Fréttablaðið - 28.07.2006, Blaðsíða 10
10 28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR
BRUNI Eldur kom upp í sumarbú-
stað í landi Galtarholts, norðan
Borgarness, um tíu leytið í fyrra-
kvöld.
Níu ára drengur var einn í
bústaðnum að horfa á sjónvarp,
sem var með innbyggðan DVD-
spilara, þegar kviknaði í tækinu.
Hann tók þá til fótanna og gerði
foreldrum sínum sem voru á svæð-
inu viðvart.
Þegar slökkvilið bar að garði
var sumarbústaðurinn alelda og
gerðar voru ráðstafanir til að ekki
færi verr með því að færa gaskúta
og annan eldsmat frá eldinum.
Bústaðurinn er gjörónýtur eftir
brunann. - æþe
Sumarbústaður brann:
Níu ára piltur
gerði viðvart
UPPGRÖFTUR Tvær bækur hafa
fundist við uppgröft á Skriðu-
klaustri í Fljótsdal. Er þetta í
fyrsta skipti sem vitað er til að
bækur hafi fundist við fornleifa-
uppgröft hérlendis en bækurnar
fundust ásamt beinum tveggja
manna.
„Þetta er mjög merkilegur
fundur. Við teljum að þarna séu á
ferðinni sálmabækur og mögulegt
að þetta séu bækur sem Jón Ara-
son lét gera fyrir siðaskipti og
voru prentaðar á Hólum,“ segir
Steinunn Kristjánsdóttir, sem
stjórnar uppgreftrinum.
Bækurnar, sem fundust í tveim-
ur gröfum, lágu ofan á brjóstkassa
beinagrindanna og héldu þær um
bækurnar. Forvörður er nú að
vinna með bækurnar en þeim
verður síðan komið í vörslu Þjóð-
minjasafnsins þar sem þær verða
rannsakaðar frekar.
Þetta er fimmta sumarið sem
grafið er í rústum klaustursins
sem var starfrækt í Fljótsdal á
miðöldum. Um þúsund gripir
hafa fundist í uppgreftrinum nú
í sumar, en þar á meðal eru
kirkjulykill, saumnálar og fingur-
bjargir. - öhö
Merkilegur fundur í fornleifauppgreftri á Skriðuklaustri:
Fundu bækur við uppgröft
BÓKIN TEKIN UPP Síðari bókin er hér fjar-
lægð úr gröfinni eftir 500 ára legu.
MYND/GUNNAR GUNNARSSON
STRÍÐSHRJÁÐIR SÓMALAR Á FERÐ Sómal-
ar ferðast aftan á palli vörubíls sem keyrir
norður frá Mógadisjú. Vatnsbelgir þeirra
hanga meðfram pallinum. NORDICPHOTOS/AFP
Bavaria, hollenskur gæðabjór:
Kom best út
í blindprófun
Bavaria bjórinn kom best út í könnun sem hollenska
dagblaðið De Telegraaf gerði á dögunum.
10 vinsælar tegundir af bjór voru prófaðar með
blindprófi og fékk Bavaria bjórinn hæstu einkunn.
LÉTTÖL
Farangurskassar
leysa plássvandann í bílnum!
www.seglagerdin.is Eyjarslóð 5, sími 511 2200
Þyngd: 19,5 kg
Rúmmál: 320 L
Breidd: 0,96 m
24.900
SUMARTILBO
Ð
ATVINNA Feðgarnir Óli Bjarni
Ólason útgerðarmaður í Gríms-
ey og Óli Hjálmar Ólason skoða
nú sölu á aflaheimildum sínum í
Grímsey. Um er að ræða tæp tólf
hundruð þorskígildistonn en það
eru rúm fjörutíu prósent veiði-
heimilda í eynni.
Óli Bjarni segir það rangt,
sem fram hefur komið í fjölmiðl-
um, að búið sé að ganga frá söl-
unni til Vonar í Sandgerði. Hins
vegar séu þeir að skoða kaup á
helmingi aflaheimildanna. Þá sé
útgerðarfélagið GPG á Húsavík
að skoða kaup en það sé á byrjun-
arstigi. Rúmlega eitt hundrað
manns búa í Grímsey.
„Sjávarútvegur er auðvitað
uppistöðu atvinnugreinin hér í
Grímsey og því eru þetta mjög
slæm tíðindi,“ segir Brynjólfur
Árnason, sveitastjóri í Hrísey.
„Hins vegar eigum við góð
sóknarfæri á öðrum sviðum.
