Fréttablaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 74
 28. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR38 TENNIS Arnar Sigurðsson tennis- spilari hefur undanfarið gert það gott á atvinnumannamótum í Noregi og Írlandi. Í síðustu viku komst hann í undanúrslit á móti í Limerick á Írlandi og svo komst hann inn í aðalkeppnina á móti í Dublin þar sem hann tapaði fyrir Bandaríkjamanni í fyrstu umferð þess móts. Engu að síður er árangurinn frábær, sérstaklega þar sem Arnar er að stíga sín fyrstu skref á móta- röðinni eftir að hann útskrifaðist úr háskóla í Bandaríkjunum í vor, þar sem hann var á íþróttanáms- styrk. Þegar síðasti styrkleikalisti alþjóða tennissambandsins var gefinn út var hann í kringum 1400. sætið en eftir árangurinn í Limer- ick er viðbúið að hann hækki sig um fjögur hundruð sæti á næsta lista. Arnar var enn staddur í Dublin þegar Fréttablaðið náði tali af honum en hann ætlaði að reyna að komast inn á stórt mót sem hefst þar í vikunni. „Ég veit þó ekki hvort ég ætli að bíða eftir mót- inu,“ sagði Arnar. „Ég er að spá í að skella mér heim og taka mér frí í nokkra daga, fyrir Davis Cup landsliða- mótið sem hefst eftir tvær vikur. Það er enda búið að vera mikið álag á mér undanfarið og hef ég til að mynda spilað sex þriggja setta leiki á átta dögum. Ég er aðeins farinn að finna til í öxlinni.“ Aðspurður um fjármálin á bak við þetta ævintýri segir hann að þetta sé vissulega dýrt fyrirtæki. „Ég er á afreksmannastyrk, auk þess sem Kópavogsbær hefur verið duglegur að styrkja mig. En annars borga ég þetta úr eigin vasa og þarf ég því að velja mótin vel. Þetta er frábær reynsla fyrir mig og hef ég fundið undanfarið að ég hef verið að bæta minn leik. Ég á vel heima á þessum mótum enda hef ég verið að vinna marga sem eru langt fyrir ofan mig á styrkleikalistanum.“ Arnar skildi við háskólann með því að verða fyrsti nemandi skól- ans sem kemst inn á stærsta mót ársins þar sem aðeins bestu tennis- leikmenn háskólanna í Bandaríkj- unum fá þátttökurétt. „Ég á þar að auki öll met skólans, hvað varðar sigra og vinningshlutfall og fleira í þeim dúr,“ sagði Arnar sem reynir sig nú meðal þeirra bestu í heiminum. - esá Tenniskappinn Arnar Sigurðsson hefur gert það gott að undanförnu en árangur hans er ekki ókeypis: Borgar mikið úr eigin vasa en kvartar ekki ARNAR Hefur verið að gera það mjög gott að undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FÓTBOLTI Hollendingurinn Phillip Cocu, fyrrum leikmaður Barcelona, er einn þeirra fjöl- mörgu sem hafa lagt orð í belg um komu Eiðs Smára Guðjohnsen til Börsunga. Cocu lék með liðinu árin 1998-2004 en sneri þá aftur til PSV Eindhoven þar sem hann ætlar að klára ferilinn. Þegar Cocu kom fyrst til PSV árið 1995 hitti hann fyrir ungan sautján ára Íslending sem hann hreifst mikið af. „Ég sá strax þá að þetta var leikmaður að mínu skapi,“ sagði Cocu við spænska blaðið Sport í vikunni. „Það fyrsta sem ég tók eftir var hversu fljótur hann var. En hann hefur þróast mikið sem leikmaður og ætti að vera frábær viðbót fyrir liðið og ætti að sam- svara sér vel með Eto`o, Giuly, Messi og Ronaldinho. Hann skorar ekki jafn mikið af mörkum og Henrik Larsson, en hann er mjög sterkur leikmaður sem býr yfir góðri tækni. Þetta er leikmaður sem kann vel að spila fyrir liðið og liðsfélaga sína,“ sagði Cocu og bætti því við að fjölhæfni hans þýddi að hann getur leyst margar stöður á vellinum. - esá PHILLIP COCU Gefur Eiði Smára toppeinkun. NORDIC PHOTOS/AFP Philip Cocu, fyrrum leikmaður Barcelona, um Eið: Leikmaður að mínu skapi FÓTBOLTI