Fréttablaðið - 28.07.2006, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 28.07.2006, Blaðsíða 86
 28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR38 Þrátt fyrir að nú sé sumar, sólin skíni og allir virðist ekkert nema áhyggjulausir og leiki lausum hala getur það þó gerst að yfir fólk hellist ofurlítill skuggi. Þegar gamanið stendur hvað hæst er alltaf hætta á því að halla fari undan fæti. Sumarið getur einfaldlega ekki verið eintóm hamingja. Fyrir mér er sumarið til þess gert að fá útrás fyrir alla orkuna sem þarf að bæla niður yfir veturinn vegna mikilla anna. Ég er allavega þannig að þrátt fyrir anna- saman vetur vil ég hafa fullskipuð plön alla daga sumarsins. Ég á afskaplega bágt með að sitja bara heima og hvíla mig fyrir framan kassann þegar sólin skín og ég þarf ekki að hugsa um neitt annað en sjálfa mig, algerlega án sam- viskubits yfir ólesnum lagabókum. Gallinn er hins vegar sá að ég þarf ekki bara að hafa mikið að gera í félagslífinu, heldur líka í ástarlífinu. Það nægir mér þó algerlega að hafa einn myndarlegan mann í SMS-sambandi við mig eða vita af einhverjum sem mér finnst spennandi þarna úti. Það getur bara ekki verið þannig alla daga vikunnar, allan ársins hring. Þegar þessi rólegu tímabil eiga sér stað getur það komið fyrir að maður sjái ekki lengur ljósið. Vonin um að allt ræt- ist sem vonast var til verður að engu. Einhverra hluta vegna eru flestir ef ekki allir með ákveðna mynd í huganum af sjálfum sér sem þeir reikna með að gangi upp einn daginn. Allir hafa sín takmörk í ástarlífinu eins og öðrum þáttum lífsins en eru þó mismetnaðarfullir. Þeir sem gera of miklar væntingar geta átt á hættu að verða fyrir vonbrigðum. Þó held ég að það sé algerlega nauð- synlegt að vera metnaðargjarn á þessari braut og aldrei sætta sig við minna en maður á skilið. En aftur að lægðinni sem ég sá ekkert um í veður- spá vikunnar. Það er svo undarlegt hvernig maður getur ætlast til þess að það sé öllum stundum einhver þarna úti sem bíði. Kannski er jafnvel betra að læra að vera einn með sjálfum sér og verða sjálfum sér nægur. Það getur nefnilega vel verið að það sé eitthvað sem allir þurfi að læra einhvern tímann á ævinni. Mér hefur þó ekki tekist þetta enn en ég er ansi hrædd um að mér sé ætlað að ganga þennan veg eins og örugglega flestum öðrum. Málið er bara að sannfæra sjálf- an sig um að það verði ekki hræðilega einmana og skelfilegt heldur fræðandi og skemmtilegt. Ég er allavega mjög fróðleiksfús og finnst alltaf gaman að læra eitthvað nýtt. Af hverju ekki þetta líka? Ég held að það sé nauðsynlegt, þegar svona tímabil bresta á, að segja við sjálfan sig að nú sé lag að læra þetta nýja bragð. Það þýðir að sjálfsögðu ekki að lífið sé búið og maður finni aldrei hamingjuna. Svo er það nú líka þannig að eftir þurrkatíðir rignir yfirleitt köttum og hundum, já eða mönnum! REYKJAVÍKURNÆTUR HARPA PÉTURSDÓTTIR LÆRIR AÐ ÞAÐ GETUR EKKI VERIÐ ÚRHELLI ALLAN ÁRSINS HRING Skúrir með köflum Nánari upplýsingar á siminn.is eða á næsta sölustað Símans. * Eingöngu innan kerfis Símans SUMARTILBOÐ Á SAMSUNG SÍMUM 5 KR. SMS & MMS ALLAR HELGAR Í SUMAR * E N N E M M / S ÍA / N M 2 2 7 7 8 Nánari upplýsingar á siminn.is eða á næsta sölustað Símans. Gullfallegur samlokusími, sem býður upp á alla helstu möguleikana. Meðal búnaðar má nefna VGA myndavél og hægt að taka upp hreyfimyndir, FM-útvarp, 3MB minni, 6 klukku- stunda taltíma á rafhlöðu og margt fleira. 14.980 kr. SAMSUNG X650 Glæsileg hönnun. Örþunnur, með stórum TFT hágæða litaskjá og 1,3 MP myndavél sem hægt er að snúa 180 gráður. Hægt er að tengjast tölvu, handfrjálsum búnaði og blátannarsímum í gegnum blátannarbúnað. 37.980 kr. SAMSUNG D820 * Eingöngu innan kerfis Símans TAKK FYRIR OKKUR Liðsmenn Sigur Rósar og aðstoðarmenn þökkuðu fyrir sig eftir tónleikana. Jónsi var málglaðari en oft áður við þetta tækifæri. Aðrir tónleikar í Íslandsför hljóm- sveitarinnar Sigur Rósar voru haldnir í Edinborgarhúsinu á Ísa- firði á miðvikudagskvöld. Tónleik- arnir voru aðeins auglýstir sam- dægurs á Ísafirði og því voru það mestmegnis heimamenn sem mættu á svæðið. Liðsmenn Sigur Rósar voru í góðu skapi og skemmtu sér hið besta, bæði á tón- leikunum og eftir þá eins og sjá má á myndunum. Mikla athygli vakti að Lúðrasveit Ísafjarðar lið- sinnti hljómsveitinni í laginu Sé lest. Alls voru um tuttugu liðs- menn í lúðrasveitinni að brass- sveit Sigur Rósar meðtaldri. Eftir tónleikana marseraði lúðrasveitin um götur Ísafjarðar og allt var þetta tekið upp fyrir fyrirhugaðan DVD-disk Sigur Rósar. Liðsmenn sveitarinnar og meðreiðarsveinar fóru svo margir hverjir á pöbbinn Langa Manga síðar um kvöldið og fylgdust með Magna í Rock Star. AMIINA Strengjakvartettinn Amiina var Sigur Rós til aðstoðar eins og oft áður. Þær hita upp á tónleikunum á Miklatúni á sunnudagskvöld. DÁLEIDD Áhorfendur voru vel með á nótunum. Sigurför Sigur Rósar heldur áfram MARSERAÐ UM BÆINN Lúðrasveit Ísafjarðar og brasssveit Sigur Rósar gengu um bæinn og spiluðu eftir tónleikana. Allt var þetta tekið upp fyrir DVD-disk. EINBEITTUR Jónsi var í fantaformi eins og aðrir. ÞREYTTUR EN SÁTTUR Samúel Jón Samúelsson marseraði um göturnar eftir tónleikana. FLOTTUR Orri fékk að prófa óbóið. ERU EKKI ALLIR Í STUÐI? Kjartan sýnir að liðsmenn Sigur Rósar eru ekki eins alvar- legir og listrænt þenkjandi og margir halda. TÖKULIÐIÐ Kvikmyndatökulið fylgir Sigur Rós nú um hvert fótmál. Í STUÐI EFTIR TÓNLEIKA Jónsi söngvari stillti sér upp með Samma básúnu- leikara og hinum blásurunum. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /H A LLD Ó R SVEIN B JÖ R N SSO N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.