Fréttablaðið - 28.06.2006, Page 68
Smáskífulagið Sæglópur með
hljómsveitinni Sigur Rós fær
fjórar og hálfa stjörnu af fimm
mögulegum á heimasíðunni
vinsælu gigwise.com.
„Lagið málar myndir af fjar-
lægu landslagi sem gefa þeim von
sem hafa enga og vekja upp ástríður
hjá þeim sem hafa ekkert að lifa
fyrir,“ segir m.a. í umsögninni.
Þar segir einnig að það sé ótrúlegt
að svo þungt lag geti verið svo
fallegt áheyrnar. Bætir blaðamað-
urinn því við að platan Takk sé
aðgengilegri en fyrri plötur Sigur
Rósar og því gætu harðir aðdáendur
sveitarinnar orðið vonsviknir með
hana. Engu að síður sé ekkert
betra en Sigur Rós sem stígi þungt
niður án þess að meiða nokkurn
mann.
28. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR32
TVEIR FYRIR EINN
Á ÖLLUM JÖKKUM
40-60% AFSLÁTTUR Á ÖÐRUM VÖRUM
Síðumúla 13 • Sími 568-2870
Tveir fyrir einn tilboð á eldri fatnaði
Þú greiðir kr 990 og færð aðra flík frítt
Opið 10:00 – 18:00 www.friendtex.is
Dæmi um verð: Áður Núna
Jakkapeysa 6.700.- 2.900.-
Hekluð peysa 6.900.- 2.900.-
Vafin peysa 5.900.- 2.900.-
Pólóbolur 3.300.- 1.900.-
Stutterma bolur m/mynd 3.900.- 1.900
Langerma bolur 3.900.- 1.900.-
Stutterma skyrta 3.900.- 1.900.-
Ermalaus skyrta 3.500.- 1.900.-
Tunika m/bróderíi 4.900 2.900.-
Teinóttur jakki 7.400.- 2.900.- + einn frír
Renndur jakki 7.600.- 2.900.- + einn frír
Hörkjóll 4.600.- 2.900.-
Gallapils 6.900.- 1.900.-
Sítt pis 4.900.- 1.900-
Hörbuxur 7.900.- 4.900.-
Gallabuxur 7.900.- 3.900.
Rokkhljómsveitin Langi Seli og
Skuggarnir treður upp á Ölstofunni
í kvöld. Að sögn Kormáks
Geirharðssonar, trommuleikara
sveitarinnar og verts á Ölstofunni,
hefur lítið verið um tónleikahald á
Ölstofunni fram til þessa. „Þetta
er alla vega í fyrsta skiptið sem
alvöru rokk fær að heyrast,“ segir
Kormákur.
Langi Seli og Skuggarnir hafa
verið í pásu frá tónleikahaldi um
árabil þar til fyrir skemmstu að
þeir léku á Sirkus. „Við erum smám
saman að stækka tónleikastaðina
og höldum okkur í spilaæfingu á
meðan. Það er fínt að geta prófað
þessi lög sem verða á plötunni,“
segir Kormákur. Tónleikarnir
hefjast klukkan 22 í kvöld.
Rokka á Ölstofunni
LANGI SELI OG SKUGGARNIR Leika ný lög á
Ölstofunni í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sæglópur fær fjórar
og hálfa stjörnu
SIGUR RÓS Hljómsveitin Sigur Rós spilar á
Hróarskelduhátíðinni á fimmtudaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Axl Rose, söngvari rokksveitar-
innar Guns N´ Roses var handtek-
inn í Stokkhólmi fyrir að bíta
öryggisvörð í fótinn í slagsmálum
sem brutust út á hóteli.
Rose var handtekinn vegna
gruns um að hafa ráðist á og hótað
öryggisverðinum og fyrir að hafa
valdið skemmdum á Berns-hótel-
inu. „Hann var talinn of ölvaður til
að geta farið í yfirheyrslu,“ sagði
talsmaður lögreglunnar.
Meðlimir Guns N´Roses héldu
tónleika í Globe-höllinni í Stokk-
hólmi á mánudagskvöld og fóru
síðan í partí á næturklúbbi á eftir.
Ekki er vitað hvað olli slagsmálunum
en samkvæmt sænskum slúður-
blöðum reyndi öryggisvörðurinn
að skrerast í leikinn þegar hinn 44
ára Rose átti í rifrildi við konu í
anddyri hótelsins.
Axl Rose í
steininn
AXL ROSE Söngvari Guns N´ Roses var
stungið í steininn eftir að hafa bitið öryggis-
vörð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Tvær persónur í sjöundu
og síðustu Harry Potter-
bókinni sem er væntanleg
á næsta ári munu láta lífið.
