfundur.
Logi ástarinnar
Bókin ber líka vitni um áhuga-
mál höfundar síns: Hún hefur
pælt í kvennaguðfræði, goðsögn-
um og kenningum sálgreinand-
ans C.G. Jung og hún er óhrædd
við tákn og tilvísanir í þeim anda.
Aðalpersónan er fjórtán ára
stúlka, Lily Owens, sem hefur
misst móður sína fyrir tíu árum,
og býr hjá föður sínum sem rekur
ferskjubú í Suður-Karólínu.
Hann beitir dóttur sína miklu
harðræði og svo fer að hún stingur
af að heiman ásamt fóstru sinni,
blökkukonunni Rosaleen. Þetta
er árið 1964, Johnson forseti er
nýbúinn að skrifa undir mann-
réttindalögin sem skyldu tryggja
jafnrétti kynþátta til kosninga og
menntunar, og þessi bakgrunnur
kemur mjög við sögu, því Lily
verður að frelsa Rosaleen úr
fangelsi sem henni var varpað í
eftir að hafa lent í árekstri við
kynþáttahatara, þegar hún
hugðist skrá sig sem kjósanda.
Þær fá skjól hjá þremur systrum,
blökkukonum sem leggja stund á
býflugnabúskap og tilbiðja auk
þess styttu af hinni svörtu guðs-
móður.
Meira er ekki rétt að upplýsa
um söguþráðinn en bókin fjallar
líka um sígild viðfangsefni,
tilvistarvanda unglingsins, sam-
band við föður og móður, æsku-
ástir og baráttuna við að finna
sjálfan sig. Sterkar kvenpersón-
ur, litríkur bakgrunnur og goð-
sagnakennt ívafið geta minnt á
sagnagerð Isabel Allende: þetta
eru innlifunarbókmenntir, les-
andinn verður að ganga sögu-
manninum á hönd, annars er
hætt við að hann hristi hausinn
yfir ýmsu sem frá er sagt. Gangi
lesandinn inn í verkið er margt
vel gert, ekki síst í lýsingu á
kenndum Lily, sem líður lengi
vel ekki einsog stelpu, „heldur
eins og ég væri með stelpu í gísl-
ingu“ (13). Einnig er sterk
lýsingin á systurinni May, sem
þjáist af of mikilli „samlíðun með
Ástu Sóllilju á jörðinni“, svo vitn-
að sé til Sjálfstæðs fólks; kær-
leikurinn og angistin ber hana
ofurliði. Og höfundurinn leyfir
sér líka að vera skáldleg og
kemst oft vel að orði: „Heimur-
inn er ekkert annað en risastór
eldiviðarkubbur sem fleygt
hefur verið á gráðuga loga ástar-
innar“ (121).
Vandi verksins
Vandi verksins sem skáldsögu er
að hún efnir ekki alveg sín eigin
loforð. Hún er sterk og grípandi
framan af, dregur upp sérstætt
sögusvið, og leggur upp með
alvöru sögu. En í seinni hlutanum
er eins og höfundur geti ekki
alveg staðið við fyrirætlun sína,
sé of annt um að koma sinni sýn
og skoðunum að, og framvindan
verður fyrirsjáanleg, enda eru
jákvæðu persónurnar, sem eru í
miklum meirihluta, alveg
einstaklega göfugar. Það er mikið
um tilfinningalýsingar og mikið
grátið en minna um alvöru þján-
ingu. Og samtenging býflugnanna,
dýrkunar hinnar heilögu guðs-
móður og þess að finna móðurina
í sjálfri sér er full mikil móður-
mystík fyrir þennan lesanda.
Eftir situr sú tilfinning að þótt
þetta sé vissulega læsileg saga,
er hún ein af þeim sem hefði
getað orðið betri, hér var allt til
reiðu fyrir mikinn söngleik.
Án þess að hafa gert á því
neinn samanburð virðist mér að
þýðing Guðrúnar Evu sé vel af
hendi leyst, þetta er blæbrigða-
ríkur texti með góðum orðaforða.
En það má stundum gæta sín á
amerískunni: Martin Luther
King var prestur, ekki ráðherra
(eins og hann er kallaður á bls.
23). Hér er það breska merking
orðsins „minister“ sem þvælist
fyrir.
Að lokum er rétt að þakka
bókaforlaginu Bjarti fyrir að
sinna þýddum bókmenntum vel í
neon-ritröðinni.