Spænska dablaðið Marca birti í gær viðtal við Cristiano Ronaldo, leikmann Manchester United, þar sem hann lýsir yfir áhuga sínum á því að ganga til liðs við Real Madrid. „Ég hef sagt umboðsmanni mínum að ég sé tilbúinn til að fara, en ég vil gera það á sem bestan hátt fyrir alla. Ég vil spila fyrir Real Madrid og upplifa drauminn minn. Næsta skref er að þeir tali við Manchester United,“ sagði Ronaldo við Marca. Manchester United gáfu út yfirlýsingu í gær þar sem þeir kváðust vera furðu lostnir yfir þessum ummælum og sögðu að það kæmi alls ekki til greina að Ronaldo yfirgæfi herbúðir liðsins í sumar. - hþh Cristiano Ronaldo: Fær ekki að fara til Real TENNIS Roger Federer sló í gær met sænsku goðsagnarinnar Björns Borg þegar Svisslending- urinn vann 42. leik sinn í röð á grasi eftir sigur gegn Richard Gasquet á Wimbledon mótinu. Federer vann settin þrjú örugg- lega, 6-3, 6-2 og 6-2, en hann mætir Tim Henman í næstu umferð. „Að komast á slíkt skrið eins og ég hef gert er augljóslega frábært en ég er ekki búinn enn, ég á bara eftir að verða enn betri. Þrátt fyrir það er met Borg ótrúlegt, hann vann fimm Wimbledon mót og að vinna það sex sinnum er eitthvað sem er nánast ómögulegt fyrir hvaða tennisleikara sem er. Fyrir mér er hann enn hetja,“ sagði Federer, sem var ánægður með að hafa komist áfram á mótinu. - hþh Roger Federer, hefur skráð nafn sitt í sögubækurnar: Sló met Björns Borg í gær MAGNAÐUR Það fær enginn skákað Svisslendingnum frábæra Roger Federer þessa dagana, enda í fantaformi eins og venjulega. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI David Beckham, hefur verið gagnrýndur nokkuð fyrir frammistöður sínar á HM, þá sér í lagi af goðsögnunum Sir Geoff Hurst og Terry Butcher. Þeir gátu þó étið hattinn sinn eftir að frábært mark Beckham tryggði England áfram í 8-liða úrslit HM. „Beckham er í öðrum klassa, algjörum heimsklassa. Við þurfum á honum að halda og hann hefur enn og aftur sýnt hversu mikil- vægur hann er fyrir okkur,“ sagði Paul Robinsson, markmaður liðsins, og Frank Lampard tók í sama streng. „Hann á gagnrýnina sem hann hefur fengið ekki skilið. Fólk á að styðja á bak við liðið og hvetja það áfram, þá sér í lagi David sem hefur staðið sig frábær- lega,“ sagði Lampard en auk þeirra tveggja komu Steven Gerrard og Owen Hargreaves, Beckham einnig til varnar. - hþh BECKHAM Hefur legið undir ámæli undanfarið. NORDICPHOTOS/AFP Enskir landsliðsmenn standa með David Beckham: Standa þétt við bakið á fyrirliða sínum 410 4000 | landsbanki.isTryggðu þér miða á betra verði á landsbankadeildin.is eða ksi.is Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 3 33 19 06 /2 00 6 Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 3 33 19 06 /2 00 6 mið. 28. júní kl. 19:15 mið. 28. júní kl. 19:15 mið. 28. júní kl. 19:15 mið. 28. júní kl. 20:00 fim. 29. júní kl. 20:00 þri. 4. júlí kl. 19:15 þri. 4. júlí kl. 19:15 þri. 4. júlí kl. 19:15 þri. 4. júlí kl. 19:15 Keflavík - Breiðablik ÍA - Víkingur FH - Grindavík Fylkir - ÍBV KR - Valur Stjarnan - Valur FH - Þór/KA Keflavík - Fylkir KR - Breiðablik 8. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KVENNA 9. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KARLA Okkar þekking nýtist þér ... Rétt hitastig og hreint loft. Hreinsar ryk, eyðir svifögnum og lykt. Bætir heilsuna og eykur vellíðan og afköst starfsmanna. Ókeypis ráðgjöf ! Sími: 440 - 1800 Komfort loftkæling Er heitt og þungt loft á þínum vinnustað? www.kælitækni.is AÐ BIÐJA UM FLUTNING? Ronaldo er eftir- sóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.