J.K. Rowling, höfundur
bókanna, viðurkenndi þetta
í viðtali í enska sjónvarps-
þættinum The Richard
and Judy Show. Snæbjörn
Arngrímsson, bókaútgef-
andi, er undrandi á þessum
fregnum.
Rowling var þögul sem gröfin um
hvaða persónur þetta væru en
sagðist sjálf hafa vitað um örlög
þeirra síðan í kringum 1990 þegar
hún skrifaði lokakaflann. Sagðist
hún jafnframt ekki búast við því að
eiga eftir að skapa aftur jafn vinsæla
persónu og Potter.
Fyndin markaðssetning
Snæbjörn Arngrímsson, eigandi
bókaforlagsins Bjarts sem gefur út
Harry Potter, segir þessar fregnir
koma nokkuð á óvart. „Hún er
svolítið fyndin þessi markaðssetn-
ing þar sem það er boðaður dauði
mörgum mánuðum áður en bókin
kemur út. Þetta var gert fyrir
síðustu bók og ég hugsaði með mér
núna: „nei, ekki aftur,“ segir
Snæbjörn í léttum dúr.
„Það verður spennandi að sjá
hver það er sem verður fyrir árás
og fyrir þá sem þekkja þessar
bækur vel er þetta dálítið „scary.“
Harry lifir af
Í síðustu bók, Blendingsprinsinn,
var það galdrakarlinn Dumbledore
sem fór yfir móðuna miklu en áður
hafði Sirius Black hlotið sömu örlög.
Snæbjörn segist ekki hafa trú á því
að Harry sjálfur muni deyja í loka-
bókinni þrátt fyrir að oft séu aðal-
söguhetjurnar látnar deyja til að
koma í veg fyrir að framhald verði
gert síðar meir. „Það var talað um
að félagi Harry myndi fara í síðustu
bók, en ég veit það ekki, það er
ómögulegt að segja. Ég
held að Harry lifi
þetta af, ég trúi
því,“ segir
hann.
Ekki hægt að biðja um meira
Bækurnar um Harry Potter hafa
verið algjör gullnáma fyrir bóka-
forlagið Bjart undanfarin ár. Snæ-
björn kvíðir ekki framtíðinni hjá
forlaginu þrátt fyrir að aðeins ein
bók um galdrastrákinn sé eftir.
„Það er óvenjulegt að fá sjö met-
sölubækur frá sama höfundinum,
maður getur ekki beðið um meira.
Allt gott tekur einhvern tímann
enda,“ segir hann. „Svona nokkuð
kemur ekki nema á tíu ára fresti og
það kemur ekkert beint í staðinn
fyrir Potter. Kannski eftir einhver
ár grípur nýtt æði um sig og þá
kannski grípum við þá gæs, maður
veit aldrei.“
Hætt við flugeldasýningu
Aðspurður segist Snæbjörn ekki
vera búinn að skipuleggja sérstakt
kveðjuhóf til heiðurs Potter þegar
síðasta bókin dettur í hús. „Þegar
síðasta bók kom út átti að vera flug-
eldasýning á flóanum þegar skipið
kom inn með bókina. Yfirvöld
bönnuðu það en það verður örugg-
lega gert eitthvað til hátíðarbrigða,“
segir hann. „Bókin kemur út á ensku
fyrst og við fáum ekki handritið
fyrr en bókin er komin út. Hátíðar-
höldin verða fyrst og fremst þegar
enska bókin kemur út.“
Lykill Salómons væntanleg
Harry Potter er ekki eini gullkálfur
Bjarts því bókaforlagið gefur einnig
út bækur Dan Brown, höfundar Da
Vinci-lykilsins. Ný bók frá honum,
Lykill Salómons, er væntanleg um
áramótin. „Hann er ekki búinn að
skila handriti að bókinni en það
liggur í loftinu að það verði um ára-
mótin. Hann ætlaði að skila henni í
sumar en það hefur dregist,“ segir
Snæbjörn.
freyr@frettabladid.is
Tvær persónur deyja í lokabókinni
SNÆBJÖRN ARNGRÍMSSON Eigandi Bjarts hefur enga trú á að sjálfur Harry Potter muni
deyja í sjöundu og síðustu bókinni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
DUMBLEDORE Galdrakarlinn og vinur
Potter, Dumbledore, lést í síðustu
bók.
HARRY POTTER Margir halda að
Harry Potter muni deyja í næstu
bók.
Mynd úr Harry
Potter og fang-
inn frá Azkaban