Ferðaþjónusta er til að mynda
vaxandi atvinnugrein hér og
margir sem vilja skoða eyna,“
segir Brynjólfur. Hann segir að
töluvert hafi verið keypt af kvóta
til byggðarlagsins undanfarið en
jafnframt verði að efla aðrar
greinar. - öhö
Rúmlega fjörutíu prósent veiðiheimilda verða að líkindum seld úr Grímsey:
Verðum að efla aðrar greinar
GRÍMSEY Óli Bjarni Ólason útgerðarmaður
skoðar nú sölu á veiðiheimildum sínum.
Sveitarstjóri segir að horfa verði til fleiri
atvinnuvega.
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI Rekstrarkostn-
aður embættis ríkislögreglustjóra
á árinu 2005 jókst um sautján pró-
sent frá árinu á undan, samkvæmt
bráðabirgðauppgjöri í nýrri árs-
skýrslu embættisins sem kom út í
gær. Er það samt innan fjárheim-
ilda embættisins.
Kostnaður jókst milli áranna í
öllum tilteknum gjaldaliðum, að
ferðum og fundum undanskildum.
Eignakaup námu 16.292.000 krón-
um árið 2004 en jukust um 57 pró-
sent á milli ára og voru 37.723.000
árið 2005. Er þetta langmesta aukn-
ingin í einstökum gjaldalið hjá emb-
ættinu.
Helsta skýring þessarar aukn-
ingar felst í fjölgun sérsveitar-
manna og kaupum á búnaði fyrir
þá, að sögn Jóns Bjartmarz, yfir-
lögregluþjóns hjá embætti ríkislög-
reglustjóra. „Inni í eignakaupum
voru fjórtán milljónir sérstaklega
eyrnamerktar sérsveitinni, sem er
í samræmi við stefnu ríkisstjórnar
sem var samþykkt í fjárlögum árin
2005 og 2006, undir þeim formerkj-
um að efla þyrfti innri öryggismál.
Sérsveitin verður stækkuð úr 21
manni í 52 menn og ennþá vantar í
tíu stöðugildi sem væntanlega
verða fyllt í haust.“ Að jafnaði fara
fimmtán milljónir í tækjabúnað
fyrir lögreglu á hverju ári að sögn
Jóns en keypt er inn fyrir allt landið.
Önnur skýring á auknum rekstr-
arkostnaði er sú mikla lækkun sem
varð á sértekjum. Árið 2004 voru
þær 33.864.000 en drógust saman
um 44 prósent milli ára og voru
aðeins 15.546.000 árið 2005. Ástæða
þess að þær drógust svona mikið
saman er uppsögn Vegagerðarinn-
ar á samningum um umferðareftir-
lit sem skerðir sértekjurnar um 25
milljónir að sögn Jóns.
Launakostnaður, sem er lang-
stærsti gjaldaliður embættisins,
jókst um fjórtán prósent milli
áranna, úr 567.190.000 í
657.038.000.
Við samanburð á efnahagsbrota-
deild embættisins og sambærileg-
um stofnunum á Norðurlöndunum
kemur meðal annars fram að hver
starfsmaður hjá efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra er að með-
altali með tvöfalt fleiri viðfangs-
efni á hverjum tíma en starfsmenn
hjá sambærilegum deildum í Nor-
egi og Svíþjóð. Hlutfall ákæra í
málum sem enduðu með sakfell-
ingu árið 2005 er hæst á Íslandi,
eða 97 prósent á móti níutíu pró-
sentum hjá Svíum og 73 prósentum
í Noregi.
Í skýrslunni er jafnframt fjallað
um siðferði og starfsumhverfi lög-
reglu, ýmiss konar uppbyggingar-
starfsemi, innra eftirlit með starf-
semi lögreglu og innri skoðun
embættisins, útgáfustarfsemi og
aðgerðir til að bæta öryggi og þjón-
ustu við borgara. Fjallað er um upp-
byggingu og starfrækslu almanna-
varnardeildar embættisins, sem tók
við eftir að Almannavarnir ríkisins
voru lagðar niður. Fram kemur hve
umfangsmikil ýmis útgáfustarfsemi
er orðin hjá embættinu, bæði í formi
almennra kynningarrita og niður-
staðna rannsókna og úttekta.
sdg@frettabladid.is
Tíu sérsveitarmenn
verða ráðnir í haust
Eignakaup embættis ríkislögreglustjóra jukust um 57 prósent milli áranna 2004
og 2005. 14 milljónir fóru í stækkun sérsveitarinnar sem skýrir helst aukning-
una, að sögn yfirlögregluþjóns. Sértekjur embættisins lækkuðu um 44 prósent.
SÉRSVEITIN Á ÆFINGU Helsta skýringin á auknum rekstrarkostnaði embættis Ríkislögreglustjóra er fjölgun sérsveitarmanna og kaup á
búnaði fyrir sveitina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI