Fréttablaðið - 28.07.2006, Blaðsíða 38
■■■■ { ferðahelgin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■6
Fyrir börnin
Húfa sem heldur
hita á litlum
eyrum. 66°norður.
Barnaflíspeysa frá 66°norður.
Flísfóðraður jakki frá
66°norður.
Fyrir hann
Hlýir en léttir
göngusokkar.
Intersport.
Léttur og góður bolur úr
efni sem andar og veitir
vörn gegn sólinni. Fæst í
Intersport.
Góður vatns- og vindheldur
útivistarjakki frá 66°norður.
Góðar útivistarbuxur frá
The North face. Þær eru úr
efni sem andar og hristir
frá sér vatni. Fást í Útilífi.
Cintamani
flíspeysa sem
er vind- og
vatnsheld og
úr efni sem
andar. Fæst í
Útilífi.
Fyrir hana
Góðir göngusokkar.
Fást í Intersport.
Zo-on útivistarskyrta
úr efni sem andar og
verndar gegn sólinni.
Fæst í Intersport.
Góður jakki
frá The North
Face, fæst í
Útilífi.
Khaki buxur frá The North
Face sem henta vel fyrir
útiveruna. Fást í Útilífi.
Falleg og hlý flís-
peysa frá 66°norður.
Þótt sumarið sé í hámarki er ekki þar með sagt að sólin skíni allan liðlang-
an daginn. Íslenska sumarið er eins óútreiknanlegt og aðrar árstíðir og því
er mikilvægt að vera við öllu búinn þegar pakkað er niður fyrir ferðalagið
eða útileguna. Hlýr og góður fatnaður er nauðsynlegur ætli maður að njóta
útiverunnar en að sama skapi er einnig mikilvægt að velja föt sem eru létt
og þægileg svo að auðvelt sé að hreyfa sig.
Til í slaginn
það er mikilvægt að vera vel búinn ætli maður að eiga
stefnumót við íslenska náttúru og veðurfar.
Sverrir Guðjónsson söngvari upplifði eftirminnilegustu
verslunarmannahelgina á ættarmóti árið 1992. „Þetta
var rétt eftir að fjölskyldan flutti heim frá London en
þá var haldið á ættarmót á Skógarfossi. Ættin tengist
franska ættlegg konunnnar minnar sem dreifir sér allt
til Vestmannaeyja og tengist meðal annars fjölskyldu
Binna í Gröf og því margt um manninn,“ segir Sverrir
sem átti ekkert tjald á þessum tíma og fékk það lánað
hjá systur sinni.
Þegar Sverrir og fjölskyldan mættu á svæðið voru
Vestmannaeyingarnir búnir að hefja brekkusöng sem
þeir stýrðu með harðri hendi. Þeim tókst þó inni á
milli söngatriða að koma upp tjaldinu og halda síðan
í félagsheimilið þar sem skipulögð var kvöldvaka. „Ég
var píndur til að stofna kór á staðnum og tókst bæri-
lega,“ segir Sverrir en fljótlega upphófust ansi skraut-
leg skemmtiatriði. Meðal annars voru Vestmannaey-
ingarnir komnir í keppni um hver gæti fyrstur sprengt
upp smokk sem þeir höfðu troðið á hausinn á sér og
blásið upp með dýnupumpum.
„Þegar leið á kvöldið leist mér ekki á blikuna
þegar ég kannaðist við manneskju sem komin var í
Svanavatnsstellingar á sviðinu. Var þetta eiginkona
mín í karlhlutverkinu sem dansaði á móti karlmanni
í tútúpilsi. Þegar betur var að gáð var undirleikar-
inn unglingssonur okkar sem hamraði af mikilli list
Svanavatnið eftir Tsjækovskí.“
Sverrir ákvað þá að læða sér í átt að tjaldinu
meðan aðrir héldu gleðinni áfram. „Ég sofnaði í um
klukkutíma en vaknaði upp við það þegar rauk upp
rosalegur stormur. Ég fann að tjaldið fór að lyfta sér
þannig að ég endaði á að hanga láréttur í tjaldsúlunni
til að bjarga því en svefnpokinn og annað lauslegt
fauk út í veður og vind,“ lýsir Sverrir og segir að á því
augnabliki sem hann sá á eftir tveimur tjöldum fjúka
yfir fjallið hafi borist hlátrasköll úr félagsheimilinu
þar sem fjörið stóð sem hæst.
„Ég hafði upp á mínu fólki, sagði farir mínar ekki
sléttar og svaf lítið þessa nótt,“ segir Sverrir sem telur
líklegt að þetta verði fyrsta og síðasta ættarmótið sem
hann tekur þátt í.
Tjöldin fuku út
í veður og vind
Sverrir Guðjónsson fór á fyrsta og síð-
asta ættarmót sitt um verslunarmanna-
helgi fyrir fjórtán árum.
Sverrir Guðjónsson lenti í stormi á ættarmóti.
North Face
Hedgehog
götuskór. Léttir
og nettir og
þægilegir í styttri
gönguferðir. Fást
í Útilífi.
Scarpa fjallgönguskór
úr gore-tex. Fást í
Intersport.
Góðar
flísfóðraðar
útibuxur frá
66°norður.