Býflugur og helgimyndir
Ferðaleikhúsið frumsýnir The
Best of Light Nights í Iðnó í
kvöld, en að vanda byggir
sýningin á íslensku efni að mestu
og er flutt á ensku. Ferðaleikhúsið
er atvinnuleikhús, stofnað í
árslok árið 1965 en frá árinu 1970
hefur markhópur þeirra aðallega
verið erlendir sumargestir í
Reykjavík. Sýningar Ferðaleik-
hússins eru fyrir löngu orðnar
fastur liður í menningarlífi
borgarinnar. Þær bera jafnan
heitið Light Nights - Bjartar
nætur, en efnisskráin er breyti-
leg milli ára.
Fjölmargir sviðslistamenn,
tónskáld, ljósmyndarar og fræði-
menn hafa komið að sýningunum
í gegnum árin - og margir þjóð-
þekktir leikarar hafa stigið sín
fyrstu spor á leiksviði í sýningum
Ferðaleikhússins.
Sýningin að þessu sinni inni-
heldur átján atriði. Þjóðsögur og
senur úr Íslendingasögunum eru
færðar í leikbúning og á milli
leikatriða er sýnt fræðsluefni
með skyggnum og tilheyrandi
tónlist og leikhljóðum. Meðal
atriðanna eru tvö leikdansatriði
samin af Þorleifi Einarssyni,
glímusýning, þjálfuð af Herði
Gunnarssyni og einþáttungur um
upphaf huldufólksins, samin af
Kristínu G. Magnús forsprakka
Ferðaleikhússins, sem einnig
hefur samið leikgerð upp úr
hinni sígildu drauga-þjóðsögu
um Djáknann á Myrká.
Sýnt verður í Iðnó öll mánu-
dags og þriðjudagskvöld í júlí og
ágúst en veitingahúsið Tjarnar-
bakkinn töfrar fram sælkera-
kvöldverð á undan sýningunum
fyrir þá sem þess óska. -khh
Bjartar nætur á næstunni
LEIKARARNIR EMIL FREYSSON OG ARNA BJÖRG JÓNASDÓTTIR Bright Nights - Bjartar nætur
er sumarleikhússýning fyrir erlenda ferðamenn og aðra áhugasama leikhúsgesti.
Annað kvöld verður efnt til kvöld-
vöku í Iðuhúsinu í Lækjargötu þar
sem rithöfundurinn Steinunn
Sigurðardóttir mun fjalla um verk
sín og lesa úr nýjustu skáldsögu
sinni, Sólskinshesti, sem út kom
fyrir síðustu jól. Bókin kemur nú
út í kilju og einnig sem nethljóð-
bók á heimasíðu útgáfunnar, www.
edda.is. Þetta mun vera í fyrsta
sinn sem íslensk skáldsaga er
gefin út óstytt í því formi.
Dagskráin hefst kl. 20 og munu
góðir gestir einnig líta við. Hall-
grímur Thorsteinsson og Ásdís
Kvaran lesa ljóð Steinunnar og
Úlfhildur Dagsdóttir flytur stutt
erindi um höfundinn og verk henn-
ar.
Ennfremur mun Steinunn flytja
framhald þjóðhátíðarljóðsins
„Einu-sinni-var-landið,“ sem fjall-
konan Tinna Hrafnsdóttir flutti á
Austurvelli þann 17. júní. -khh
Steinunn í Iðu
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR Margfalt
fagnaðarefni í Iðuhúsinu. FRÉTTALBLAÐIÐ/HARI
LEYNDARDÓMUR BÝFLUGNANNA
EFTIR SUE MONK
GUÐRÚN EVA MÍNERVUDÓTTIR ÞÝDDI
Niðurstaða: Sannarlega læsileg saga, en hefði
getað orðið betri, hér var allt til reiðu til þess.
Sterkar kvenpersónur, litríkur
bakgrunnur og goðsagnakennt
ívafið geta minnt á sagnagerð
Isabel Allende, þetta eru inn-
lifunarbókmenntir, lesandinn
verður að ganga sögumann-
inum á hönd, annars er hætt
við að hann hristi hausinn yfir
ýmsu sem frá er sagt.
Alveg brilljant
skilnaður
Einleikur
Eddu Björgvinsdóttur
um allt land.
Hella
Safnaðarheimilið
28. júní
Miðasala: 487-7710, 892-5912
Viðskiptavinir
Landsbankans fá
500 króna afslátt
af miðaverði
Upps
elt
biðlis
ti
��������������������������������� �����������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ������������������������������
������������ �������������� �� �����������
����������������������������������
������������������
������ �������������
����������������������������������� ��������
�������������� �����������������
������������������������������
�������������� �����������������
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI