Fréttablaðið - 28.07.2006, Blaðsíða 34
■■■■ { ferðahelgin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■2
*Meðan birgðir endast
Sumartilbo
ð
afsláttur
25%
*
Nicorette Fruitmint
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru
einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að
kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun,
varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar
aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um
lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall,
óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf nema að ráði læknis.
Handhafimarkaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ.
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
www.nicorette.is
Nýttbragð
semkemurá óvart
Í dag er öldin önnur en þegar Íslend-
ingar voru að feta sín fyrstu skref
í útilegum. „Þetta var náttúrlega
einfaldur búnaður lengi vel, menn
voru bara með sitt tjald og með
mjög frumstæðan útilegubúnað,“
segir Gunnar Hjálmarsson. „Þetta
var dýr búnaður og ekki höfðu allir
efni á honum,“ segir hann og bætir
því við að útilegur hafi heldur ekki
verið eins algengar og þær eru í
dag. „Það kom oft fyrir að fólk var
að útvega sér eitthvað í líkingu við
hvítu vegagerðartjöldin sem heilu
vinnuflokkarnir lágu í á sumrin,“
segir hann.
Nanna Kaaber er einn af stofn-
endum Útivistar. Hún segir að þar
sem tjaldútbúnaðurinn hafi lengi
vel ekki verið mjög góður hafi
ferðamenn oft reynt að gista í
ferðaskálum þar sem kostur var á.
Munurinn á aðbúnaði fyrir nokkr-
um áratugum og því sem við þekkj-
um í dag er gríðarlega mikill því
núna fara fæstir í útilegu án þess
að hafa sérhannaðar útivistarvörur
fyrir hvaða aðstæður sem er.
Í þá gömlu daga
Útileguhættir Íslendinga hafa ekki alltaf verið eins íburðarmiklir og þægilegir og þeir
eru núna. Gunnar H. Hjálmarsson er þrautreyndur ferðamaður og segir hann mikinn
mun á útilegum dagsins í dag og áður fyrr.
Það var ekki eins mikill glæsileiki yfir úti-
legum á 7. áratugnum og þekkist í dag.
Gömlu tjöldin með fortjaldi og svefntjaldi og súlu í miðjunni eru á hröðu undanhaldi.
MYND/NANNA KAABER
Gamall jeppi kemur sér í vandræði í Land-
mannalaugum fyrir tæpum 30 árum síðan.
Farþeginn í framsætinu þurfti að stinga sér
til sunds í ískaldri jökulánni og bjarga sér
þannig. MYND/NANNA KAABER
Þessi mynd er tekin fyrir um það bil
50 árum síðan. Eins og sjá má höfðust
Íslendingar við í mun frumstæðari tjöldum
en nú þekkist.
Þjóðhátíð í Eyjum árið 1971. Í rauninni er margt eins, hvítu tjöldin eru ennþá á sínum stað.
ALGENG MISTÖK LEIÐA TIL KULDA OG LÍTILS SVEFNS.
Það er algjör misskilningur að það sé kalt að sofa í tjaldi. Með smá þekk-
ingu og leiðbeiningum má breyta löngum köldum vökunóttum í væran
svefn. Heiðar Ingi Ágústsson, eigandi útivöruverslunarinnar Everest, segir
óvana helst gera tvenns konar mistök.
„Annars vegar eru það vindsængurnar. Fólk gleymir því að jörðin er köld
og loftið í vindsænginni leiðir kuldann í gegn. Það er æskilegt að setja
álteppi undir vindsængina eða flísteppi ofan á hana.
Hitt atriðið er að treysta ekki svefnpokanum. Fólk kemur inn í tjald í kulda,
vill ekki klæða sig úr öllu og fer því í töluverðu af fötum í pokann. Þá er
pokinn ekki að þjóna sínu hlutverki og nær ekki að halda hita á líkam-
anum.“ Heiðar segir gott
að vera í ullarnærfötum
í svefnpoka þar sem þau
leiði hitann í gegnum sig.
„Að fara kappklæddur í
pokann eru mikil mistök.“
Svefnpokar eru merktir
sérstaklega með kuldaþoli.
Heiðar segir að í sumar-
ferðir henti -10° eða -12°
poki fyrir flesta. „Það er
franskt fyrirtæki sem próf-
ar pokana og tölurnar segja
til um lægsta hitastig sem
fólk getur klárað nóttina í,
þó hún verði ekki þægileg.
-10° poki er til dæmis bara
þægilegur niður í kannski
4° hita,“ segir Heiðar.
Svefnpokar þurfa alls ekki
að vera dýrir og hjá Everest
er hægt að fá góða sumar-
svefnpoka frá tæpum fjög-
urþúsund krónum. Munur-
inn á góðum poka og
lélegum felst í mismunandi
trefjum í fóðrinu. Í góðum
pokum eru fleiri holur í
trefjunum, sem auka hæfni
þeirra til að geyma loft og
þar með einangrunargildi.
Fyrir þá sem eru að koma sér upp útilegubúnaði mælir Heiðar með því að
byrja á dýnunni. „Ég mundi byrja á því að fá mér sjálfuppblásna dýnu sem
er bæði með frauði og lofti innan í. Hún er þynnri en vindsæng, kannski
3,5 cm á þykkt, en einangrar mikið betur en 6 cm vindsæng. Svona dýnur
eru með ventli sem er opnaður og dýnan látin soga í sig loft. Svo er blásið
í hana og ventlinum lokað,“ segir Heiðar. Slíkar dýnur kosta frá tæpum
fimmþúsund krónum og geta skilið á milli svefns og vöku í tjaldferðum.
einareli@frettabladid.is
Láttu þér líða vel
Það þarf ekki að vera kalt að sofa í tjaldi.
Dæmi um dýnu og svefnpoka sem henta vel fyrir
sumarferðir. Dýnan er á 4.995 og svefnpokinn á 3.995.
Heiðar segir að yfirleitt séu mistök þess valdandi að fólki sé kalt í tjöldum. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
„Það skiptir öllu máli að vera vel
nestaður þegar maður fer í útilegu.
Ég tek með mér haug af smurðum
samlokum, ávexti, trópí og kalda
kjúklingaleggi en það sem mestu
máli skiptir er flatkökur með hangi-
kjöti. Hamborgararnir eru bestir á
grillið en þó það sé eflaust gaman
að vera með voða skipulagðan mat-
seðil læt ég bara einfaldleikann
ráða. Málið er bara að vera skipu-
lagður og hafa allt nesti tilbúið áður
en það er lagt af stað í útileguna.
Svo er bara að njóta útiverunnar
með góða nestið sitt.“
Einfaldleikinn í fyrirrúmi
Eyrún Magnúsdóttir tekur með sér nóg nesti þegar hún fer í útilegur.
Ómissandi í ferðalagið